Fréttablaðið - 27.06.2009, Page 54

Fréttablaðið - 27.06.2009, Page 54
● inni&úti ... AÐ SEM FLESTIR KOMIST í snertingu við sinn innri listamann í sumar. Enda er sjaldan eins fallegt um að lítast hér á landi en í allri litadýrðinni á sumrin þegar grasið grænkar, trén laufgast og blómin spretta. Gríptu pensil, tréliti, penna eða bara blýant og gerðu náttúru- fegurðinni skil. … HEIMAGERÐUM FROST- PINNUM, sem eru einstaklega sumarlegir og tiltölulega einfalt að búa til. Eina sem þarf er vatn með viðbættum litarefnum og sykri sem er fryst í þar til gerðum boxum. Svo er alltaf hægt að hafa hollustuna að leiðarljósi með því að hella hreinum ávaxtasafa í boxin og frysta. … MÜLLERS-ÆFINGUM. Sjósund hefur komist aftur í tísku meðal þjóðarinnar og því þá ekki að taka upp þessar æfingar sem eru sambland af léttum líkamsæfingum og köldum sjóböðum? Sparkaðu af þér skónum, klæddu þig úr fötunum og sprangaðu um úti í guðsgrænni náttúrunni eins og guð skapaði þig. … SAMVERU Í SUMAR. SAMAN-hópurinn stendur fyrir sumarátakinu Höngum saman í sumar. Hugmyndin er sú að fjölskyld- an verji meiri tíma saman en áður enda sjálfsagt aldrei meiri þörf fyrir að vera og standa saman eins og einmitt nú. VIÐ MÆLUM MEÐ… Við trúum því að það sé sameiginlegt hlutverk okkar sem hér búum að stuðla að hamingju og heilbrigði einstaklinganna, að þeir nái að þroska hæfileika sína, hafi sterka sjálfsmynd og láti drauma sína rætast. Velkomin í Reykjanesbæ, þar sem ævintýrin gerast! Velkomin í hellinn minn við smábátahöfnina í Reykjanesbæ en þar hef ég búið mér notalegt skjól með útsýni yfir Keflavíkina og Stakksfjörð. Ég hef gaman af heimsóknum barna og þið þurfið alls ekkert að vera hrædd við mig enda vita allir að ég er meinlaus og barngóð skessa. Hellirinn er opinn á virkum dögum frá kl. 9:00 - 16:30 og kl. 10:00 - 17:00 um helgar. Frekari upplýsingar eru veittar í Duushúsum, lista- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar í síma 421 3796. Einnig er hægt að senda póst á netfangið skessan@reykjanesbaer.is. SK E SS AN Í HELLIN U M skessan.is 80 ár eru liðin síðan skátastarf hófst á Akranesi.upplýsingamiðstöðvar eru á landinu. Ferða-málastofa tekur þátt í rekstri 11 slíkra mið-stöðva, eða í Reykjavík, Reykjanesbæ, Leifsstöð, Borgarnesi, Varmahlíð og Hveragerði og á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Seyðisfirði og Höfn. Heildarlistinn er á www.visiticeland.com. 34 sumarbúðir og 2 leikjanám-skeið eru á vegum KFUM og KFUK á hverju sumri. Sumar- búðirnar eru Hólavatn, Kaldársel, Vatnaskógur, Vindáshlíð og Ölver. 5 fróðleikur í tölum 27. JÚNÍ 2009 LAUGARDAGUR12

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.