Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 22
Reynihlíö 8.1.1989
1 mínúta
j
1. mynd. Skjálftarit úr skjálftamælinum í Reynihlíð í Mývatnssveit í janúar 1989. Á ritinu
má sjá nokkra atburði af ýmsu tagi: a. Lágtíðniskjálfti með upptök á Kröflusvæðinu.
b. Venjulegur hátíðniskjálfti af Kröflusvæðinu. S-bylgja kemur ekki fram í Reynihlíð.
c. Líklega frostbrestur í næsta nágrenni mælisins. d. Jarðskjálfti með upptök í um 130 km
fjarlægð, nálægt Grímsey. e. Hátíðniskjálfti af Kröflusvæðinu. Bæði P- og S-bylgjur
koma fram. Seismogram from Reynihlíð in N-Iceland in January 1989. The seismogram
shows seismic events of different kinds: a. Low-frequency earthquake from the neigh-
bouring Krafla volcano. b. Normal high-frequency earthquake from the Krafla volcano.
The S-wave is missing. c. Probable frost-cracking event from the immediate surrounding
of the seismograph. d. Earthquake at an epicentral distance of about 130 km, from the
Grímsey area. e. Earthquake from the Krafla area. Both P- and S-waves are recorded.
feiknahögg á húsinu; mátti helzt líkja
högginu við það, að hráblautri stór-
gripshúð væri slengt með óskiljanlegu
heljarafli á stóran flöt hússins. Hristist
það á grunni og gnötraði, svo að brak-
aði í hverju þess tré. Var nú kyrrt úti,
stjörnubjart og tunglskin, en er að var
hugað umhverfis húsið, sáust engin
verksumerki né missmíði, hvorki á
húsinu né á snjónum í grennd við það
annað en eðlilegt traðk eftir heimilis-
fólk. Eftir stutta hvíld ríður annað
högg á húsinu svipað og hið fyrra og
síðan koll af kolli, stærri högg og
minni, með 10-15 mínútna millibili;
leið stundum ívið lengra á milli
höggva, stundum skemur, en að með-
altali sennilegast 10 mínútur. . .“
„Um morguninn kl. 7 hætti þessi fyrir-
gangur snögglega, en um kvöldið, á
líkum tíma og kvöldið fyrir, hófst
hann á ný, og gekk svo alla nóttina til
morguns á sama hátt sem hina fyrri
nótt, en e.t.v. kvað aðeins minna að.
Þriðju nóttina héldu lætin enn áfram,
en þau fóru nú mjög dvínandi.“
76