Náttúrufræðingurinn - 1990, Síða 57
5. mynd. Séð úr flugvél suður yfir Jórunnarskál í Reykjanibbu í Svínadal, Húnavatnssýs-
lu og berghlaupið úr henni. A view from the air to the rock slide from Jórunnarskál in
Reykjanibba, Svínadalur, North lceland. Ljósm. photo Oddur Sigurðsson.
aðrir, sem greinir á við „Berghlaup"
Ólafs Jónssonar, falli á svipuðum rök-
um. Til samanburðar er hér einnig 6.
mynd af hlíð Skógafjalls sunnan Mýr-
dalsjökuls, sem hljóp fram haustið
1972. Þar er brött móbergshlíð sem
hrundi ofan á nafnlausan jökul í Jök-
ulsárgili nálægt þeim stað sem heitir
Tvístæður. Hlaupið fór þvert yfir jök-
ulinn og hefur síðan borist með hon-
um niður eftir í 4 ár er þessi mynd var
tekin (Oddur Sigurðsson, óbirt gögn.)
Nýjar hugmyndir um íslenskar jarð-
myndanir eru ævinlega vel þegnar til
að frjóvga umræðu og víkka sjóndeild.
Það auðnaðist Ólafi Jónssyni svo
sannarlega. Þó fer aldrei svo, að jafn
mikil verk og bækur Ólafs standist
nána athugun í öllum smáatriðum,
enda eru mannanna verk aldrei full-
komin. Hitt er aftur með öllu forkast-
anlegt að setja lauslegar tilgátur að lítt
athuguðu máli í uppsláttarbækur fyrir
almenning einkum og sér í lagi þegar
þær stangast á við viðurkenndar skoð-
anir, sem byggðar eru á nákvæmum
athugunum. Nauðsynlegt er að færa
þær í gegn um hreinsunareld fræði-
legrar umræðu á viðeigandi vettvanpi.
Sé einhver ósáttur við skýringar Ól-
afs á myndun Möðrufellshrauns og
vilji bæta þar um, á hann mikið starf
fyrir höndum.
HEIMILDIR
Hreggviður Norðdahl 1990. Tíðni lofts-
lagsbreytinga á Norðurlandi í ljósi nýrra
aldursákvarðana. Bls. 14 í Vitnisburður
um loftslagsbreytingar í íslenskum jarð-
lögum. Dagskrá og ágrip erinda. Ráð-
stefna Jarðfrœðafélags íslands 9.4. 1990.
Tómas Einarsson og Helgi Magnússon
(ritstj.) 1989. íslandshandbókin. Örn og
Örlygur. Reykjavík. 1030 bls.
111