Fréttablaðið - 22.08.2009, Síða 12
12 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Verðmerking matvöru
Flestir sem koma að
samkeppnis- og neytenda-
málum telja svokallaðar
forverðmerkingar matvöru
tímaskekkju sem leggja
ætti niður samstundis.
Framleiðendur telja hins
vegar gagnrýnina á villi-
götum og benda á sérkenni
íslenska markaðarins og
smæð hans.
Verðlagseftirlit Alþýðusambands-
ins benti á það í umsögn með nýj-
ustu verðkönnun sinni að lítill sem
enginn verðmunur væri á forverð-
merktum vörum, og tók þar sem
dæmi unna kjötvöru og osta.
Verðlagseftirlitið hefur áður
bent á hversu lítill verðmunur
forverðmerkta vara yfirleitt er,
miðað við vöru sem verðmerkt er í
hverri verslun fyrir sig. „Slík for-
verðmerking er bönnuð og haml-
ar eðlilegri verðsamkeppni“,
segir í umsögninni og bætt er við:
„Brýnt er að samkeppnisyfirvöld
tryggi að verðsamkeppni á þess-
um vörum verði með eðlilegum
hætti.“
Ekki er nema rúmt ár liðið síðan
Samkeppniseftirlitið (SE) lagðist
yfir málið og kannaði verð for-
verðmerktrar dagvöru í þrettán
matvöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu. Niðurstaða þeirrar könn-
unar var afgerandi. Verðmunur á
forverðmerktri vöru var í öllum
tilvikum mun minni en á mat- og
dagvöru sem verslanir verðmerkja
sjálfar.
Núll til sextíu prósent.
Verð á forverðmerktum vörum var
að jafnaði núll til sex prósentum
hærra í stórmörkuðum og klukku-
búðum en í lágvöruverðsverslun-
um. Allt öðru máli gegnir um
þær vörur sem matvöruverslanir
verðmerkja sjálfar en í þeim vöru-
flokkum var ekki óalgengt að verð
í stórmörkuðum og klukkubúðum
sé þrjátíu til sextíu prósentum
hærra en í lágvöruverðsverslun-
um.
Það skal tekið fram að algengt
er að afsláttur sé veittur frá hinu
leiðbeinandi verði, eins og það er
einnig kallað, í lágvöruverðsversl-
unum og var tekið tillit til þess við
gerð könnunar SE. Hins vegar er
mjög algengt í öðrum verslunum
að hið leiðbeinandi verð haldi sér
frá framleiðenda í hillur.
Miklir hagsmunir
Eins og hér sést til hliðar má
segja að forverðmerktar vörur
séu veigamiklar í neyslu venjulegs
íslensks heimilis. Hvert vægi þess-
ara vara er nákvæmlega í heildar-
flokki dagvara liggur þó ekki fyrir
en SE telur ekki óvarlegt að ætla
að tíu til fimmtán prósent af mat-
vöru sem seld er í matvöruversl-
unum sé forverðmerkt. Að gefinni
þeirri forsendu að heildarveltan á
markaðnum sé um 65 milljarðar
króna, áætlar SE að heildarvelta
forverðmerktra vara á matvöru-
markaði nemi um sjö til tíu millj-
örðum króna á ári.
Fjölmargir viðmælendur Frétta-
blaðsins telja afnám forverðmerk-
inga stórt hagsmunamál neytenda.
Við fyrstu sýn - fyrir leikmann að
minnsta kosti - liggur það fyrir.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, segir
það hafa verið skoðun Neytenda-
samtakanna um árabil að það eigi
að banna forverðmerktar vörur.
„Því fyrr sem þær verða bannað-
ar, því betra,“ segir Jóhannes sem
telur hins vegar að verðmerking
sem þessi sé ekki ólögleg en tals-
maður neytenda, Neytendastofa og
ASÍ telja að svo sé.
Gísli Tryggvason, talsmaður
neytenda, segir löngu tímabært
að stöðva forverðmerkingar á
matvöru enda sé verðmerking með
þessum hætti ekki í samræmi við
lög. Gísli tók þetta mál upp við SE
í apríl 2006. Lét hann þá skoðun
sína í ljós að málið lyti að broti á
samkeppnislögum enda hefði for-
verðmerking vöru mikil áhrif á
hegðun matvöruverslana og þar
með hagsmuni neytenda.
Stjórnsýslumál rekið af SE
Áhrínisorð Gísla virðast hafa
komið hlutunum af stað því að
könnun SE var gerð árið eftir. Í
skýrslu um málið kemur fram að
SE taldi þá ástæðu til að reka sér-
stakt stjórnsýslumál til að kanna
hvort samkeppnislög væru brotin
með verðmerkingum af þessu tagi
- máli sem nú hefur verið hleypt
af stokkunum og er langt komið.
Stjórnsýslumálið beinist að smá-
söluverslunum og hópi framleið-
enda og birgja í kjötframleiðslu og
miðar að því að leiða í ljós hvort
samkeppnislög hafi verið brotin.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir að
ekki sé hægt að fullyrða neitt um
það, en að rannsókn stofnunarinn-
ar miðist við þá spurningu. Páll
segir að niðurstöður rannsóknar
SE frá því í fyrra hafi leitt í ljós
að verðmerkingarnar, og þau sam-
skipti sem tengjast þeim, kynnu
að fela í sér aðgerðir sem ganga
gegn banni við samráði fyrirtækja
eða misnotkun á markaðsráðandi
stöðu. „Könnunin gefur til kynna
að þessar forverðmerkingar tak-
marki samkeppni því að verðmun-
ur á þessum vörum milli verslana
er margfalt minni en eðlislíkra
vara, sem ekki eru forverðmerkt-
ar.“
Á villigötum?
