Samvinnan - 01.04.1930, Síða 60
54
SAMVINNAN
ljósmyndir af slíku, því fremur sem nú má kalla, að efnt
sé til eyðilegging-ar og niðurrifs á öllum hinum gömlu
bæjum, svo að líklegt má telja, ef ekki verður aðhafzt,
að á næstu 2 áratugum verði bókstaflega allt lagt í rúst-
ir. Hér þarf að hafa hraðan á, til þess að bjarga því sem
bjargað verður. Sjálfsagt er að varðveita frá niðurrifi
eða endurreisa hina sérkennilegustu bæi í íslenzkum stíl
og geyma til handa óbornum kynslóðum, líkt og gert
þafa frændur vorir Svíar og Norðmenn. Víða færi bezt á
því, að bæjunum yrði haldið við á sínum stað, undir um-
sjá byggðafélaganna, og yrði þangað safnað búsáhöld-
um og gripum, sem títt hefir verið á bæjum í hverju
byggðarlagi. Þjóð, sem berst við jafn sorglegt stílleysi í
nýbyggð sinni eins og vér gerum, á ekki og má ekki
láta hverfa minnjalaust jafn einkennilegan og fagran
byggingarstíl eins og gamla torfbæja stílinn. -Það má
furðu gegna, ef sá tími rennur ekki bráðlega upp, að ís-
lenzkum byggingamönnum tekst að samræma hin fornu
form nýju byggingarefni og nýjum kröfum um húsrúm
og húsaskipun á einhvern þann hátt, er betur hæfir ís-
lenzku landslagi og loftslagi en enn hefir tekizt. En hvað
sem öðru líður er hinn forni bæjastíll íslendinga of
merkilegt menningarafrek til þess, að vér megum láta
hann glatast minnjalaust. Sumt af því verki, sem hér
þarf að vinna, krefst sérkunnáttu, svo sem teikningar og
mælingar. En mikið er hægt að vinna með Ijósmyndun
og lýsingum, og má eftir því velja úr þá bæi og byggingar,
sem sérkennilegastar eru og markverðastar, og fá þá sér-
fræðinga til þess að rannsaka þær, á sama hátt og rann-
sóknir leiða í ljós, hvar er að leita fornra byggðaleifa,
sem vænlegt sé að rannsaka með útgrefti. Því að vitan-
lega er hér um miklu meira verkefni að ræða en svo, að
öllu verði rækileg skil gerð um sinn. Hið merkasta verður
að ganga fyrir og það er þegar mikils vert að vita, hvar
þess er að leita, og búa svo um, að eigi verði eytt, þangað
til hentugleikar leyfa, að það verði tekið til rannsóknar.
Undir þessa grein virðist rétt að komi verksum-