Samvinnan - 01.04.1930, Síða 42

Samvinnan - 01.04.1930, Síða 42
36 S A M VI N N A N ist og komst í stórvelda tölu um hríð og þjóðarmetnaður óx mjög. Vildi þá við bera, að meðferð og túlkun slíkra fræða yrði með nokkrum öfgabrag, svo sem til dæmis í hinu fræga riti Ólafs Rydbecks A11 a n t i c a, er út kom um 1680—1700. Svo sem kunnugt er vöknuðu Svíar ail-hastarlega af stórveldisdraumum sínum eftir fráfall Karls 12. Annar blær kom á ásýnd hlutanna. Viðhorfið breyttist og við- fangsefnin urðu nú tekin öðram tökum en áður, að kröfu nýrrar og annarar aldar. Upp frá því hneigðust sænskir fræðimenn meir að rannsóknum málsins en áður, enda var hér mikið verkefni, þar sem mállýzkurnar voru. Hefir því verki verið haldið áfram síðan alla tíð og er þar þó enn mikið að vinna. En þótt rannsóknir á þessum öldum og ritsmíðar fyrri manna um ýmsar greinir þess- ara fræða gegni eigi þeim kröfum, sem vísindi nútímans gera til þess háttar verka, þá eiga Svíar frá þessum tím- um margt einstaklega merkilegt. En fyrst og fremst bera auðvitað þjóðminnjasöfn þeirra merki þess, að þau standa á gömlum merg, er snemma var hafizt handa að safna til þeirra. Oss virðist, er vér lítum yfir sögu Svía frá dögum Gústavs I. Vasa og fram til Bernadotte hershöfðingja Napoleons, að þar kenni stórkostlegra öfga og umróts: Frá blóðbaðinu í Stokkhólmi, er danskur konungur lét brytja niður tignarmenni landsins og þjóðin stundi undir hælum erlendrar kúgunar — til Gustavs II. Adolfs, er gerði Svíþjóð að öflugu ríki, er lét sig dreyma stóra drauma um völd og áhrif við hlið stórvelda álfunnar. Frá Karli XII. við Narva og til þess er Svíaríki var gert að einskonar pólitísku þrotabúi í lok Napoleonsstyrjaldanna og erlendur æfintýramaður settur í hásæti hinnar gömlu konungsættar með tilstyrk og ráðum útlendra stjórnmála- manna. Ætla mætti, að þjóð sú, er slíkum örlögum sætti um sín ytri efni, hefði lent í öfgum og vandkvæðum í starfslífi sínu og menningarlífi heima fyrir, að þar hefði og dregið til stórra tíðinda, hvað eftir annað.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.