Náttúrufræðingurinn - 1990, Blaðsíða 55
Hola U 8 aö Laugalandi í Eyjafirði
Hiti í °C
Hola RV 34 í Reykjavik
0 40 80
Hiti í °C
120 160
6. mynd. Mældur hiti í borholum RV-34 í Reykjavík og LJ-8 að Laugalandi í Eyjafirði.
Beinu línurnar sýna hitastigul utan jarðhitasvæða á viðkomandi svæðum. Ljóst er, að
kæling hefur orðið í jarðhitakerfinu í Reykjavík neðan um J000 m dýpis og neðan um
1700 m dýpis að Laugalandi. Allar líkur eru taldar á því, að hræring vatns sé orsök
þessarar kælingar. (Óbirt gögn frá Orkustofnun). Measured temperatures in wells RV-34
in Reykjavík and LJ-8 at Laugaland in Eyjafjördur. The straight lines on the diagrams
indicate the thermal gradient outside geothermal fields in the respective areas. It is
evident that cooling has occurred in the Reykjavík geothermal system below about 1000 m
depth and below about 1700 m depth at Laugaland. In all likelihood this cooling has
been caused by convecting water. (Unpublished data from the National Energy Authori-
ty)-
LÍKÖN AF NOKKRUM
LÁGHITAKERFUM
Eins og jarðfræðileg líkön yfirleitt,
endurspegla líkön af lághitakerfum
skilning á eðli þeirra og helstu ein-
kennum. Miðað við þá þekkingu, sem
nú er til staðar, virðist ekki vera unnt
að lýsa eðli alls lághita á íslandi með
einu líkani. Talið er, að einstök lág-
hitakerfi eigi uppruna sinn í einum
eða fleirum af eftirtöldum fjórum
þáttum eða ferlum:
1) Djúpu streymi grunnvatns frá há-
lendari stöðum til láglendari um
sprungur eða aðrar lekar jarð-
myndanir.
2) Hræringu í ungum sprungum, sem
myndast hafa við höggun á göml-
um berggrunni vegna spennu-
ástands í jarðskorpunni.
3) Reki háhitakerfa út úr gosbelt-
unum samfara kólnun þeirra eftir
að varmagjafinn dofnar og fjarar
út.
47