Samvinnan - 01.04.1930, Page 64
58 SAMVINNAN
nauðsyn, að komið sé upp fullkomnum söfnum fyrir helztu
atvinnuvegi landsins, sjávarútveg og landbúnað, þar
sem 'geymd sé vönduð sýnishorn af tækjum öllum, sem
hveni atvinnugrein heyrir til. í safni útvegsins á að
geyma eftirlíkingar af skipum, stórum og smáum, og
skipabúnaði öllum, sem hér hefir verið títt að nota frá
elztu tíð. Sömuleiðis veiðarfærum hvers konar og veiði-
vélum, verbúðum og öllum útbúnaði, sem þeim heyrir til.
Margt af þessu verður ekki gert án rækilegrar rannsókn-
ar verksummerkja og fornra heimilda hér á landi og í ná-
grannalöndunum, einkum Noregi. Svo er t. d. um hin elztu
skipin. En sumt hið yngra er enn við iíði og þarf að bjarga
því frá glötun; t. d. gömlu bátunum, sem enn er ekki búið
að höggva upp; en að því líður óðum. Sama máli gegnir
um veiðarfæri af fornri gerð, sem nú liggja í ruslakistum
og glatast óðum. — Líku máli gegnir um landbúnaðinn,
þótt þar sé um minna að gera. Söfn þessi ætti að vera
hér í Reykjavík. Gæti þau heyrt að einhverju ltyti undir
þjóðminnjasafnið, en yrði annars sett að forgöngu Fiski-
félags íslands og Búnaðarfélagsins. Má ætla, að það yrði
eigi mjög erfitt verk fyrir svo vel skipulagsbundin félags-
samtök, er ná um allt land, að koma slíku í kring. —
Myndi fátt geta gefið jafn ljósa hugmynd um þróun at-
vinnuvega vorra og starfssögu og einmitt slík söfn, og
mikilsvert vegna skólafólks að geta sýnt þau í sambandi
við kennslu í atvinnu og starfsmenningarsögu þjóðarinn
ar, sem vænta má að verði, áður langt líður, meiri gaumur
gefinn en hingað til hefir gert verið.
V. Loks má nefna skemmtanir, leiki, söng,
kvæðaskap, kveðskap ýmis konar og svo
talshætti og orð úr alþýðumáli. Efni þetta
liggur einna lengst frá viðfangsefni mínu, hagsögunni, en
það er augljóst, að rétt er og sjálfsagt, ef unnt verður að
koma til vegar skipulagsbundinni söfnunarstarfsemi um
land allt, þá sé reynt að taka eins mikið með og hægt
er. Þótt hér hafi all-miklu safnað verið af þessu tæi, er
þó að vísu sitthvað til, sem enn hefir ekki komið í leitir,