Viðmælendur Fréttablaðsins vildu
margir meina að ástæðan fyrir
forverðmerkingum á Íslandi væru
tæknilegs eðlis. Framleiðendur
ráði einfaldlega ekki yfir tækni
til að vigta og pakka vöru eftir
nákvæmri þyngd og því sé þeim
nauðugur einn kostur.
Steinþór Skúlason, forstjóri
Sláturfélags Suðurlands, segir
þetta rétt upp að vissu marki.
„Það er hægt að breyta þessu en
hér eru litlir framleiðendur sem
ráða ekki við að kaupa dýrasta
vélbúnað sem gerir þetta mögu-
legt. Verði okkur gert að breyta
þessu af samkeppnisyfirvöldum
óttast ég að framleiðendum fækki,
með neikvæðum áhrifum á sam-
keppni.“
Hann segir málið varða tólf til
fimmtán gróin fyrirtæki í mat-
vælaiðnaði og fjölda smærri fram-
leiðenda. Hann sér fyrir sér að
einhver þeirra myndu ekki þola þá
byltingu sem virðist liggja í loft-
inu og einhver þeirra muni týna
tölunni. Hann segir að menn verði
að stíga varlega til jarðar, enda sé
umræðan um verðmerkingar á
villigötum. „Það er gríðarleg sam-
keppni á milli verslana eins og sjá
má í auglýsingum alla daga,“ segir
Steinþór.
Frá því að könnun SE var gerð
í maí 2008 hefur mikið vatn
runnið til sjávar, eins og öllum
er kunnugt. Umhverfi íslenskra
neytenda hefur gjörbreyst og
neytendamál öllum almenningi
hugleikin. Jafnframt er það talið
að fátt sé mikilvægara en aðhald
samkeppnisyfirvalda á krepputím-
um til að árangur náist við að rétta
skútuna af. Það er því forvitnilegt
að sjá hver niðurstaða SE verður,
enda hafa allir sem að samkeppn-
is- og neytendamálum koma haft
augun á þessu máli um langt skeið.
Máli sem kannski hefði ekki verið
aðkallandi fyrir litlu síðan - en er
það vissulega nú um stundir.
Deilt um verðmerkingar
Þær matvörur sem um ræðir eru
aðallega unnar kjötvörur, svo
sem álegg, kryddlegið kjöt og
pylsur, auk ákveðinna tegunda af
ostum. Jafnframt er eitthvað um
að lítt unnar kjötvörur (aðallega
frystar), fiskmeti, egg og pakkað
grænmeti og ávextir sé verðmerkt
með leiðbeinandi smásöluverði.
Verðmerking þessara vara fer
þannig fram að um leið og þær
eru vigtaðar og þeim pakkað eru
þær verðmerktar í samræmi við
þyngd pakkninganna. Vörur sem
verðmerktar eru á þennan hátt eru
því boðnar á sama smásöluverði
í öllum verslunum nema verslan-
irnar auglýsi sjálfar afslátt frá hinu
leiðbeinandi verði.
Ljóst er að umfang forverðmerk-
inga hér á landi er umtalsvert.
Einnig er ljóst að það eru ekki
einungis vörur sem eru mismun-
andi að þyngd (eins og unnið kjöt)
sem eru forverðmerktar af birgjum.
Vörur eins og til dæmis álegg, kæfa,
pylsur og tilbúnir réttir þar sem
enginn munur er á þyngd pakkn-
inga eru nánast án undantekninga
forverðmerktar af birgjum.
FORVERÐMERKTAR MATVÖRUR
FORMERKT Vörur sem verðmerktar eru af framleiðendum eru boðnar á sama verði
í öllum matvöruverslunum, nema sérstaklega sé veittur afsláttur af þeim.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRÉTTASKÝRING
SVAVAR HÁVARÐSSON
svavar@frettabladid.is
Íslendingi stendur til boða að stunda doktorsnám
við Institute of Physical Chemistry, National Center
for Scientific Research, í Aþenu.
Doktorsneminn mun verða skráður í doktorsnám við
Háskóla Íslands en stunda nær allt sitt nám í Aþenu
með styrk frá Grikklandi. Umsækjendur skulu hafa
lokið MS-prófi í efnafræði, lyfjavísindum, líffræði,
eða skyldum greinum.
Frekari upplýsingar má nálgast á:
www.lyfjafraedideild.hi.is og hjá Þorsteini Loftssyni
prófessor í síma 525 4464 eða með tölvupósti á
thorstlo@hi.is.
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ
Vilt þú stunda
doktorsnám í Aþenu?
ÁSTRALÍA, AP Bílaumferð virð-
ist hafa afar slæm áhrif á kynlíf
trjáfroska sem búa í námunda við
borgir og bæi í Ástralíu. Ný rann-
sókn hefur leitt í ljós að umferðar-
niðurinn drekkir lostafullu kvakki
karlfroskana, með hörmulegum
afleiðingum.
Kraftmikið kvakk er helsta
vopn karlfroska í baráttunni um
að ná sér í maka, en nú virðist
umferðarniðurinn hafa þau áhrif
að hljóðið berst til færri mögu-
legra maka. Því fækkar froskum
jafnt og þétt.
Froskarnir virðast þó forherð-
ast í baráttu við mannskepnuna,
og hafa einhverjar tegundir tekið
upp á því að kvakka í hærri tíðni
til að yfirgnæfa niðinn. - bj
Ástralskir trjáfroskar í vanda:
Bílaumferð eyði-
leggur kynlífið
KVAKKA Einhverjir froskar eru farnir
að kvakka í hærri tíðni til að yfirgnæfa
umferðarniðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP