Fréttablaðið - 22.08.2009, Síða 23

Fréttablaðið - 22.08.2009, Síða 23
LAUGARDAGUR 22. ágúst 2009 23 UMRÆÐAN Runólfur Þórhallsson skrifar um löggæslumál Sumarið 1988 réð ég mig í vinnu hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík sem sumarafleysinga- maður. Ég var þá lögreglumaður nr. 244. Eyjólfur heitinn Jónsson sundkappi var lögreglumaður nr. 9. Þetta þýddi að almennir lög- reglumenn voru rúmlega 200. Í Kópavoginum starfaði RLR, Rann- sóknarlögregla ríkisins. Þar voru 42 stöðugildi rannsóknarlögreglu- manna árið 1990. Á lögreglustöð- inni í Kópavogi unnu tugir lög- reglumanna á vöktum við almenna löggæslu, sömu sögu var að segja um lögregluna í Hafnarfirði. Á þessum árum voru fjórar vaktir með rúmlega 30 lögreglumönnum á hverri vakt í Reykjavík einni. Til viðbótar þeim liðsstyrk voru lög- reglumenn á hverfisstöð í Árbæn- um, í miðbænum og Seltjarnarnesi. Umferðardeildin átti 10 lögreglu- bifhjól auk lögreglubíla. Einnig voru gerðir út 4 þjóðvegaeftirlits- bílar á þessum árum. Hátt í 30 lög- reglumenn störfuðu þar á vöktum. Ekki þarf að fjölyrða um stöðuna í dag. Fjölmiðlar hafa greint frá því að allt niður í 13 lögreglumenn hafi verið á vakt á svæði sem spann- ar frá Hvalfirði út fyrir álverið í Straumsvík. Starfsumhverfi þess- ara fáu lögreglumanna hefur líka gjörbreyst. Auk þess sem glæpa- heimar eru orðnir skipulagð- ari með erlendum áhrifum hefur einnig mikil harka færst í vöxt og lögreglumenn verða æ oftar fyrir árásum. Íbúafjöldi á höfuðborgar- svæðinu hefur einnig dafnað vel. Krefjandi starf Frá árinu 1991 hefur löggjafar- valdið unnið ötullega að því að lögleiða miklar réttarbætur fyrir afbrotamenn. Réttarstaða þeirra hefur með mörgum lagabreyting- um styrkst verulega og hefur það leitt til þess m.a. að rannsóknir brotamála eru mun vandaðri en áður fyrr. Að sama skapi eru þær mun kostnaðarsamari. Þær taka lengri tíma, öflun og meðhöndl- un sönnunargagna verður sífellt flóknari, meiri mannskap og tæki þarf til að fullrannsaka mál þannig að þau verði boðleg fyrir ákæru- valdið. Þetta er af hinu góða fyrir réttarríkið en hefði eðlilega átt að verða til þess að lögreglan hefði úr meiri mannafla, tækjakosti og fjárveitingum að spila. Starf- ið, útköllin og kröfur um sér- og fagþekkingu, skilvirkni og margt fleira hefur gjörbreyst á fáum árum. Það sem hefur ekki breyst er sú staðreynd að almennir lög- reglumenn sinna einu mest krefj- andi starfi sem þekkist. Helgarnæturvakt almenns lög- reglumanns getur auðveldlega hljómað einhvern veginn svona: Umferðarslys, 5 útköll vegna slags- mála í miðbænum þar sem fúkyrði, hótanir og ögranir dynja látlaust á lögreglumönnum af ofurölvi og útúrdópuðum einstaklingum, 2 hávaðaköll, annað þeirra leysist upp í slagsmál við ofurölvi hús- ráðanda, gestirnir taka slagsmál- in upp á síma og birta á youtube = Lögguofbeldi. En lögreglumað- urinn má ekki slasa viðkomandi, það gæti kostað hann starfið, hann fékk kennslu í Lögregluskólanum en hefur ekki fengið neina við- haldskennslu, þjálfun né æfingar í handtökuaðferðum síðan, hann