Fréttablaðið - 27.06.2009, Page 68
40 27. júní 2009 LAUGARDAGUR
„Ég var svo gott sem búinn að
tryggja mér miða, sem betur fer
var maður ekki búinn að panta sér
flugfarið og hótel,“ segir Auðunn
Blöndal, einn mesti Michael Jack-
son-aðdáandi þjóðarinnar.
Auðunn hefur stundum brugðið
sér í líki poppkóngsins á skemmt-
unum við mikinn fögnuð við-
staddra og skemmtikrafturinn á
bæði silfurhanska og hatt, tvennu
sem Jackson gerði fræga á sínum
tíma. „Ég er nú samt aðeins far-
inn að efast um þennan Jack-
son-áhuga minn, ég er búinn að
fá sms-skeyti í allan dag, þetta
hefur kannski verið
aðeins of mikið
af hinu góða.
Menn láta bara
eins og ég hafi
misst bróður
minn.“
ÆTLAÐI AÐ SJÁ
GOÐIÐ Í SUMAR
Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir hitti
Michael Jackson á Neverland-búgarðin-
um árið 1993. „Vinur minn tók mig með sér
upp á búgarðinn eftir að hafa unnið vídeó-
samkeppni á MTV. Við vorum þar yfir helgi
og ég hitti hann alveg óvart,“ segir Anna
Mjöll. „Það var ofsalega flott að keyra þarna
upp að. Það var spiluð músík úti um allan
garð og svo komum við loksins að húsinu
og sáum þá tívolíið og sundlaugina. Það var
svolítið skrítið að sjá tívolí þar sem enginn
er. Þetta var ofsalega flott en það var skrít-
in kyrrð yfir þessu. Svo fóru allir í bíó um
kvöldið en ég fór út eftir kortér, fann tölvu-
leikjasal og fór að skoða hann. Allt í einu sá
ég að það var einhver að horfa inn um glugg-
ann og þá var það Michael. Hann kom ekki
inn og ég ákvað að láta hann í friði. Síðan lét
ég mig hverfa en þá heyrði ég í einhverjum labba á
bak við mig og þá voru það hann og lítill frændi hans.
Hann spurði mig hvort ég vildi koma með þeim í golf-
kerruna og ég sagði ókei,“ segir Anna.
„Við keyrðum út um allan garðinn og
hann sýndi mér dýrin, uppáhalds-
slöngurnar sínar og tarantúlur og
lét mig fara í öll tækin í tívolí-
inu. Hann var rosalega viðkunn-
anlegur og fínn og eðlilegur en
ofsalega feiminn. Hann virt-
ist vera ofboðslega einmana.
Manni fannst hann vera
aleinn í heiminum. Það var
svakalega skrítin tilfinn-
ing.“
Anna segist aldrei
hafa trúað þeim ásökun-
um sem á Jackson voru
bornar. „Ég trúi því að
hann hafi verið svolítið
ringlaður og ekki fattað alveg hvar
mörkin voru en ég trúi því ekki að
hann hafi skaðað nokkurn mann.“
Hallgrímur Helga-
son hefur ekki
áður tekið dánar-
fregn með því að
dilla sér (þeir voru
að spila Billie Jean
í útvarpinu).
Svanhildur Hólm
Valsdóttir syrgir
Michael Jackson.
Eva María Jóns-
dóttir Það varð
bara til sulta sem
er tileinkuð Mj.
Unnur Ösp
Stefánsdóttir sá
hann á tónleikum
þegar ég var 12
ára og grét mig
í svefn í 2 vikur
eftir þá mögnuðu
upplifun, slík var
aðdáunin, ástin,
innblásturinn.
Svala Karitas
Björgvinsdóttir
MICHAEL JACK-
SON WILL LIVE
4EVER IN OUR
HEARTS!!!!!!!
Guðlaug Ágústa
Halldórsdóttir
Algjör snillingur,
en misskilinn eins
og svo margir
snillingar.
Elva Dögg Melsteð tekur þetta án
gríns mjög nærri sér, enda forfallinn
aðdáandi þá og nú.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson Hann
var og er konungur poppsins!
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir RIP
Michael Jackson.
