Samvinnan - 01.04.1930, Page 8
2
SAMVINNAN
fyrst í Bessastaðaskóla, en úskrifaðist rétt eftir að skól-
inn var fluttur til Reykjavíkur, vorið 1847. Þá vai’ presta-
skólinn nýstofnaður og stundaði Benedikt þar nám tvö
hin næstu ár og tók guðfræðipróf vorið 1849. Sýnir það
nokkuð kapp hans og stórhug, að eigi lét hann þar við
sitja, sem þó var þá altítt um þá menn, er hugðu á prests-
starf, og svo löngum síðan, heldur fór hánn til Kaup-
mannahafnar haustið 1849 og dvaldi þar vetrarlangt.
Kom hann svo heim aftur um sumarið eftir og sat hinn
næsta vetur í Húsavík nyrðra. Mun hann þá hafa fengizt
við kennslu um hríð. En um þessar mundir gekk hann að
eiga fyrri konu sína, Arnfríði Sigurðardóttur frá Gríms-
stöðum, og haustið 1851 gerðist hann aðstoðarprestur
sr. Skúla Tómassonai' í Múla í Aðaldal. Var séra Skúli þá
gamall orðinn (f. 1775), en eigi að síðui' varð sú raunin á,
að of-þröngt varð í Múla fyrir þá báða. Fékk Benedikt sér
veitta Garða á Akranesi 1856. Þar var hann þó aðeins
tvö ár. Var honum þá veittur Hvammur í Norðurárdal
1858. Haustið 1859 andaðist séra Skúli í Múla og var
Benedikt þá veitt Múiaprestakall og þjónaði hann því
síðan nær 30 ár, eða til þess hann lét af prestskap vorið
1889. Hefir hann því löngum verið kenndur við Múla.
Benedikt þótti atkvæðamikill klerkur, og héraðsrík-
ur, svo sem faðir hans hafði verið. Hann var prófastur í
Suður-Þingeyjar prófastsdæmi 1871—1889. Þingmaður
Þingeyinga 1875—1879. Síðan þm. N.-Þing. 1881—1885,
en þm. S.-Þing. 1886—1891. Síðast sat Benedikt á Alþingi
1893 sem þm. Mýramanna. Benedikt flutti frá Múla suð-
ur til Reykjavíkur og dvaldist þar síðan. Var hann þá um
hríð gæzlustjóri Landsbankans. Hann andaðist 6. des.
1903. -
Af yfirliti þessu, þótt stutt sé, verður það ráðið, að
Benedikt Kristjánsson var eigi neinn meðal maður. Alla
tíð meðan hann átti sæti á Alþingi, um 20 ára skeið, fyllti
hann flokk hinna frjálslyndari manna. Átti hann til að
vera all-skorinorður og nokkuð kappsfullur, er honum
þótti við liggja, og var hann jafnan talinn með skörungum