Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1990, Síða 49

Náttúrufræðingurinn - 1990, Síða 49
Trausti Jónsson Hvert liggja gjóskugeirar? í riti Sigurðar Þórarinssonar, Heklueldar (1968) eru kort sem sýna hvert gjóska barst í fyrsta þætti all- margra Heklugosa. Þá er öflugt þeyti- gos í gangi sem lyftir gjósku upp í margra kílómetra hæð. Þessi kort munu vera í endurskoðun (Guðrún Larsen, munnlegar upplýsingar 1989) auk þess sem tvö Heklugos hafa orðið eftir 1968. (Kort af útbreiðslu gjósku í þeim gosum má sjá í bók Sigurðar um Heklugosið 1970 (Sigurður Þórarins- son, 1970) og í grein (Karl Grönvold og fleiri, 1983)). Eftir að gjóskan er komin upp úr gígnum og útúr meginuppstreyminu yfir eldstöðvunum eru leiðir hennar háðar vindum. Hversu hátt til lofts gjóskan berst mun fara eftir eðli og afli eldgossins, en tiltölulega lítið mun þó berast uppúr veðrahvörfunum, sem hér eru oft í 8-10 km hæð. Aðal- flutningur gjóskunnar fer því fram í veðrahvolfinu og dreifingin ræðst því af vindum þar. Meðalvindstefna upp í gegnum veðrahvolfið er oft ólík því sem er nærri jörð og tíðnidreifing vindátta allt önnur. Tíðnidreifing vindátta nærri miðju veðrahvolfi ætti því að gefa til kynna tíðnidreifingu á stefnu gjóskugeira. Rétt ofan við mitt veðra- hvolf (í rúmlega 5 km hæð) er þrýst- ingur u.þ.b. helmingur af því sem er við jörð eða um 500 mb. Mælingar eru gerðar reglulega um heim allan á veðri og vindum í þessari hæð og stað- góðar upplýsingar eru til um vindafar þar. Fremur auðvelt er því að finna tíðni á daglegri stefnu háloftastrauma yfir Islandi. Arangur slíkrar talningar má sjá á meðfylgjandi korti (l.mynd). Talið var hversu oft stefna lenti inní 45° geirum og sýna tölurnar í geirun- um tíðni í hverjum geira í hundraðs- hlutum. Notuð eru árin 1958-1977, en upplýsingar um þau ár eru til á hvað aðgengilegustu formi. Nokkur ára- skipti eru í þessari dreifingu, en þó ekki meiri en svo að meðalstefna í þessari hæð hefur verið inní eða alveg við brún 23% geirans öll ár frá a.m.k. 1949, en upplýsingar eru ekki til í að- gengilegu formi lengra aftur. Meðal vindstefna hefur sem sagt verið milli vesturs og vest-suðvesturs öll þessi ár. Líklegt er að tímabil hafi komið fyrr á öldum, svo ekki sé talað um lengri tíma, þar sem þessi meðalvindstefna hefur hnikast til. Hversu mikið er hins vegar mjög erfitt að gera sér grein fyr- ir. Hvað kortinu viðvíkur er rétt að taka tölurnar ekki alveg bókastaflega uppá prósentu, en í meginatriðum eru þær góðar. Einnig er rétt að taka fram að þó sú aðferð sem beitt er til að finna stefnu hvers dags sé algjörlega hlutlæg hefur hún dálitla tilhneigingu til að vanmeta norður-suður þáttinn suma daga. Þetta vanmat er þó ekki Náttúrufræðingurinn 60 (2), bls. 103-105, 1990. 103

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.