Bubbi Morthens MJ. Hann minnti
mig alltaf á eithvað sem tengist sorg.
Hann dó senni-
lega úr sorg …
Maríanna Clara
Lúthersdóttir
var í erfidrykkju
Farrah og Michael
í pottinum hjá
Jóa G.…dýrðleg
stund!
Lára Ómarsdott-
ir veit að MJ er
á sama stað og
Elvis
Hafliði Helgason
Ekki náði hún þér
ellin, Pétur minn
Pan.
Þórlindur
Kjartansson
telur sig nú loks
vera orðinn besta
moonwalker í
heimi.
Katrín Bessa-
dóttir syrgir fyrsta
og eina átrúnaðargoðið.
Andrés Jónsson daudi jackson er
adal umraeduefnid a ølstofunni. heyr-
ist ekki minnst a icesave tho thad se
allt krøkkt herna af blautum politicos.
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir Til
minningar um meistara Jackson sem
ég veggfóðraði herbergið mitt með
árið 1987 og sá á Wimbley 1997.
Andrés Magnússon Hvað verður um
Bubbles og börnin?
Sigvaldi Kaldalóns Maður er bara í
nettu sjokki. MJ er farinn …
Þóra Tómasdóttir grét og elskaði
Jackson. Stóð tárvot 3 m frá honum á
tónleikum í Osló fimmtán ára gömul.
Við áttum náið einhliða samband.
Gísli Galdur Þorgeirsson Michael
Jackson Flottasti poppari mannkyns-
sögunnar.
Mikil viðbrögð á Facebook
EVA MARÍA
JÓNSDÓTTIR
SVALA
BJÖRGVINSDÓTTIR
BUBBI MORTHENS
LÁRA
ÓMARSDÓTTIR
HAFLIÐI HELGASON
Konungur poppsins kveður
Michael Jackson er látinn, fimmtugur að aldri. Á yfir fjörutíu ára ferli gaf hann út ótal lög sem aldrei munu
gleymast og er einn af söluhæstu tónlistarmönnum sögunnar. Jackson var umdeildur undanfarin ár vegna
ásakana um barnahneigð en aðdáendurnir virtust ekki hafa yfirgefið hann því uppselt var á fimmtíu tón-
leika hans sem fyrirhugaðir voru í London á næstunni. Fréttablaðið ræddi við aðdáendur kappans.
ANNA MJÖLL Söngkonan
Anna Mjöll hitti Jackson
á Neverland-búgarðinum
fyrir um fimmtán árum.
Ómar R. Valdimarsson ætl-
aði að fara á tónleika með
Michael Jackson í sumar
en nú verður ekkert af
því. Ómar getur hins
vegar yljað sér við minn-
ingar frá Wembley árið
1998 þegar hann sá
Jacskon troða upp.
„Það munaði mjög
litlu á sínum tíma
að ég hefði farið á
dansnámskeið hjá Jackson-
eftirhermu skömmu eftir
að Thriller kom út,“ segir
Ómar og bætir því við
að þetta fráfall Jackson
hafi ekki komið honum svo
ýkja mikið á óvart. „Ekki
miðað við það sem á
undan var gengið og
hvernig hann var
búinn að fara með
sig.“
SÁ JACKSON 1998
Virtist vera einmana
Styrmir Jónasson, sem hefur stjórnað
útvarpsþættinum Upp í loft á Útvarpi
Sögu, var að vonum sorgmæddur þegar
hann heyrði af fráfalli átrúnaðargoðs
síns. „Ég fékk símtal frá strák og var
ekkert að trúa þessu. Svo spurði ég
móður mína um þetta og ég var bara
mjög sár. Það komu tár út úr mér og
ég hugsaði af hverju þessi meist-
ari þyrfti að falla frá,“ segir
Styrmir, sem er aðeins tólf
ára. Styrmir er stórhuga dreng-
ur því fyrr á árinu ætlaði
hann að kaupa miða á tón-
leika Jackson í London
en hafði ekki erindi sem
erfiði. „Það hefði verið
mjög gaman. Hann er nátt-
úrlega snillingur og ég vissi
að hann myndi hafa þessa
tónleika eina af þeim bestu í
heiminum.“
LANGAÐI Á TÓNLEIKANA