Náttúrufræðingurinn - 1990, Blaðsíða 38
10. mynd. Einfaldað líkan af lághitasvæði. Lághitasvæði myndast við hringrás vatns í
sprungum og brotnu bergi. Grunnvatnið leitar inn í jarðhitakerfin, einkum í efri jarðlög-
um þar sem lekt er mest. Minna vatn kemst inn í jarðhitakerfin á miklu dýpi þar sem
grunnvatnsstraumurinn er mjög hægur. Vatnið nemur varma úr neðri hluta jarðskorp-
unnar, sem kólnar við það, og flytur varmann upp í efri jarðlög. Afl lághitasvæða er
einkum háð lekt jarðlaga, hitastigli og spennuástandi jarðskorðunnar. Simplified model
of a low temperature geothermal system in lceland. Convection of water transports heat
from the lower part of the crust up to the surface.
vatnskerfi væri kaldi hluti hræringar-
kerfisins, þar sem vatn rynni niður í
kerfið. Sett var kenniefni niður í
köldu holuna og fylgst með því hvort
og hvenær það kæmi fram í hinum
holunum. Eftir tæpa viku kom kenni-
efnið fram í miklum mæli í vatnsmestu
holunni þar sem hiti vatnsins var lið-
lega 80°C. Efnagreiningar og sam-
sæturannsóknir sýna að þarna er ekki
um beina blöndun tveggja vatnskerfa
að ræða heldur staðbundna hitnun
vatns og varmanám. Þessi tilraun
styður því eindregið hugmyndina um
að lághitasvæðin einkennist af stað-
bundnu varmanámi.
Varmanámið í jarðhitakerfinu við
Árbæ er í kerfi þar sem rennsli til yfir-
borðs hefur verið örvað með borun.
Búast má við að varmanám við nátt-
úrulegar aðstæður hafi verið mun
minna. Líta má á borun í náttúrulegt
jarðhitakerfi á svipaðan hátt og jarð-
skjálfta, sem opnar sprungur í kerf-
inu. Varmanámið er væntanlega háð
því hversu mikið vatn nær til yfir-
borðs, því meira sem upp rennur þeim
mun örara er varmanámið.
HRÆRING OG VARMANÁM.
Eins og fram kemur hér að framan
þá sýna tiltæk gögn að flest lághita-
svæði, sem borað hefur verið í, ein-
kennast af staðbundinni hræringu,
sem hefur kælt neðri hluta jarðskorp-
unnar innan svæðanna. Jafnframt ein-
kennast lághitasvæðin af því að
rennslisrásir vatnsins eru nær lóðrétt-
ar sprungur, sem í mörgum tilfellum
fylgja göngum. Kenningar um eðli
lághitans verða að taka tillit til þess-
ara þátta. Kenning Gunnars Böðvars-
30
j