Náttúrufræðingurinn - 1990, Side 23
1 mínúta
2. mynd. Skjálftarit þetta sýnir fjölda frostbresta í Reynihlíð. Þegar mest gengur á mæl-
ist um einn brestur á mínútu. The seismogram shows numerous frost-cracking events at
Reynihlíð. About one event is recorded per minute at the culmination of the activity.
Fyrir því eru þessir kaflar birtir hér,
að í þeim eru óvenju skýrar og lifandi
lýsingar á fullkomlega eðlilegu og út-
skýranlegu náttúrufyrirbæri. Hér er
greinilega Iýst frostbrestum. Raunar
er fremur sjaldgæft að þeir verði á lág-
lendi, en þennan mikla frostavetur er
líklegt að margir hafi orðið fyrir líkri
reynslu og fólkið á Látrum, fólk sem
ekki hafði fyrr orðið frostbresta vart.
Eftir fjóra sólarhringa tóku atburð-
irnir á Látrum á sig annarlegri mynd.
A.m.k. sumt heimilisfólkið heyrði
hluti dregna til, skarkað var í eldavél,
laust typpi á henni hreyfðist og hring-
ar á henni svifu í lausu lofti. I ljósi
þess að fólkið hafði lítinn svefnfrið
haft í fjóra sólarhringa, þegar hér var
komið sögu, tel ég ekki ástæðu til að
krefjast náttúrufræðilegra skýringa á
þessum skynjunum.
Á síðustu árum, eftir að jarð-
skjálftamælum fjölgaði á hálendi
landsins, hafa safnast talsverðar upp-
lýsingar um frostbresti og þær aðstæð-
ur sem til þeirra leiða. Brestirnir
koma fram á mælum jafnvel þó þeir
séu svo smáir að þeirra verði ekki vart
á nærliggjandi bæjum. Suma vetrar-
daga mælast hundruð eða jafnvel þús-
und smákippa eins og sjá má á 1. og 2.
mynd. Eftirfarandi atriði leiða öðrum
fremur til bresta:
1. Hiti fellur í mínus 5-10° C og lækk-
ar ört.
2. Logn er og heiðskírt.
3. Lítill snjór er á jörð.
4. Brestir verða oft þegar frostakafli
kemur í kjölfarið á hlákukafla.
Brestirnir verða þegar frosinn jarð-
vegur kólnar. Eins og flest föst efni
dregst jarðvegurinn saman þegar hit-
inn lækkar. Samdrátturinn er um 10“5
fyrir hverja gráðu sem hitinn lækkar,
þ.e. 10 m langur kafli styttist um 1 mm
ef hiti lækkar um 10°C, svo dæmi sé
tekið. Fyrst í stað veldur kólnunin að-
eins spennu í efstu lögunum, en þegar
spennan yfirstígur styrk frosins jarð-
vegsins springur hann með snöggum
rykk og dregst saman. Frostsprung-
urnar byrja að myndast við yfirborðið
og síðan rifnar jarðvegurinn niður á
við eftir því sem hann kólnar. Það er
kólnunarhraðinn sem stjórnar því
77