Náttúrufræðingurinn - 1947, Qupperneq 6
98
NÁTTÚRUI'RÆÐINGURINN
ins suðvestur af Vatnajökli og kortlagði Veiðivatnasvæðið. Mun þá
þegar liafa kviknað hjá honum sú ást á íslenzkum öræfum, sem dvín-
aði aldrei síðan.
Við Menntaskólann á Akureyri var Steinþór kennari til 1935.
Hann átti þar drjúgan þátt í að koma fótum undir stærðfræðideild
skólans. í félagslífi skólans tók hann mjög virkan þátt og lét sér frá
öndverðu sérstaklega annt um vetraríþróttir nemanda. Býr skólinn
að því enn.
Árið 1935 fluttist Steinþór til Reykjavíkur og varð kennari við
Menntaskólann þar. 1938 var hann skipaður skólastjóri liins ný-
stofnaða Viðskiptaháskóla. Því starfi gengdi hann til 1941, er skól-
inn var gerður að deild við Háskóla íslands, og kenndi áfram við þá
deild til haustsins 1946. 1941 — 1945 var hann einnig stundakennari
við Menntaskólann og liafði auk þess frá stofnun verkfræðideildar
Háskólans umfangsmikla kennslu við þá deild. Reyndist hann
hvarvetna ötull í kennslustarfi sínu og var vinsæll af nemöndum.
Hvert traust var borið til hans sem skólamanns, ntá m. a. marka af
því, að hann var skipaður framkvæmdastjóri fyrstu landsprófsnefnd-
arinnar vorið 1946.
Steinþór kvæntist 1938 Auði Jónasdóttur Jónssonar. Eignuðust
þau tvö börn.
Þótt Steinþór Sigurðsson væri alla tíð eftir heimkomu sína svo
hlaðinn kennslustörfum, að margir hefðu látið sér nægja það verk
eitt saman, vann liann merkustu störf sín utans skólans. Það voru
störf hans í þágu íslandsrannsókna og íþróttamála. Eins og áður er
getið, vann hann að landmælingum á Veiðivatnasvæðinu sumarið
1937. Þrem sumrum síðar tók hann aftur upp landmælingastarfið,
var sumarið 1930 aðstoðarmaður danskra landmælingamanna á ör-
æfunum suður af Skagafirði, en næstu átta sumurin foringi mæl-
ingaflokks. Hann kortlagði á þessum árum, ásamt E. Jensen, öll
öræfi landsins norðan og austan jökla frá Goðdölum til Horna-
fjarðar, svo og Vonarskarð, Sprengisand og svæðið milli Þjórsár og
Köldukvíslar, og punktmældi kringsvæði Langjökuls. Steinþór var
afkastamaður við mælingar þessar, svo að af bar, en kort lians bera
einnig vott um næman skilning á myndun og mótun þeirra lands-
svæða, sem liann kortlagði.
Árið 1939 var Rannsóknanefnd (síðar Rannsóknaráð) ríkisins.
stofnuð, og kaus hún sér Steinþór sem framkvæmdarstjóra. Því starfi
fylgdi frá 1941 framkvæmdastjórn Atvinnudeildar Háskólans. Fylgdu