Samvinnan - 01.04.1930, Side 13

Samvinnan - 01.04.1930, Side 13
ÍSLENZK MENNING 7 lönd, þegar vissu þroskastigi var náð. Lífæð þeirrar út- breiðslu hafa miklar og skjótar samgöngur verið. Hvort sem menningin breiddist út með góðu eða illu, friði eða ófriði, þá fer stjóm landanna og verzlunin nú að þurfa á því að halda, að unnt sé að komast á skammri stund um víðlend svæði. Einna ákaflyndastir hafa Vesturlandabúar verið í þessu efni, og þeim hefir líka orðið mest ágengt. Það er því líkt sem þeim hafi verið meðsköpuð ómótstæði- leg þrá til að gera rúmið og fjarlægðimar að engu. Fyrsta sporið, sem munaði, var það, þegar gufuvélin var fundin upp: eimvagnar og eimskip runnu nú nokkurnveginn ör- ugglega á skammri stundu þá leið, sem hestar og segl höfðu flutt menn áður á löngum tíma, við mikla erfiðis- muni og ótryggleika. Síðan rekur ein vélin aðra. Jafnvel loftið, sem frá upphafi heims hefir ögrað jarðbundnum manninum, verður nú að nýjum vegi, sem ber hin hrað- skreiðustu farartæki, flugvélar og lofskip, milli fjarlægra staða. Líklegt er, að ísland verði innan fárra ára komið í fast flugferðasamband við bæði Evrópu og Ameríku. Samfara samgöngutækjunum koma tæki til að flytja orð og hugsanir eftir nýjum leiðum og með hraða, sem menn dreymdi varla um áður. Fyrir því sér sími og loft- skeyti. Sú var tíð, að menn sendu boð til annara landa að hausti og fengu svar næsta vor. Nú má sem auðveldast senda boðin í dag og fá svar á morgun. — Samtímis koma við sögu miðstöðvar, sem dreifa hugsunum og list út með- al manna. Er þar fyrst að nefna blöðin, sem vafalaust eru alltaf að aukast að áhrifum, svo að ekki er annað sýnna, en að því dragi, að þau verði með tímanum það eina, sem allur þoiTÍ mann les. Næst er að nefna víðvarpið og kvik- myndir. Þannig mætti halda áfram að telja upp, en það, sem nú var nefnt, getur verið nægilegt í bili. En nú vaknar spurningin: Hvaða áhrif er líklegt að þetta hafi á mann- fólkið ? Ég skal geta hér þess, sem mér þykir einna mikil- vægast og örlagaríkast: Þessi tæki vinna að því að gera
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.