Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 52
144 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
•llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltlllUIIIIIIIIIIIMIMIIIllllllllllllllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIO
Ég býst við, að litla sæsvalan verpi einig í Bjarnarey, því
þar er á 2 stöðum uppgróin urð og gjallkennt lagskipt berg.
Víðar býst ég ekki við henni í úteyjum vegna staðhátta þar,
nema ef ske kynni í svokölluðum Rauðhamri, lagskiptum
hraunhamri, í Brandinum. Gísli Lárusson hefir sannað, að hún
verpir í Yztakletti, enda eru þar líka allvíða kjörin he.imkynni
fyrir hana. Á Heimaey, á öðrum stöðum en í Yztakletti, eru
víða aðgengilegir staðhættir fyrir hana, og þykir mér ekki
ólíklegt, að hún sé innan um þann litla slæðing af stóru sæ-
svölu, sem þar er.
Um nánari lýsingu á þessum vofukenda náttfugli, útbreiðslu
hans og lifnaðarháttum, vísa ég til bókar dr. Bjarna Sæmunds-
sonar: Fuglarnir.
Hóli í Vestmannaeyjum, í sept. 1939.
Þorsteinn Einarsson.
Geirnef rekur á Austfjörðum.
1 bréfi dags. 8. nóv. þ. á. skrifar hr. Sigfinnur Vilhjálmsson
á Djúpavogi mér, að fisk hafi rekið í Berufirði nokkru áður.
Stærðin á þessum fiski var um 15 þumlungar (ca. 37—38 cm.)
og hafði hann trjónu fram úr höfðinu. Telur höfundur bréfs-i
ins að eftir lýsingu fisksins að dæma hafi varla getað verið að
ræða um annað en geirnef (Scomberesox saurus) og fellst ég
á þá skoðun. Eini fiskurinn, sem hægt er að villast á, er horn-
fiskur (Belone acus), en hann er mun stærri vanalega um 70
cm. (ca. 28 þumlungar). Geirnef hefir oft áður rekið hér, sér-
staklega síðari hluta sumars og þá einkum í hlýja sjónum.
Bjarni Sæmundsson telur hann hafa fundist 16 sinnum svo
víst sé á svæðinu frá Vestmannaeyjum að Akranesi, einu sinni
í Kollsvík (Vestfirðir), einu sinni í Dýrafirði og tvisvar í Seyð-
isfirði. Auk þess rak einn í Þórshöfn í ágúst 1931 og loks bæt-
ist þessi í hópinn. Annars eru heimkynni hans sem hér segir
(B. Sæm.: íslenzk dýr I. Fiskarnir) :
„Heimkynni geirnefsins ná yfir öll heitu höfin og hina hlýrri
hluta tempruðu hafanna; en á sumrin leitar hann lengra út
í kaldari höfin og hörfar til baka á veturna. í N.-Atlantshafi