Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 20

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 20
112 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiimmiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiHii mikilli fæðu á stuttum tíma. Ég hefi horft á sama selinn eta þrjú hrognkelsi á einum klukkutíma. Hveljuna rífur hann þá af, en etur fiskinn sjálfan, haus og innyfli. Einu sinni skaut ég út- sel, sem var að eta grásleppu, en fló hann ekki fyrr en kaldan morguninn eftir. Þá var allt í maganum orðið að einum hálfmelt- um graut. Aldrei sá ég sel glíma við lúðu, hvorki smáa né stóra, en aðrir þóttust hafa séð það. Eigi sá ég heldur nokkurn tíma lúðuleifar í selsmögum, en bein úr alls konar smærri fiski voru þar algeng og kúskeljabrot (úr steinbítsmögum?) varð ég var við. Eitt er það í háttum útselsins, sem ég vil geta um, af því að ég veit ekki til að aðrir hafi athugað það, en það er hvernig hann hagar sér í kafi, þegar hann er í veiðileit. Mig hafði alltaf undr- að það, að þegar útselurinn er styggðarlaus, og búinn að taka sér bólfestu í næði á einhverjum stað, þá kemur hann alltaf upp eftir hvert kaf nákvæmlega í sama farinu og hann fór niður,1) og blæs þá út (ef hann er þá skotinn, sekkur hann eins og steinn, sé hann ekki því feitari). Eftir svo sem mínútu sígur hann aftur niður á sama stað, og þetta getur hann endurtekið jafnvel klukkutímun- um saman. Það lítur því helzt ekki út fyrir að hann hreyfi sig til muna, meðan hann er í kafi, en sú er þó raunin á, að hann gerir það. Ég hefi í tvö skipti séð sel í kafi á grunnsævi koma rétt upp að fótunum á mér. Einu sinni sat ég í hægri norðan- gjólu á Knarrarneshöfða. Höfðinn er að sunnan um 10 metra hátt standberg, með stórgrýtisurð undir, niðri í sjónum. Þá var smá- straumsfjara, og sem svaraði fjögra álna dýpi á hvítum sand- bletti, sem liggur upp að urðinni. Ég var lengi búinn að horfa á litla útselsurtu, sem hafði tekið sér stöðu 80—100 föðmum sunn- ar, við lítinn þarahvirfil og hafði komið þar upp á sama stað hvað eftir annað, eins og venjulegt er. Einhverju sinni, er hún er í kafi, verður mér litið niður fyrir standbergið. Sé ég þá að urtan er þar á botninum og er að snapa eins og hundur á milli steinanna í urðinni. Litlu síðar þýtur hún burt, og kemur úr kafi á sama stað og áður. Þetta endurtók hún í þrjú skipti, og í eitt skipti kom hún upp með marhnút eða lítinn rauðmaga. í annað skipti var ég síðla sumars við heyskap fram í Knarrarneseyjum. Milli þeirra er ægissandur og djúp lón og í þeim töluvert af sand- kola, sem sést um fjörur. Um stórstraumsflóð slangra inn um þessi sund fullorðnar útselsurtur, sem virðast vera í kæpingar- 1) Köfin eru varla lengri en 10—12 minútur.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.