Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1939, Side 12

Náttúrufræðingurinn - 1939, Side 12
104 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiimiimimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimimimiiimmimmiiiiiiiimiiiimmmiimiiiiimiiimiimmmmmmmiimiiiiiiiiiiimiiiiiir Eins og sést af þessu yfirliti eru nóg verkefni til, en hér er talið það helzta, sem Fiskideildin gæti birt ritgjörðir um á næst- unni. Hér við bætast svo rannsóknir á ám og vötnum, auk svif- rannsókna, karfarannsókna og margs annars. Það skal tekið fram, að verið gæti, að ritgjörðir þær, sem taldar eru undir tölulið 9 og 10, kæmu út sem „Alþýðleg fræðslurit“, en þar gæti einnig komið til mála að gefa út: 1. Selveiðar. 2. Hvalveiðar. 3. Nýir möguleikar fyrir nýtingu sjávarafurða (skrápkoli, grá- lúða, grásleppa, steinbítur, kúskel). 4. Fiskveiðar nágrannaþjóðanna. Öllum ritgjörðum um rannsóknir deildarinnar, sem og skýrsl- um, myndi fylgja útdráttur á ensku eða þýzku. — Um leið og ég vísa til þeirra upplýsinga, sem að framan eru greindar, leyfi ég mér að beina þeirri spurningu til yðar, hvort þér viljið styrkja þetta útgáfufyrirtæki með því að gerast fastur áskrifandi að ritum deildarinnar; en um leið eignist þér árangurinn af starfi hennar eins fljótt og hægt er. Það skal tekið fram, að áskriftin er „bindandi“, nema uppsögn komi fyrir 1. nóvember, og gildir hún þá frá næstu áramótum að telja. Árlegt áskriftargjald verður kr. 7,50, er fellur í gjalddaga 1. maí ár hvert. Ef ritin koma út á annað borð, verður frágangur þeirra hinn vandaðasti. Hafið þér hug á að styrkja útgáfuna og eignast um leið ár- angurinn af starfi Fiskideildarinnar, eruð þér vinsamlegast beð- inn að senda Fiskideildinni svohljóðandi pöntun, og það helzt sem fyrst: Fiskideildin, Atvinnudeild Háskólans, Reykjavík. Undir- ritaður óskar að gerast áskrifandi að ritum Fiskideildarinnar. — Nafn. — Heimilisfang. Virðingarfyllst. f. h. Fiskideildar Atvinnudeildar Háskólans. Árni Friðriksson.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.