Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 12
104 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iiiiimiimimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimimimiiimmimmiiiiiiiimiiiimmmiimiiiiimiiimiimmmmmmmiimiiiiiiiiiiimiiiiiir
Eins og sést af þessu yfirliti eru nóg verkefni til, en hér er
talið það helzta, sem Fiskideildin gæti birt ritgjörðir um á næst-
unni. Hér við bætast svo rannsóknir á ám og vötnum, auk svif-
rannsókna, karfarannsókna og margs annars. Það skal tekið fram,
að verið gæti, að ritgjörðir þær, sem taldar eru undir tölulið 9
og 10, kæmu út sem „Alþýðleg fræðslurit“, en þar gæti einnig
komið til mála að gefa út:
1. Selveiðar.
2. Hvalveiðar.
3. Nýir möguleikar fyrir nýtingu sjávarafurða (skrápkoli, grá-
lúða, grásleppa, steinbítur, kúskel).
4. Fiskveiðar nágrannaþjóðanna.
Öllum ritgjörðum um rannsóknir deildarinnar, sem og skýrsl-
um, myndi fylgja útdráttur á ensku eða þýzku.
— Um leið og ég vísa til þeirra upplýsinga, sem að framan
eru greindar, leyfi ég mér að beina þeirri spurningu til yðar,
hvort þér viljið styrkja þetta útgáfufyrirtæki með því að gerast
fastur áskrifandi að ritum deildarinnar; en um leið eignist þér
árangurinn af starfi hennar eins fljótt og hægt er. Það skal tekið
fram, að áskriftin er „bindandi“, nema uppsögn komi fyrir 1.
nóvember, og gildir hún þá frá næstu áramótum að telja. Árlegt
áskriftargjald verður kr. 7,50, er fellur í gjalddaga 1. maí ár
hvert. Ef ritin koma út á annað borð, verður frágangur þeirra
hinn vandaðasti.
Hafið þér hug á að styrkja útgáfuna og eignast um leið ár-
angurinn af starfi Fiskideildarinnar, eruð þér vinsamlegast beð-
inn að senda Fiskideildinni svohljóðandi pöntun, og það helzt sem
fyrst: Fiskideildin, Atvinnudeild Háskólans, Reykjavík. Undir-
ritaður óskar að gerast áskrifandi að ritum Fiskideildarinnar. —
Nafn. — Heimilisfang.
Virðingarfyllst.
f. h. Fiskideildar Atvinnudeildar Háskólans.
Árni Friðriksson.