Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1965, Blaðsíða 7

Náttúrufræðingurinn - 1965, Blaðsíða 7
NÁTTÚRU FRÆÐIN GURI N N 101 í sjó án verulegs spírunartjóns eða allt að 224 dögum. Á þeim tíma getur sams konar iræ hæglega borizt langar leiðir með hafstraumum á milli landa, og hefði óefað geta borizt til íslands frá meginlandi Evrópu eða Ameríku. Ekki ber að skil ja þessa athugun svo, að ýmsir hafi ekki velt fyrir sér svipuðu viðfangsefni áður (Ridley, 1930). Þegar Charles Darwin var við rannsóknir sínar á Galapagos eyjum, braut hann til dæmis mjög heilann um, hvernig lífverur gætu hafa borizt til afskekktra eyja. Skrifaði hann frænda sínnm þessu viðvíkjandi eftirfarandi: „Ekkert viðfangsefni veldur mér meiri heilabrotum og efasemdum en flutningur lífrænna efna til úthafseyja.“ Darwin gat sér þess til, að fræ gæti hafa flotið sjóleiðis til eyjanna. Samlandi hans, hinn kunni grasafræðingur, Hooker, hélt hins vegar fram þeirri gagn- stæðu skoðun, að fræ gæti aldrei lifað og spírað eftir langa legu í söltu vatni. Eina vörn Darwins var að gera tilraun. Hann setti fræ í flöskur með söltu vatni og sökkti jreim niður í vatnsker við 0°C. Iiita. Eftir vikutíma hafði smitað svo mikið slím út úr fræinu, að Darwin sagði í spaugi, að l'ræið myndi breytast í froskdýraliríur. En þegar Darwin sáði fræinu, tók það að spíra. Við seinni tilraunir lifðu sum fræ eftir 137 daga í sjó. Darwin ályklaði því, að fræ gæti borizt með sjó og á einni viku rekið um 168 nn'lna leið, væri það í hafstraumi, sem færi með einnar mílu hraða á klukkustund. Frakkinn C. H. Martin (1857) gagnrýndi aðl’erð Darwins, sem geymdi fræið í saltvatni en ekki sjó. Martin lét fræ hins vegar vera í götóttri dós, sem bundin var við bauju í rúmsjó. Af fjörukálsfræjum þannig geymdum spíruðu 13 af 20 eftir 45 daga. Elutningur fræs með hafstraumum virðist því allgreið leið til tit- breiðslu plantna, og virðist geta skýrt tilkomu þeirra á fjarlægum eyjuin. HEIMILDARRIT - REFERENCES Einarsson, Eypór (1965): Report on dispersal of plants lo Surtsey, The Surtsey Biology Conference, Proceedings bls. 19—21. (Fjölrit). Friðriksson, Sturla (1962): Um aðflutning íslenzku flórunnar. Náttúrufræðing- urinn 32, bls. 175-189. Friðriksson, Sturla (1964): Um aðflutning lífvera til Surtseyjar. Náttúrufræð- ingurinn 34, bls. 83—89.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.