Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.08.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 22.08.2009, Qupperneq 2
2 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR "Af stað". Auddi, áttirðu auðvelt með að finna róna innra með þér? „Já, það er ekki langt í hann en ég læt vanilludropana vera eftir nóttina.“ Auðunn Blöndal og Sveppi munu vera með þætti í vetur þar sem þeir prófa meðal annars að vera sjómenn og hand- rukkarar. Í fyrrinótt léku þeir róna. HÖNNUN „Mér vitandi hefur eng- inn unnið með hænsnaleðrið með þessum hætti hér á landi, né hef ég fundið neitt þessu líkt erlend- is,“ segir Rakel Hafberg arki- tekt en hönnun hennar, skart og ýmsir fylgihlutir unnir úr þess- um frumlega efnivið hafa vakið mikla athygli. Rakel hefur starfað sem arki- tekt frá því að hún útskrifaðist sem slíkur árið 2007 en ákvað að finna sér ný verkefni þegar kreppti að í arkitektageiranum. Úr varð að hún rakst á hænsna- leður sem hún tók til við að nota sem efnivið í armbönd, spangir og fleira til. - jma / sjá allt Nýsköpun á heimsvísu Fylgihlutir úr hænsnaleðri SKART ÚR HÆNSNALEÐRI Rakel Hafberg arkitekt fór að búa til skartgripi þegar verkefnum í arkitektúr fækkaði. LÖGREGLUMÁL Fimmti maðurinn var handtekinn á miðvikudaginn grun- aður um að hafa skipulagt tug- milljónasvik út úr Íbúðalánasjóði og tveimur hlutafélögum í júní. Fjórir menn um tvítugt höfðu áður verið handteknir vegna málsins og sátu þeir í varðhaldi um hríð. Fimmti maðurinn er um þrítugt og er eldri bróðir eins fjórmenn- inganna. Á heimili hans fundust ýmis gögn sem bentu til þess að hann væri viðriðinn málið, auk 650 þúsund króna í reiðufé. Honum var sleppt úr haldi í gær. Maðurinn tengist vélhjóla- klúbbnum Fáfni, líkt og fjórmenn- ingarnir. Leiddar hafa verið líkur að því að mennirnir hafi ráðist í svikin að undirlagi alþjóðlegu vélhjólasamtakanna Hells Ang- els. Algengt sé að samtökum sem vilja verða fullgildir meðlimir Hells Angels, líkt og Fáfnisliðar stefna að, séu falin verkefni af þessu tagi. Ólíklegt þykir þó að lögreglu takist að færa sönnur á þessi tengsl. Svikin voru afar flókin, en mennirnir fölsuðu tilkynningar til fyrirtækjaskrár um breyting- ar á stjórnum tveggja hlutafélaga, seldu síðan fasteignir í eigu félag- anna og tóku lán fyrir kaupunum sem stungið var undan. Svikin námu minnst 50 milljónum og féð er ófundið. Svikin voru þess eðlis að yngri mennirnir fjórir hefðu tæpast getað komist upp með þau án þess að nást. - sh Fimmti maðurinn handtekinn vegna stórfelldra fjársvika úr Íbúðalánasjóði: Eldri bróðir líka handtekinn ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Svikin námu minnst 50 milljónum og er féð ófundið. FRÉTTABLAÐIÐ / E.ÓL Svínaflensa í kalkúnum Heilbrigðisyfirvöld í Chile hafa stað- fest að svínaflensa hafi greinst í kalk- únum þar í landi. Kalkúnarnir hafa þó aðeins fengið væg einkenni, en það að veiran hafi borist í fugla vekur ótta um framhaldið. CHILE EGYPTALAND, AP Í Mið-Austurlönd- um þykja döðlur ómissandi fæða í hinum helga mánuði, ramadan, sem hefst í dag í flestum löndum múslima. Í ár seljast döðlur, sem kenndar eru við Barack Obama Bandaríkjaforseta, betur en aðrar döðlur. „Við höfum hrifist af Obama og þess vegna nefnum við bestu döðlurnar okkar í höf- uðið á honum,“ segir Athif Has- him, kaupmaður í Kaíró, höfuð- borg Egyptalands. Ramadan er föstumánuður, en þá fasta múslimar frá sólarupp- rás til sólarlags, en borða góðan mat á kvöldin. - gb Ramadan í múslimaríkjum: Obama-döðlur seljast langbest OBAMA-DÖÐLUR Í SEKKJUM Viðskiptin hafa gengið vel í þessari verslun í Kaíró. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLA Barðastrandarmennirnir Viktor Már Axelsson og Marvin Kjarval Michelsen, báðir fædd- ir árið 1989, eru ákærðir fyrir rán, húsbrot og frelsissviptingu. Gætu þeir átt yfir höfði sér tíu ára fangelsi. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær. Báðu verjendur ákærðu um frest til að tjá sig um málið. Axel Karl Gíslason, sem mætti með móður sinni í réttarsal í gær, var ákærður fyrir hlutdeild í þjófn- aðarbroti fyrir að hafa skipulagt brotið og hirt ágóðann af ráninu. Jóhann Kristinn Jóhannsson er ákærður fyrir hlutdeild fyrir að hafa ekið til og frá staðnum. Viktor og Marvin brutust inn á heimili manns á áttræðisaldri á Barðaströnd á Seltjarnarnesi 25. maí síðastliðinn. Þegar húsráðandi kom heim réðist Viktor að honum, sló hann með hnefum í andlitið og neyddi hann til að leggjast á gólfið. Bundu þeir hann með límbandi á meðan þeir höfðu á brott með sér úr, skartgripi og fleira, allt að verðmæti rúmlega tveggja milljóna. Húsráðandi krefst skaðabóta að upphæð ein millj- ón en hann hlaut skrámur og mar við atlöguna. Viktor Már á tvö önnur mál sem sameinast Barða- strandarmálinu í héraðsdómi. Í öðru er hann ákærð- ur fyrir að hafa brotist inn í Tölvutækni í október, tekið þaðan tvær fartölvur og haft fíkniefni í fórum sínum. Í hinu málinu er um tvö þjófnaðarbrot að ræða. - vsp Barðastrandarræningjar ákærðir fyrir rán, húsbrot og frelsissviptingu: Höfuðpaurinn mætti með mömmu HINIR ÁKÆRÐU Viktor og Axel mættu í héraðsdóm í gær. Axel fékk dóm árið 2006 fyrir mannrán í Bónus og Viktor er nú í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR LÖGREGLUMÁL Harður árekstur varð þegar tveir bílar skullu saman á Breiðholtsbraut við Stekkjabakka um miðjan dag í gær. Einn var fluttur á slysa- deild með minniháttar meiðsli. Þá urðu tvö bifhjólaslys í höfuðborginni síðdegis í gær. Í öðru tilvikinu féll maður af bifhjóli sínu á gatnamót- um Kringlumýrarbrautar og Borgartúns. Hann er talinn vera fótbrotinn. Í hinu tilvikinu lenti bifhjól í árekstri við fólksbíl á Skeiðarvogsbrú yfir Miklubraut. Báðir voru bifhjólamennirnir fluttir á slysadeild. - þeb Þrír fluttir á slysadeild: Þrjú umferðar- slys í gærdag Aflþynnuverksmiðja í gang Fyrsta vélasamstæða aflþynnuverk- smiðju Becromal á Akureyri var gang- sett í gærdag. Þá voru tólf samstæður settar í gang en þær munu verða 60. Búist er við því að verksmiðjan verði komin í fulla notkun í lok næsta árs. NORÐURLAND STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin skoðar nú hvort hægt sé að höfða skaða- bótamál á hendur fyrrverandi stjórnendum Landsbankans vegna Icesave. „Það getur verið sjálfstætt álitaefni hvort menn hafi í einhverjum tilvikum skap- að sér skaðabótaskyldu og þá á að sjálfsögðu að fara yfir það og það er verið að gera,“ segir Stein- grímur. Málið sé í skoðun sem hluti af stærri heild. Meðal stjórnenda bankans þegar Icesave-reikningarnir voru stofnaði voru Sigurjón Þ. Árnason, Halldór J. Kristjáns- son, Björgólfur Guðmundsson og Kjartan Gunnarsson. - sh Stjórnendur kannski lögsóttir: