Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1965, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 1965, Síða 20
114 NÁ'I' T Ú R U F RÆ ÐINGURINN að ræða en vestan til í Þingvallavatnslægðinni, þar sera misgengin hafa verið mikilvirkust á nútíma. Samfara hinum lóðréttu hreyfingum á misgengjum, sem hér hafa aðallega verið gerðar að umtalsefni, eru láréttar hreyfingar, gliðnun. sem gjárnar vitna be/t um. Að undanförnu hefur oft mátt lesa í blöð- um um vesturrek Ameríku frá Afríku og Evrópu, og í því sam- bandi verið minnzt á Miðatlantshafshrygginn, þennan reginfjallgarð. sem liggur miðja vegu milli landa, og nær norðan frá íslandi suður fyrir Afríku. Á íslandi þykjast menn sjá einna bezt eðli þessa fjall- garðs sem eldgosa- og landsigabeltis, og ýnrsir líta svo á, að hann sé sú brotlöm sem rekið eigi sér aðallega stað á. Á belti, sem nær þvert yfir ísland Iiafa menn lengi þekkt opnar gjár og gossprungur, sem óneitanlega bera vitni um, að klofnun í einhverri mynd hafi átt sér stað. Einn af þeim fyrstu til að skýra þetta með tognun til austurs og vesturs frá sjállu sprungubeltinu var Daninn Niels Nielsen (1929, 1933). Hann sá í þessu staðfestingu Wegener-kenningarinnar um vesturrek Grænlands. Síðar, rétt fyrir stríð, var hér á ferð hópur þýzkra vísindamanna, sem hugðist mæla þetta rek landshlutanna hvors frá öðrum. Menn þessir mældu m. a. tognun þá, senr hefur átt sér stað á ÞingvöIIum milli Almannagjár og Heiðargjár. Vegalengdin, sem þeir mældu (skrefuðu), var 6,17 km, og þar af voru 33,85 m gap yfir gjám. Þar eð gjárnar, sem mælt var yfir, liggja allar í Þingvallahrauni, hlýtur landið austan og vestan sig- dældarinnar að hafa fjarlægzt um 33,85 m, síðan það rann fyrir um 9000 árum (Bernauer 1943). Eigi er það Ijóst af riti Þjóðverjanna, 3. mynd. Kort af lielztu brotlínum við Þingvallavatn. Spildan, þar sem landsig liafa verið virkust á nútíma, er sýnd á ntilli bylgjulínanna. Hraunjaðar er sýndur með punktaröð og móberg með þverstrikum. Jökulgarðar (sumpart botnurðir) eru sýndir með grófum punktum. Mælistaðir, þar sem lægsta strand- línan var mæld, eru sýndir ásamt niðurstöðutölum. Abb. 3. Bruchtektonische Karte der Umgebung von Þingvallavatn. Einge zeichnet sind postglaciale Eruptionspalten, Venuerfungen und klaffende Spalten. Die Zone der akliven, postglazialen Absenkung ivird durch Wellenmuster an ihren Riindern angegeben. Punktierler Rand markiert Lavagrenzen. Hyalo- klastite = subglaziale, vulkanische Anlidufungen der lelzten Vereisung sind durch Horizontalschraffur angegeben. Sudöstlich und xaestlich des Sees be- finden sich Mordnen (teilweise Grundmordnen) die durcli grosse Punkte an- gegeben sind. Die Zahlen beziehen sicli auf die gemessene Höhe der jtingsten Stxandlinie.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.