Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1947, Qupperneq 43

Náttúrufræðingurinn - 1947, Qupperneq 43
Guðmundur Kjartansson: TRISTANSEY Eítir endilöngu Atlanzhafi frá norðri til suðurs liggur hryggur neðansjávar því sem næst miðja vega milJi meginlanda. Hann kemur glöggt í Ijós á dýptarkortum. Á honum er yfirleitt minna en 3000 m dýpi, en alls staðar mikln dýpra til beggja hliða. Á stöku stað ná hæstu kryppur þessa hryggjar upp yfir sjávarflöt og mynda eyjar. Is- land er langstærst þeirra. Hryggurinn er nokkuð bugðóttur og kyn- lega samsíða ströndum meginlandanna, Evrópu og Afríku að austan og Norður- og Suður-Ameríku að vestan. Ynrsar tilgátur hafa orðið til um myndun hans, en engin einhlít, og skulu þær ekki raktar lrér. Nyrzta eyin á liryggnum er Jan Alayen og næst Island. Frá Islandi gengur háegg hryggjarins til suðvesturs út af Reykjanesi, og er sá kafli hans nefndur Reykjaneshryggur. Miklu sunnar eru Azóreyjar milli Portúgals og New York, Sankti-Pálsey, við miðjarðarlínu, Ascension, senr er stök ey vestur af Kongóarósum, þá eyjaklasinn Tristan da Cunha (— kúnja) unr 1400 sjómílur litlu sunnar en vest- ur frá Góðrarvonarhöfða og nokkru lengri veg frá Suður-Anreríku og loks Bouvet-ey á suðurenda hryggjarins. Nyrsta mannabyggð þessa lrryggjar er á íslandi og hin syðsta á Tristan da Cunlra. Aðeins ein eyin í klasanunr Tristan da Cunha er byggð, Sú er stærst og er sérstaklega kölluð þessu langa og óþjála nafni, senr kunn- ugir menn stytta í aðeins Tristan. Við skujum kalla hana Trislansey. Á Tristansey er afskekktasta nrannabyggð á jörðunni . Að vísti eru í Kyrrahafi byggðar eyjar fjær nreginlöndum, en þar er bilið brúað al' öðrum byggðum eyjum. Veturinn 1937—’38 var gerður út norskur leiðangur til Tristans- eyjar. Leiðangursmenn voru 13 alls, ellefu Norðnrenn, einn Breti og einn Suður-Afríkumaður, flestir vísindamenn í ýnrsum greinum, en

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.