Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 20
Páll Imsland
Sextugasti árgangur
N áttúrufræðingsins
Með þessu blaði hefst 60. árgangur
Náttúrufræðingsins. Mikið vatn hefur
runnið til sjávar síðan þeir Árni Frið-
riksson og Guðmundur G. Bárðarson
hófu útgáfu þessa rits. Og mikið hafa
hugmyndir okkar og þekking um jörð-
ina og hin ýmsu náttúrufarslegu svið
hennar breyst á þessum tíma. Þegar
þeir gengu hér um götur voru náttúru-
fræðingar þessa lands teljandi á tám
og fingrum, en nú veit enginn ná-
kvæma tölu þeirra og áhöld eru um
það, hvort hún skrifast með þrem eða
fjórum tölustöfum.
Útkoma þessa heftis er seint á ferð-
inni og veldur því einkum lítið fram-
boð á efni sem hentar þessu riti. Það
er því ljóst að annað og meira hefur
hér breyst en hugmyndir okkar um
fræðin og fjöldi þeirra fræðinga sem
fræðin ástunda.
Ekki hefur mér vitanlega farið fram
á því nein könnun, hvers vegna nátt-
úrufræðingar nútímans hafa ekki
sömu ákefð til að bera í ástundan út-
gáfu alþýðlegs efnis um náttúruna og
ríkti fyrr á öldinni. Fljótt á litið koma
þó strax upp í hugann tvær ástæður.
Sú fyrri er fremur dapurleg og best
fallin til þess að hafa hljótt um hana,
en hún er peningar. Náttúrufræðing-
urinn hefur ekki borgað höfundum
sínum ritlaun.
Hin síðari er mun margslungnari og
tengist þeim breytingum sem orðið
hafa á þessum tíma á afstöðu náttúru-
fræðinga til þess, á hvern hátt þeim
beri að ástunda fræðin, bæði varðandi
rannsóknir og kynningu á niður-
stöðum rannsókna. Rannsóknir eru
nú yfirleitt orðnar mun flóknara og
margþættara ferli en áður var. Kröfur
sem gerðar eru til gagnaöflunar, úr-
vinnslu þeirra og framsetningar á nið-
urstöðum hafa gjörbreyst. Mörgum
vísindamönnum reynast þetta sjálfsagt
nægar þrengingar og því leggja þeir
ekki vinnu og amstur í alþýðleg skrif.
Alþýðleg skrif verða að gerast með
allt öðru hugarfari en strangfræðileg
fagskrif, sem verður þó að álíta að séu
óaðskiljanlegur hluti af hinni daglegu
vinnu náttúrufræðinga.
Ugglaust eiga hér fleiri skýringar
við, því fátt er einfalt á atómöld. En
það væri mikil synd, ef þessar breyt-
ingar á náttúrufræðilegri ástundan,
sem í raun stefna einungis til bóta á
þekkingu og skilningi, verða til þess
að Ieggja af alþýðlega fræðslu um
náttúruna, ef Náttúrufræðingurinn
t.d. nær ekki að líta 70. árganginn.
Náttúrufræöingurinn 60 (1), bls. 14, 1990.
14