Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 49
Kröflu-sprungusveimurinn
5
Gangur
Kröflu-askjan
10
Borhola
1. mynd. Snið, sem sýnir legu kvikuþróa undir jarðhitakerfinu við Kröflu. Nýtt streymi
kviku í þau var undanfari eldsumbrotanna, sem hófust í árslok 1975. (Byggt á Axel
Björnssyni o.fl., 1979). Cross section of the Krafla geothermal system showing the locat-
ion of magma chamhers below the geothermal field. Renewed flow of magma into these
chambers initiated the volcanic episode that began at the end of 1975. (Based on Björns-
son et al., 1979).
hiti á rúmlega 2000 metra dýpi (Ingv-
ar Birgir Friðleifsson o. fl., 1977) og
mun það vera hæsti hiti sem mælst
hefur í borholu á lághitasvæði.
Áberandi er, að lághiti er lítill á
Suðausturlandi og á Austfjörðum.
Aflmestu lághitasvæðin eru öll á Suð-
ur- og Vesturlandi, tiltölulega nærri
vestara gosbeltinu. Þar er vatnsrennsli
hvera mest og hiti hæstur (3. mynd).
Samsvarandi lághita er ekki að finna
við jaðra eystra gosbeltisins. Þó er til-
tölulega aflmikið og heitt svæði á
Hveravöllum um 20 km sunnan Húsa-
víkur (2. mynd) vestan gosbeltisins.
Efni í laugavatni í Laugarvalladal,
vestan Hrafnkelsdals, benda og til lág-
hitasvæðis skammt austan eystra gos-
beltisins með hita allt að 150°C.
Guðmundur Pálmason (1973) telur,
að hinn mikla lághita suðvestanlands
megi rekja til hins háa hitastiguls á
þessu svæði. Háan hitastigul telur
hann að megi aftur rekja til þess, að
vestara gosbeltið hafi verið virkt síð-
ustu 7 milljón árin og viðhaldið háum
hitastigli í berggrunninum beggja
vegna. Hins vegar hafi eystra gosbelt-
ið orðið til síðar. Þegar það gosbelti
tók að myndast, brotnaði upp gömul
og tiltölulega köld jarðskorpa. Því er
hitastigull almennt lægri beggja vegna
þessa gosbeltis heldur en við vestara
gosbeltið suðvestanlands og minni lík-
ur á myndun lághitakerfa.
Að undanförnu hafa jarðhitamenn
á íslandi almennt viðurkennt líkan
Trausta af lághitanum. Þessi viður-
kenning hefur þó naumast grundvall-
ast nema að litlu leyti á gögnum og
gagnrýninni, þ.e. vísindalegri, hugs-
un. Hún hefur eiginlega orðið að trú-
aratriði. Gæti ástæðan öðru fremur
verið sú hversu einfalt og auðskilið
líkan Trausta er. Gunnar Böðvarsson
(1982, 1983) hefur þó haldið á lofti
41