Ríkið skoðar skaðabótamál ORKUMÁL Orkuveita Reykjavíkur mun lána Magma Energy 70 pró- sent af kaupverði hlutarins í HS Orku, með veði í bréfunum sjálfum, ef gengið verður að tilboði Magma í hlutinn. Í tilboðinu er gert ráð fyrir að lánið beri 1,5 prósenta vexti og að það verði greitt til baka í einni greiðslu að sjö árum liðnum. Tilboðið er í 16,6 prósenta hlut Orkuveitunnar, sem og 15,4 prósenta hlut Hafnarfjarðar, sem dómstólar hafa úrskurðað að Orkuveitan verði að kaupa, jafnvel þótt Samkeppnis- eftirlitið hafi komist að þeirri niður- stöðu að Orkuveitan megi ekki eiga svo stóran hlut í HS Orku. Heildartilboðið í þennan 32 pró- senta hlut hljóðar upp á um 12,3 milljarða króna, og yrðu 3,7 millj- arðar greiddir út í hönd. Orkuveit- an myndi síðan lána fyrir afgang- inum, ríflega 8,6 milljörðum, í dollurum á gengi dagsins í dag. Öll gengisáhætta yrði Orkuveitunnar, en lánið yrði auk þess að einhverju leyti bundið álverði. Magma stefnir einnig að því að kaupa hlut Reykjanesbæjar í HS Orku fyrir 2,5 milljarða. Verði af kaupunum munu Magma og sam- starfsaðilinn Geysir Green Energy eiga meirihluta í félaginu. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra hefur lýst andstöðu sinni við þau áform að selja hlutinn til einkaaðila og hefur fundað með fulltrúum Reykjavíkurborgar og Orkuveitunnar vegna málsins. Til umræðu hefur verið að fá aðra til að kaupa hlut Orkuveitunnar, til dæmis lífeyrissjóði og önnur innlend orku- fyrirtæki. stigur@frettabladid.is Vilja kúlulán til sjö ára á 1,5% vöxtum Tilboð Magma Energy í hlut Orkuveitunnar í HS Orku gerir ráð fyrir að Orku- veitan láni Magma fyrir sjötíu prósentum af kaupverðinu. Lánið yrði tæplega níu milljarða kúlulán í dollurum til sjö ára, með veð í bréfunum sjálfum. HS ORKA HS Orka varð til þegar Hitaveitu Suðurnesja var skipt upp í tvo hluta. HS Orka sér um orkunýtinguna og HS Veitur um dreifinguna til almennings. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI Meðal þess sem litið hefur verið til í samráði ríkisins og borgarinnar við lausn málsins er samningur Reykjanesbæjar við HS Orku um nýtingarrétt á orkunni í Svartsengi í aðdragandanum að fyrirhuguðum kaupum Magma. Reykjanesbær framseldi réttinn til HS Orku fyrir 30 milljónir á ári í 65 ár, með möguleika á framlengingu um önnur 65 ár. Verði af kaupum Magma mun félagið því þurfa að greiða bænum 30 millj- óna auðlindagjald á ári. Í ljós hefur komið að Magma hefur gert tvo samninga í Oregon og Nevada í Bandaríkjunum sem fulltrú- ar ríkisstjórnarinnar telja sambærilega þessum samningi. Þeir eru einungis til tíu ára með möguleika á tíu ára framlengingu. Fyrstu tíu árin þarf að greiða auðlindagjald sem nemur 1,75 prósenti af heildartekjum af raforku- sölu og eftir tíu ár 3,5 prósentum. Hefði Reykjanesbær náð sams konar samningi við HS Orku fengi bærinn 190 milljónir í auðlindagjald í stað 30. „Þetta er óneitanlega eitt af því sem er umhugsunarefni – hvort aðgangurinn að auðlindinni sé ekki býsna ódýr í þessum samningum sem hér gilda, í samanburði við það sem maður sér þarna úti,“ segir Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Óheppilegt sé að hagnaður af auðlindum Íslendinga renni úr landi án þess að við fáum sanngjarnan skerf. MAGMA GERÐI MUN VERRI SAMNINGA VESTRA SPURNING DAGSINS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.