Náttúrufræðingurinn - 1990, Page 17
2. mynd. Teiknað snið af
gjallstálinu í Söðulhól. Pro-
file of Söðulhóll scoria and
soil layers.
5) gjall mest svart
6) jarðvegur með öskulögum.
LÖGIN TVÖ
Lögin tvö inni í gjallinu skera sig úr
einkum að þessu:
1) þau eru ekki úr gjalli
2) þau eru öðruvísi að lit
3) þau eru þéttari en gjallið.
Síðastnefnda atriðið hefur orðið til
þess að þau standa sem bríkur út úr
gjallstálinu, eins og sjá má á 1. mynd.
Við nánari skoðun kemur í ljós að
efnið í þessum lögum samanstendur af
fínum sandi blönduðum mold og
gróðurleifum, að því er ætla má vot-
lendisgróðri, með gjallögnum innan-
um. Segja má að lögin tvö séu úr
þessu samanhrærðu. Enginn efi getur
leikið á því að þetta efni er úr undir-
lagi hólsins og að það hefur byggst inn
í hann í þeim hrikaleik sem skóp
hann. Þar eð gjalllög eru undir, ofaná
og inni á milli laganna getur þetta
naumast öðruvísi verið. Þetta styður
það álit, sem raunar lengi hefur verið
við lýði, að hraunið hafi hér runnið
yfir grónar áreinar og lón eða annað
hliðstætt votlendi (Jón Jónsson 1958).
Með smásjá má vel greina för eftir
strá og búta af strám, en allt er þetta
afar smágert. Ennfremur er í þessu
71