Fréttablaðið - 22.08.2009, Side 22
22 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
UMRÆÐAN
Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson skrifar
um dómsmál
Frá 2. október 2008 til
18. júní 2009 gengu sjö
dómar í Hæstarétti
Íslands og Héraðsdómi
Reykjavíkur þar sem
Birtíngur útgáfufélag
ehf., eða blaðamenn
félagsins og tengdra
félaga, voru dæmdir til
greiðslu miskabóta fyrir ærumeið-
ingar, brot gegn friðhelgi einkalífs
eða ólögmætar myndbirtingar. Hér
er því um að ræða sjö dóma fyrir
hegningarlagabrot á tæplega níu
mánaða tímabili. Dómarnir eru
fleiri, en hér er látið nægja að fjalla
um þau mál sem varða skjólstæð-
inga undirritaðs lögmanns. Hér ber
að halda því til haga að fjöldi vand-
aðra blaðamanna starfar hjá Birt-
íngi og er í grein þessari ekki verið
að fjalla um þeirra störf.
Er við dómstóla að sakast?
Eitt þessara mála er svokallað
,,Vikumál“ þar sem ummæli sem
viðhöfð voru um nafngreindan ein-
stakling voru dæmd dauð og ómerk
og blaðamaður Birtíngs dæmdur til
greiðslu miskabóta. Nú hafa Birt-
íngur og viðkomandi blaðamað-
ur ákveðið að skjóta niðurstöðu
Hæstaréttar til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu í Strassborg. Kæran
til Strassborgar er sett fram með
tilstyrk Blaðamannafélags Íslands,
sem hefur meðal annars fært þau
rök fyrir stuðningi sínum að íslensk-
ir dómstólar hafi ekki sýnt fjöl-
miðlum nægan skilning í dómsmál-
um þar sem reynir á rétt fjölmiðla
til að taka við og miðla áfram upp-
lýsingum um umdeild þjóðfélags-
málefni. Er það rétt? Ef svo er þá
hlýtur það að vera umhugsunarefni
af hverju sífellt er verið að dæma
blaðamenn Birtíngs og tengdra
félaga fyrir meiðyrði en ekki aðra.
Er ekki við einhvern annan að sak-
ast en íslenska dómstóla?
Sjö dómar á níu mánuðum
Þegar ofangreindir sjö dómar þar
sem Birtíngur eða blaðamenn
félagsins og tengdra félaga hafa
verið dæmdir fyrir hegningarlaga-
brot eru skoðaðir kemur í ljós að
þar er í fæstum tilvikum verið að
taka á mikilvægum þjóðfélagsmál-
um. Þvert á móti. Í byrjun október
2008 voru ummæli sem blaðamað-
ur Séð og heyrt viðhafði þess efnis
að tiltekinn einstaklingur borgaði
ekki skuldirnar sínar og stæði ekki
við gerða samninga dæmd dauð og
ómerk í Hæstarétti. Í nóvember
2008 voru Birtíngur og blaðamað-
ur Séð og heyrt dæmdir til refsing-
ar í héraði fyrir að stela myndum
af vefsvæði. Í byrjun mars 2009
var blaðamaður Vikunnar dæmdur
fyrir meiðyrði í Hæstarétti fyrir
ásakanir í garð tiltekins aðila um
refsiverða háttsemi sem enginn
fótur var fyrir. Um miðjan mars
2009 var Birtíngur aftur dæmdur
til refsingar í héraði vegna mynda-
stuldar af vefsvæði. Í lok apríl 2009
voru tveir blaðamenn Birtings, sem
nú ritstýra DV og Nýju lífi, dæmd-
ir í Hæstarétti fyrir meiðyrði og
gert að greiða miskabætur vegna
ásakana í garð nafngreinds aðila
um refsiverða háttsemi. Í byrjun
júní 2009 var fyrrverandi blaða-
maður DV dæmdur í héraði fyrir
ærumeiðingar og gróft brot gegn
friðhelgi einkalífs með
því að hafa í umfjöllun
sinni í DV skírskotað á
ýkjukenndan og eink-
ar óviðfelldinn hátt til
andlegra veikinda nafn-
greinds einstaklings
eins og segir í niður-
stöðu dómsins. Um miðj-
an júní 2009 var síðan
sami blaðamaður aftur
dæmdur í héraði fyrir
meiðyrði og brot gegn
friðhelgi einkalífs með
því að hafa ásakað nafn-
greindan einstakling um
refsiverða háttsemi sem og fyrir að
hafa fjallað um viðkvæm persónu-
leg málefni mannsins í opnugrein-
um í DV.
