Samvinnan - 01.04.1930, Page 18

Samvinnan - 01.04.1930, Page 18
12 . S A.M V 1 N N A N og nirvana, og vélin kennir þessum þjóðum að hugsa eins og vér. Þetta er stórfenglegt, glæsilegt, ægilegt. En. Það er glæsilegt fyrir sigurvegarann. En eg hefi enga lotningu, ekki snefil af lotningu fyrir þeim, sem drukkna í flóði aðkominnar menningar. Eg hefi enga lotn- ingu fyrir Indverjanum, sem vesturheimskast, slítur ræt- umar, sem tengja hann við kynþátt sinn og hina fornu, undraverðu menningu hans, og selur sál sína fyrir hlut- skifti rótleysingjans, sem eltir gæði ókunnugs kynþáttar. í fyrsta lagi er sá maður að minni skoðun veginn og létt- vægur fundinn. Og eg hef enga lotningu, litla samúð, með manni, sem í þessum skilningi er veginn og léttvæg- ur fundinn. Hann er eins og gallaði hnappurinn í Pétri Gaut, hann verðskuldar ekki annað, en að honum sé fleygt í steypuskeiðina með öðrum misheppnuðum grip- um. Ennfremur trúi eg á gildi fjölbreyttrar menningar. Eg er sannfærður um, að menningarþjóðir jarðarinnai hafa fengið hver sína sjón af tilverunni, og þó að þær sjónir séu allar ólíkar, þá er þó hver þeirra rétt á sinn hátt. Þessu er að líkja við það, að Esjan er ólík eftir því hvaðan hún er litin, eða orðað á almennari hátt: hug- myndir vorar um hlutina, um tilveruna, eru bundnar við vort sjónarmið, eru afstæðar. Aðra sjón á tilverunni er mönnunum ekki unnt að fá, og hinn fullkomni sannleik- ur verður oss um aldir alda ókunnur. Hver menning, hver trú hefir þannig sinn sannleika, sína sérstöku útsýn yfir tilveruna. Því færri sem þess- ar sjálfstæðu útsýnir eru, því fátækara er mannkynið, og því ófullkomnari er vitneskja þess um tilveruna. Það er þvi skoðun mín, að í fjölbreytni menninganna séu fólgin hin mestu verðmæti. Ef þessi skoðun er rétt, verður jafnan nokkuð tví- sýnn hagur að útbreiðslu ytri menningar. Sé sú menning, sem fyrir er, gædd miklu sköpunarmagni, þá er það heim- inum skaði, að hún drukkni í flóði aðkominna áhrifa. Það hefði verið heiminum tjón, ef Persar hefðu unnið Grikk-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.