Náttúrufræðingurinn - 1990, Qupperneq 51
fulltrúar þess tímabils sem gjóskugeir-
arnir ná yfir, sem er eins og áður sagði
vel mögulegt. í öðru lagi finnist
gjóskugeirar misvel á hinum ýmsu
landsvæðum og því vanti hreinlega
mismörg gos eftir því hvert gjóskan
hefur borist. í þriðja lagi gæti vel ver-
ið að gos á íslandi séu eitthvað mis-
algeng eftir árstímum. Ekki er væn-
legt að fullyrða neitt um slíkt, en ekki
hefur enn verið litið á hvort þessi
meginmynd sé um eitthvað ólík á
sumri og vetri. I fjórða lagi gæti verið
að meginhluti gjósku í dæmigerðu gosi
bærist í annarri hæð en þeirri sem hér
um ræðir og að lokum gæti hugsast að
gos byrjuðu fremur við ein veðurskil-
yrði en önnur, þó gos síðustu áratuga
bendi ekki til þess að svo sé. Allir
þessir möguleikar koma til greina og
sjálfsagt einhverjir fleiri, t.d. er ljóst
að margs konar smáatriði í þykktar-
dreifingu gjósku á einstökum Iand-
svæðum eru mjög háð vindi niður
undir yfirborði.
Enn er ekki til yfirlitskort sem sýnir
stefnu gjóskugeira allra Heklugosa.
Það sem næst kemst slíku er kort á
bls. 177 í „Heklueldum“ og við það
má auðveldlega bæta gosunum 1970
og 1980. Athygli vekur hversu fáir
gjóskugeirar liggja til Sprengisands og
Vatnajökuls. Hvernig stendur á því?
HEIMILDIR
Karl Grönvold, Guðrún Larsen, Páll Ein-
arsson, Sigurður Þórarinsson og Kristj-
án Sæmundsson 1983. The Hekla Erupt-
ion 1980. Bulletin of Volcanology 46,
349-363.
Markús Á Einarsson 1976. Veðurfar á ís-
landi. Iðunn, Reykjavík. 150 bls.
Sigurður Þórarinsson 1968. Heklueldar.
Sögufélag, Reykjavík. 187 bls.
Sigurður Þórarinsson 1970. Heklugosið
1970. Almenna bókafélagið, Reykjavík.
55 bls.-b 54 myndas.
Gögn Veðurstofu íslands.
SUMMARY
Probable tephra fallout sectors
from Icelandic volcanoes.
Trausti Jónsson
Icelandic Meteorological Office
Bústaðavegur 9
IS-150 REYKJAVÍK
Iceland.
The article discusses briefly the use of 500
hPa wind estimate averages in evaluation
of probable tephra fallout directions from
volcanoes in Iceland. See figure text for
further information.
105