þarf að hugsa um meðalhófsregl- una, að beita ekki meira valdi en þörf er á hverju sinni. Mótað- ili lögreglumannsins hins vegar gerir oft á tíðum allt sem í hans valdi stendur til að sýna mótþróa. Því er það öruggara fyrir lög- reglumennina og mótaðilann að sem flestir komi að handtökunni, það minnkar líkurnar á meiðslum. Þetta lítur ekkert vel út á youtube. Lögreglumaðurinn er að reyna að taka tök sem honum voru kennd, oftast nær kemst hann að því að þau duga ekki og því er gripið til annarra ráða. Þekkingar- og skiln- ingsleysi á þessum staðreyndum er lögreglumönnum oft á tíðum þung- bært og eina ráðið til þess að skilja hvað við er að eiga er að benda fólki á að prófa sjálft að taka einhvern höndum, án þess að meiða hann né beita fantabrögðum, á meðan mótaðilinn er ekki bundinn af neinum leik- reglum. Gjörið svo vel en farið varlega. Löggæsla ein af grunn- stoðunum Löggæsla í dag er verk- efni sem þarf að leysa sómasamlega af hendi. Ef örygg- istilfinningu fólks er misboðið og það fær á tilfinninguna að rétt- arríkið virki ekki sem skyldi þá eru undirstöður þjóðfélagsins okkar við það að bresta. Það gera allir kröfu um réttlæti. Það hafa allir réttlætistilfinningu, mismunandi sterka þó. Löggæsla á margan hátt tengist réttlæti órjúfan- legum böndum. Hæfir lög- reglumenn, sem búa við gott starfsumhverfi, góð launakjör, öflugt starfs- menntakerfi og skilnings- ríkt fjárveitingavald, eru einkar heppilegir og verð- ugir fulltrúar réttlætis. Draumurinn um norrænt velferðarsamfélag sem Jóhanna og Steingrímur vilja reisa úr rúst- um ofurfrjálshyggjunnar er best byggður upp með réttlætið að leið- arljósi. Sterkasta undirstaða þess samfélags sem við viljum í fram- tíðinni er því öflug löggæsla, vel skipulögð, skipuð hæfum einstakl- ingum sem vinna í þágu borgar- anna. Í dag standa embættismenn, stjórnmálamenn og yfirmenn lög- reglu frammi fyrir einstöku tæki- færi. Þeim gefst tækifæri til þess að taka Jóhönnu og Steingrím á orðinu og búa til öfluga stofn- un. Lögregluna á Íslandi. Nor- ræna velferðarlögreglu. Hljóm- ar vel, ekki satt? Einu tækifæri hefur þegar verið klúðrað, nú ber okkur skylda til að vanda mjög vel til verka og byggja lögregl- una upp frá grunni. Byrja neðan frá að þessu sinni. Tryggja það að löggæslan á götunni sé örugglega það sem mestu máli skiptir fyrir land og þjóð. Ekki að finna pláss í skipuriti fyrir alla yfirmennina. Það eru almennir lögreglumenn sem tryggja öryggið og réttlæt- ið. Öflugur lögregluskóli sem getur boðið umsækjendum sínum upp á krefjandi en vel launað starf laðar að sér hæfa einstaklinga. Öflug „Lögregla Íslands“ getur boðið þessum hæfu einstaklingum upp á fjölbreytt og krefjandi starf svo lengi sem yfirmenn hafa í huga að þeirra hlutverk er að tryggja að starfsumhverfið sé í lagi. Þessi stofnun leggur grunninn að því norræna velferðarsamfélagi sem ég vona innilega að hafi ekki verið innantómt kosningaloforð. Höfundur er lögregluvarðstjóri. Norræn velferðarlögregla RUNÓLFUR ÞÓR- HALLSSON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.