Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 7
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 99
........mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmii
2. md. Pófiðrildi (neðri myndin) og netlufiðrildi (sú efri).
(Eftir Danmarks Fauna.)
hvítum blettum. Stór hvítur, aflangur blettur er við framjaðar
hvors framvængs. Nær vængbroddinum á hvorum framvæng er
bogadregin röð af fjórum hvítum blettum, og eru miðblettirnir
miklu minni en endablettirnir.
Fundið í Reykjavík og nágrenni hennar, Skálafelli á Hellisheiði,
Hömluholti á Snæfellsnesi, Rauðasandi, Hafnarfirði, Innri-Njarð-
vík, Fagurhólsmýri, Eyrarbakka, Múlakoti, Þórsmörk, Flatey á
Breiðafirði og Skjaldvararfossi á Barðaströnd.
3. Páfiðrildi (Vanessa io L.).
Grunnlitur vængjanna að ofan er rauður. Útjaðrar vængjanna
eru gráir. Á framjaðri hvors framvængs eru þrír gulir og þrír
svartir blettir, og stórt, svart, bogadregið strik nærri vængbrodd-
inum. En innan við það er blátt belti, með röð af hvítum smá-
deplum. Á hvorum afturvæng er stór, svartur blettur með bláum