Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1990, Síða 29

Náttúrufræðingurinn - 1990, Síða 29
Hallbjarnarstaðatindi og að þrjár mis- gamlar framhlaupsurðir fléttist saman í nánd við Hauga (Árni Hjartarson o.fl. 1981). Hallbjarnarstaðatindur er bratt og svipmikið fjall. Efst á honum gnæfir Goðaborg 1146 m y.s. Framhlaupin hafa brotnað úr suðvesturhorni fjalls- ins og fallið niður í mynni Stuttadals, sem er afdalur út og upp af Haugum, milli Haugafjalls og Hallbjarnarstaða- tinds (1. mynd). Urð eldra fram- hlaupsins er að mestu hulin yngri urð- inni í hálsinum. Yngra hlaupið hefur sprungið ofarlega úr Hallbjarnar- staðatindi fast innan við brotsár eldra hlaupsins. Brotsár þess er lítt veðrað og nýlegt að sjá. Brúnir þess eru burstlaga eins og bæjarstafn og heita einfaldlega Burst (2. mynd). Urðin neðan undir brotinu er snarbrött hol- urð, ógróin að mestu og ungleg og kallast Stuttadalshraun. Hún hefur slengst niður í botn Stuttadals, sveigt niður hann og út úr dalsmynninu og niður í Skriðdal. Hluti urðarinnar hef- ur þó ekki sveigt þessa leið heldur hlaupið upp í brekkurnar handan Haugaár (sem nefnd er Stuttadalsá á Islandskortum) og komist skemmstu leið yfir Stuttadalsháls, niður í Skrið- dal, yfir Múlaá og að fjallsrótunum handan hennar. Flatarmál hlaupurð- arinnar er 2,9 km2, hlauplengdin 3 km en mesta fallhæð rúmir 800 m. Stökk- ið yfir hálsinn er 100 m þar sem hæst er. Stórir grófgerðir þursabergsdrang- ar eru áberandi í urðinni í hálsinum. Niðri í Skriðdal leggst urðin yfir norð- urjaðar Haugahólahlaupsins. Urðin hefur stíflað Haugaána um skeið og innan við hana er þurr skriðuorpinn vatnsbotn á dalnum sem áin hripar niður í og hverfur á kafla þegar lítið er í henni en kemur svo fram í lindum nokkru neðar. í hálsinum neðan við dalsmynnið sér í hið forna gljúfur Haugaár hálffullt af urð (1. mynd). Áin hefur grafið sér nýjan farveg nokkurn spöl en fellur ofan í gamla gljúfrið í miðri hlíð. Stærðarmunur gljúfursins og nýja farvegarins sýnir að áin hefur runnið margfalt lengur í gljúfrinu en í nýja farveginum. ALDUR FRAMHLAUPANNA Ég hef reynt að ákvarða aldur þessa framhlaups með gjóskulagaathugun. Sjaldgæft er að unnt sé að rannsaka óhreyfð jarðvegslög undir framhlaups- urðum. Hlaupin umturna yfirleitt meira eða minna þeim jarðvegi sem þau ryðjast yfir. Að auki varðveitast gjóskulög sem falla á ung framhlaup oftast illa. Þessu er því allt öðruvísi farið en í eldgosum þar sem hraun hreyfa jafnan lítt við þeim jarðvegi sem þau leggjast yfir. Gjóskulög henta því miklu verr til aldursgreininga á berghlaupum en á hraunum. Yngra hlaupið úr Hallbjarnarstaðatindi er undantekning frá þessu. í húsgrunn- um á Haugum hefur þess orðið vart að undir urðinni, sem þar liggur al- staðar rétt við yfirborð, er þykkt jarð- vegslag (Ólafur Jónsson 1957). Með þær upplýsingar að leiðarljósi þræddi ég árgil Múlakvíslar neðan Hauga, þar sem hún sker sig gegn um fram- hlaupsurðina og viti menn, um 500 m utan Hauga, rétt innan við jaðar hlaupsins úr Hallbjarnarstaðatindi, sér í óhreyfðan jarðveg með gjósku- lögum undir urðinni. Þarna gefst því færi á að aldursgreina framhlaupið. Og ekki er nóg með það. Á þessum stað má einnig fá vísbendingu um ald- ur Haugahólaurðarinnar. Jarðvegurinn ofan á urðinni frá Hallbjarnarstaðatindi er alstaðar þunnur, fer hvergi yfir skóflustungu á þykkt. Mjög Iítið ber á gjóskulögum í þessari jarðvegsþekju. Ef vel er að gætt má þó greina tvö ljósgrá gjósku- 83

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.