Samvinnan - 01.04.1930, Síða 59
RANNSÓKNIR
53
vitna um svínahöfn og annan kvikfénað. Fjöldi örnefna
ber vott um akuryrkju á fyrri öldum um allt land. —
Sama máli gegnir um veiðistöðvar og fom uppsátur.
Fjöldi ömefna ber vott um dýralíf og gróðrarfar, mjög
fomt sumt. Þá má telja þýðing örnefnanna fyrir byggð-
arsöguna og var þess áður getið. Þá er enn fjölda margt
í ömefnum stórmerkilegt fyrir málsögu og málfræði.
Sum ömefni gefa okkur merkilegar bendingar um átrún-
að feðra vorra og siðu og stafar það sumt frá allra fyrstu
tíð, landnámsöld, og bendir til sjálfs landnámsins. (Stafá,
Stafholt, Krossá, Merki, Þórshöfn, Baldursheimur o. s.
frv.). Sum benda til auk heldur norskrar málvenju, svo
sem Úthlíð — Austurhlíð — Ytri hreppur — Eystri-
hreppur: út = vestur, sbr. fara út og utan. Yfirleitt eru
ömefnin ein hin auðugusta og merkilegasta heimild sem
til er um menningu og daglegt líf og háttu þjóðarinnar,
og því um fátt meira vert en að þeim sé safnað og þau
varðveitt frá gleymsku1).
II. Byggingar og húsaskipun. Um bygg-
ingar í fornöld hefir Valtýr Guðmundsson ritað fróðlega
ritgerð og stuðzt þar mest við sögur. Nokkuð hefir þó
verið rannsakað af fornum byggingaleifum. En hér er
samt mikið verkefm fyrir hendi, sem áreiðanlega myndi
leiða sitt af hverju í ljós til skýringar íslenzkri bygginga
sögu. Hér þarf að fást yfirlit um hinar elztu byggingar-
leifar, vemda þær og rannsaka eftir því sem hentugleik-
ar leyfa. En eigi síður þarf að gefa gaum að þróun bygg-
ingarlistar og byggingarstíls hér á landi á síðari öldum,
gefa gaum að fomum byggingum og gera uppdrætti og
*) þá er ekki ómerkilegur þáttur þessa starfs að skýra ör-
nefni og vernda forn og merk nöfn gegn heimskulegri breytinga-
girni manna. Gott dœmi um það, hve gálauslega er nú með
slíkt farið, hefir nýlega orðið austur í Flóa. þar heitir Vœlu-
gerði að fomu og er eitt af hinum fornlegustu nöfnum á land-
inu, af Váll = sviðið land, frá því þarna var byggð reist og
sviðið af kjarr og sina. Nú hefir bærinn verið skírður upp og
nefnt þingdalur, sem er lokleysa ein.