Þrettán ára fórnarlamb Birtíngs
Og enn ný höggva blaðamenn Birt-
íngs í sama knérunn, en nýjasta
fórnarlamb útgáfunnar er þrettán
ára gömul stúlka og fjölskylda henn-
ar, en í 30. tbl. Vikunnar 2009, sem
kom út 30. júlí sl., er dróttað að æru
stúlkunnar og föður hennar og brot-
ið gegn friðhelgi einkalífs þeirra. Í
umfjölluninni veltir Vikan sér upp
úr viðkvæmum og persónulegum
málefnum stúlkunnar s.s. ættleið-
ingu, andláti móður hennar, meintri
andlegri vanlíðan, kallar stúlkuna
Öskubusku og birtir af henni þrjár
myndir án hennar samþykkis. Faðir
stúlkunnar er síðan sakaður um
barnsrán, vörslur á barnaklámi,
misnotkun á börnum og andlegt
líkamlegt ofbeldi gagnvart dóttur
sinni og látinni fyrrverandi eigin-
konu. Að auki fjallar Vikan á óvið-
feldinn hátt um viðkvæm persónu-
leg málefni mannsins, s.s. skilnað
hans og fyrrverandi eiginkonu hans,
forræðisdeilu við fjölskyldu henn-
ar, ættleiðingu dóttur hans o.fl. Það
er skemmst frá því að segja fram-
angreindar ásakanir eru upplognar
eins og blaðamenn Birtíngs hefðu
komist að hefðu þeir hirt um að hafa
samband við fólkið og fá viðbrögð
við fréttinni.
Hér gerast blaðamenn Birtíngs
enn á ný sekir um ærumeiðandi
aðdróttanir um alvarlega refsiverða
háttsemi og gróf brot gegn friðhelgi
einkalífs saklauss fólks. Hver eru
hin umdeildu og mikilvægu þjóðfé-
lagsmálefni sem Vikan er að fjalla
um hér? Er ekki rétt að Birtíngur
og Blaðamannafélag Íslands svari
þeirri spurningu áður en lagt er af
stað til Strassborgar.
Höfundur er
héraðsdómslögmaður.
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til
að senda línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar og
bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið
er á móti efni á netfanginu greinar@
frettabladid.is . Ritstjórn ákveður hvort
efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða
í báðum miðlunum að hluta eða í
heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga
og til að stytta efni.
VILHJÁLMUR H.
VILHJÁLMSSON
Síbrotamenn á sviði
ærumeiðinga
Ef svo er þá hlýtur það að vera
umhugsunarefni fyrir Birtíng
og Blaðamannafélag íslands
af hverju það er sífellt verið
að dæma blaðamenn Birtíngs
og tengdra félaga fyrir meið-
yrði, en ekki aðra fjölmiðla og
blaðamenn þeirra.
Upplýsingar veitir Steinarr Logi í síma 842 0402, netfangsteinarr@northbygg.is
Fiskislóð 31 - Til leigu
Vel staðsett atvinnuhúsnæði neðst á Fiskislóð við sjávarsíðuna. Til afhendingar í október og nóvember.
Húsið er á tveimur hæðum með sex stigagöngum. Á efstu hæð eru inndregnar svalir með glæsilegum
útsýnissvölum. Eignarhlutar eru 24. Hægt er að leigja einn eða fl eiri eignarhluta.
• Rýmin eru í þremur stærðum: 110 fm, 160 fm og 210 fm.
• Fjölbreyttir notkunarmöguleikar.
• Leigjendur geta komið að hönnun innra skipulags.
• Húsnæðið afhendist tilbúið sem opið rými.
• Hægt er að stúka rýmin niður í skrifstofur og fundarherbergi allt eftir óskum leigutaka.
• Frábær staðsetning.
• Hagstæð leiga.
• Einstakt útsýni.
• Jafnrétti er í hávegum haft í öllum störfum Orkuveitu Reykjavíkur. www.or.is
Orkuveita Reykjavíkur auglýsir styrk til kvenna sem stunda eða
hyggjast hefja nám í verkfræði eða tæknifræði, greinum sem
konur eru í miklum minni hluta í og tengjast kjarnastarfsemi
Orkuveitunnar. Einungis nám til fyrstu próf-
gráðu í greininni er styrkhæft. Styrkþegum
býðst sumarstarf hjá Orkuveitu Reykjavíkur
meðan á námi stendur.
Umsóknum ber að skila með rafrænum hætti á vef Orkuveitu Reykjavíkur, www.or.is/styrkir fyrir 14. september.
Nauðsynlegt er að upplýsingar um náms- og starfsferil, ásamt staðfestingu á skráningu í nám, fylgi með. Nánari
upplýsingar um úthlutun styrksins eru á vef OR.
Orkuveita Reykjavíkur er jafnréttismiðað fyrirtæki sem hefur markvisst unnið að því að fjölga konum á þeim starfssviðum þar sem
þær hafa verið í minni hluta. Konur eru nú innan við þriðjungur starfsmanna og árangurinn af jafnréttisstarfi innan fyrirtækisins hefur
verið góður þar sem hlutfall kvenna hefur aukist á síðustu árum.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
69
65
0
8.
2
0
0
8
Styrkur til náms
í verkfræði
eða tæknifræði
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki