Fréttablaðið - 27.06.2009, Síða 54
● inni&úti
... AÐ SEM FLESTIR KOMIST
í snertingu við sinn innri listamann
í sumar. Enda er sjaldan eins fallegt
um að lítast hér á landi en í allri
litadýrðinni á sumrin þegar grasið
grænkar, trén laufgast og blómin
spretta. Gríptu pensil, tréliti, penna
eða bara blýant og gerðu náttúru-
fegurðinni skil.
… HEIMAGERÐUM FROST-
PINNUM, sem eru einstaklega
sumarlegir og tiltölulega einfalt að
búa til. Eina sem þarf er vatn með
viðbættum litarefnum og sykri sem
er fryst í þar til gerðum boxum. Svo
er alltaf hægt að hafa hollustuna að
leiðarljósi með því að hella hreinum
ávaxtasafa í boxin og frysta.
… MÜLLERS-ÆFINGUM.
Sjósund hefur komist aftur í tísku
meðal þjóðarinnar og því þá ekki
að taka upp þessar æfingar sem eru
sambland af léttum líkamsæfingum
og köldum sjóböðum? Sparkaðu af
þér skónum, klæddu þig úr fötunum
og sprangaðu um úti í guðsgrænni
náttúrunni eins og guð skapaði þig.
… SAMVERU Í SUMAR.
SAMAN-hópurinn stendur fyrir
sumarátakinu Höngum saman í
sumar. Hugmyndin er sú að fjölskyld-
an verji meiri tíma saman en áður
enda sjálfsagt aldrei meiri þörf fyrir
að vera og standa saman eins og
einmitt nú.
VIÐ MÆLUM MEÐ…
Við trúum því að það sé sameiginlegt hlutverk okkar sem hér búum að stuðla að hamingju
og heilbrigði einstaklinganna, að þeir nái að þroska hæfileika sína,
hafi sterka sjálfsmynd og láti drauma sína rætast.
Velkomin í Reykjanesbæ, þar sem ævintýrin gerast!
Velkomin í hellinn minn við smábátahöfnina í Reykjanesbæ en þar hef ég búið mér notalegt skjól með útsýni yfir
Keflavíkina og Stakksfjörð. Ég hef gaman af heimsóknum barna og þið þurfið alls ekkert að vera
hrædd við mig enda vita allir að ég er meinlaus og barngóð skessa.
Hellirinn er opinn á virkum dögum frá kl. 9:00 - 16:30 og kl. 10:00 - 17:00 um helgar.
Frekari upplýsingar eru veittar í Duushúsum, lista- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar í síma 421 3796.
Einnig er hægt að senda póst á netfangið skessan@reykjanesbaer.is.
SK
E
SS
AN
Í HELLIN
U
M
skessan.is
80 ár eru liðin síðan skátastarf hófst á Akranesi.upplýsingamiðstöðvar eru á landinu. Ferða-málastofa tekur þátt í rekstri 11 slíkra mið-stöðva, eða í Reykjavík, Reykjanesbæ, Leifsstöð, Borgarnesi,
Varmahlíð og Hveragerði og á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum,
Seyðisfirði og Höfn. Heildarlistinn er á www.visiticeland.com.
34 sumarbúðir og 2 leikjanám-skeið eru á vegum KFUM
og KFUK á hverju sumri. Sumar-
búðirnar eru Hólavatn, Kaldársel,
Vatnaskógur, Vindáshlíð og Ölver.
5
fróðleikur í tölum
27. JÚNÍ 2009 LAUGARDAGUR12