Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 17

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 17
N ATT Ú RIIF R l . t) I N G U RI N N 111 ofan á láglendið lyrir sunnan, en síðar hafi móbergsfjcill (t. d. Dráttarhlíðin við Sogið o. II.) myndazt þar við eldgos og girt fyrir dældina.“ Skal nti rekja þessi atriði hvert fyrir sig. Nátengd eldgosunum, sem framleitt hafa móbergsfjöllin og hraunbreiðurnar, sem fyrr var lýst, ertt landsig. Þingvallavatns- kvosin er hluti af miklu víðáttumeiri sigdæld, sem nær innan frá Langjcikli alla leið út á Selvogsheiði a. m. k. 120 km leið. Gjárnar á Þingvöllum eru öllum kunnar. Landsigið, sem þar hefur átt sér stað, eftir að hraunið rann, nemur mest um 40 m og tekur yfir 7 km breiða landræmu milli Almannagjár og Heiðargjár. Hrafna- gjá er sti, sem mest hefur sigið um austan megin. Klýfur hún Arnar- l'ell að endilöngu og markar svo ströndina sunnan þess út á Langa- tanga. Þar suðvestur af kemur hún greinilega fram á dýptarkortinu, sem Sigurjón Rist hefur gert af vatninu á vegum raforkumála- skrifstofunnar. Almannagjá lendir í vatninu austan við Grjótnes, og ber lítið á henni á dýptarkortinu úti í vatninu. Þeim mun meira ber á misgengjum, þegar sunnar dregur, og er engu líkara en Almannagjá skríði aftur á land neðan við Heiðarbæ og magnist svo og stækki óðfluga, þegar dregur í Svínahlíð og Jórukleif. Sigdældin hefur jafnframt verið mjög virkt eldstöðvabelti, og hefur þar gengið á ýmsu í baráttunni á milli upphleðslu af eldgos- um og landsiganna, sem svo sigldu í kjölfarið. Suðvesturhluti Þing- vallavatns liefur orðið að inestu leyti útundan í eldsumbrotum síð- asta jökulskeiðs og eftir það og því ekki fyllzt eins upp af móbergi og hraunum og reyndin hefur verið í Henglafjöllum eða norð- ur frá á Þingvöllum. Af þessu leiðir, að við Almannagjá mælist sigið 40 m, en 240 m að minnsta kosti í Hestvík, þar sem liraun hafa ekki sléttað út eldri misgengi. Kemur þetta heim við annan liðinn í útfæringum Guðmundar G. Bárðarsonar. Mjög er það lærdómsríkt að sjá, hvernig ýmsir af hryggjunum fylgja brotlínum þarna sunnan við vatnið. Má t. d. í jórugili sjá suma þeirra þver- skorna niður í grágrýtisundirlagið af læknum, sem um það felltu. Eru slíkir þverskurðir hinn mesti lengiir fyrir jarðfræðinga og þess verðir, að þeim sé á loft haldið. Birti ég hér til Iróðleiks rissmvnd af þeim, sem fallegastur er (sjá 2. mynd). Þversnið sem þessi sanna, svo að ekki verður um deilt, í fyrsta lagi, að móbergið í hryggjun- uin er yngra en grágrýtið, og í öðru lagi, ef við lítum á hryggina efnisins vegna og legu sem myndaða í sprungugosum á síðasta

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.