Náttúrufræðingurinn - 1939, Síða 31
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 123
iimiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiimiiiimiiiiiimiiiiiiimiiimiiimiiimiiimmimiimiiiiiimiiiiiiiiii:miiimiiiiiiiimiiimiimiiiiiiiiiiiii
hjátrú fáfræðinnar. Fiskur þessi er 20—25 cm. á lengd, svo að ekki
er nú stærðin sérstaklega mikil, og heimkynni hans er m. a. heitari
hlutar Atlantshafsins. Frægð sína hefir hann hlotið af því, að
hann hefir sogskál mikla ofan á höfðinu, og með henni getur hann
haldið sér föstum á öðrum fiskum. Hann notar líka þennan eigin-
10. mynd. Þróun sogflögunnar á höfði dvslfisksins.
leika óspart, og festir sig á háfa og aðra hraðgenga fiska, en jafn-
vel einnig á hægfara dýr, eins og skjaldbökur. Á þennan hátt getur
hann komizt um heiminn án þess að hafa annað fyrir því en halda
sér föstum. Og þegar þar við bætist að hann notar einnig skipin
okkar mannanna sem samgöngutæki, verður skiljanlegt að ferðir
hans geta orðið nokkuð langar. Enda hefir einu sinni orðið vart við
hann hér við ísland, svo sannað sé, og líklega tvisvar áður, þótt
eigi sé það fullvíst. Þótt dvalfiskurinn sé ekki stærri en þetta, er
hann mjög „sterkur“ í þessari sogskál sinni. Þannig er sagt, að ef
dvalfiskur sé látinn í fulla fötu af sjó, og hann fái tækifæri til að
soga sig fastan á fötuna, megi taka í sporðinn á honum og lyfta
honum sjálfum með fötunni og sjónum án þess að hann sleppi.
Fornaldarmenn höfðu einnig tröllatrú á kröftum hans. Þeir héldu
að hann gæti haldið skipum föstum, svo þau gætu ekki hreyft sig
hið minnsta, og töldu að afl sjóa og storma væri leikföng ein við
kröftum hans. Meira að segja er hann sakaður um að hafa ráðið
úrslitum sjóorustu, með því að soga sig á annað skipið og halda
því föstu á meðan að hitt var að sigrast á því. Þá er það einnig
kunnugt, að margar frumstæðar þjóðir nota dvalfiskinn sem eins
konar veiðarfæri. Þær veiða einn, binda sterkt band um sporðinn
á honum, og sleppa honum svo og gefa út á bandinu. Finni nú dval-
fiskurinn skjaldböku eða stóran fisk, sýgur hann sig fastan, og nú
getur veiðimaðurinn byrjað að draga veiðina, því svo mikið er víst,
að dvalfiskurinn sleppir ekki.
Þegar dvalfiskurinn er búinn að soga sig fastan á annan fisk,
snýr bak hans eðlilega að fiskinum, þar sem sogflagan er ofan á