Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 23
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 115
'iiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimimiiiitiitMtiiiiiiiiii
Nokkrir einkennilegir fiskar.
1. Þanghafið milcla, og íbúar þess. Lengst úti í Atlantshafinu,
NW af Vesturindíum, er þanghafið. Nafn sitt dregur það af ógrynni
af þangi, sem þar er alltaf á reki. Straumar í þessu hafi eru mjög
lítið áberandi, í raun og veru er það ekkert annað en mjög stór, en
lygn hringiða á milli hinna miklu strauma Atlantshafsins. Einmitt
þess vegna helzt þangið þarna við og
jafnvel ýmislegt annað rekald. Um
þanghafið, eða Sargassóhafið (nafn-
ið eftir aðal-þangtegundinni: Sar-
gassum. Sjá 1. mynd) hafa farið hin
furðulegustu ummæli. Þetta stóra,
straumlitla hafflæmi var dularheim-
ur út af fyrir sig, þar sem jafnvel
átti að vera fullt af skipum, sem
hlekkzt hefði á í Atlantshafinu, rekið
mánuðum eða jafnvel árum saman
fyrir straum og vindi, og að lokum
fundið hinztu hvíld í þanghafinu. Þá
var einnig talið að þanggróðurinn
væri svo þéttur, að hann gæti stöðvað
jafnvel gufuskip, ef allur vari væri
ekki hafður á.
Rannsóknir síðari ára hafa leitt í
ljós, að hér er um „tröllasögur" að
ræða. Að vísu er hugsanlegt, að þang-
ið hafi getað verið seglskipum, í mis-
jöfnu leiði, all-verulegur farartálmi, en ekki kemur til mála að það
hafa getað hamlað ferðum gufuskipa, svo neinu næmi. Fagurt og
tilkomumikið kvað þanghafið vera. Þangið hangir oft saman í löng-
um, gulbrúnum strengjum, sem ná eins langt og augað eygir, og
stingur vel í stúf við hinn fagurbláa lit hafsins. Þanghafið er mjög-
hlýtt, einkum er það hlýrra en aðrir hlutar N-Atlantshafsins eftir
að kemur niður á nokkuð dýpi. Þá er það alveg sérstaklega gagn-
sætt, vegna þess, að mjög lítið af framburði áa o. s. frv. kemst þang-
að, og sviflífið er annars frekar fátæklegt.
Dýralífið í þanginu er mjög auðugt. Þar er t. d. mjög margt um
krabbategund nokkra (Planes minutus. Nátt. III. bls. 56), og yfir-
8*
1. mynd. Sargassóþang (Sarg-as-
sum) úr Þanghafinu.