Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 104

Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 104
222 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN hitagildi og öskumagni. Aska er yfirleitt mikil í íslenzka mónum, en hún er þó aðallega í lögum (eldfjallaaska). Þegar efnagreind voru sýni af þurrum stungumó frá einstökum sveitabæjum fékkst yfirfeitt betri útkoma en úr sýnum, sem síðar voru tekin með bor í mýrunum. Ástæðan er væntanlega sú, að þegar stungumór er tekinn eru öskulögin hreinsuð burt, ef þau lenda á mótum stungulaga. Einnig munu öskulög í einstökum mókögglum ekki hafa verið tekin með í sýni til rannsóknar. Saman- burður á mó og kolum til eldsneytis er þannig, að góður, loftþurr mór hefur hálft brennslugildi og tvöfalda fyrirferð á við jafnþyngd sína af kolurn, þ. e. það þarf um það bil 4 sinnum meira af mó að fyrirferð til að gefa sama hita. Þess vegna þurfa eldhólf fyrir mó að vera a. m. k. 4 sinnum stærri en fyrir kol. Mór er einnig að öðru leyti ólíkur kolum sem eldsneyti. Til dæmis er hlutfallslega miklu meira af reikulum efnum í mónum og askan hefur lægra bræðsfu- mark. Ef nota á mýrar sem ræktarland, þ. e. undir gras, hafra, bygg eða skógrækt, eru aðrar rannsóknir sem skipta máli, svo sem ákvörðun steinefna í efstu lögum; er þá átt við steinefni sem næringarefni fyrir jurtir, fyrst og fremst aðalefnin, köfnunarefni, fosfór, kalí og kalsím, en einnig snefilnæringarefni, svo sem kopar, mangan, bór o. fl. Öll notkun mýra verður að byrja á framræslu. Líða yfirleitt mörg ár frá því, að skurðir hafa verið settir í mýri, þar tii hún er nægi- lega þurr, hvort heldur er til mótöku eða ræktunar. Nú er mýra- framræsla raunar stunduð af þvílíku kappi hér á landi á seinni árum, að náttúrufræðingar hafa talið, að senn væri þörf á að vernda einhverjar þeirra frá eyðingu. En hvað er mýri? Það má kannski þykja óþarfi að skilgreina það. En til er alþjóðfeg samþykkt frá árinu 1937 um það, hvernig mýri skuli skilgreind (Mitt. der Int. Bodenkundlichen Gesellschaft XIII. 1. 1938): Mýri er gróið landsvœði, sem hefnr torf eða mólag undir gras- sverði, a. m. k. 30 cm á þykkt á óframræstu landi, en 20 cm á þurrkuðu landi. Ef taka á mó úr mýri má dýptin helzt ekki vera rninni en 2 m á óframræstu iandi. Mýrar hér á landi eru yfirleitt 1—6 m á dýpt, á stöku stað dýpri. Mesta módýpt í heimi hefur mælzt 20 m (Minne-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.