Fréttablaðið - 22.08.2009, Qupperneq 24
24 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
UMRÆÐAN
Þórdís Elva Þor-
valdsdóttir Bach-
mann skrifar um
kynbundið ofbeldi
Í maí sl. var íslensk kona blekkt til kyn-
maka þar sem hinn
brotlegi læddist upp
í rúm til hennar, not-
færði sér að mökin
fóru fram í myrkri og
að konan skyldi telja
hann vera annan mann sem
hún hafði áður átt kynferðis-
legt samneyti við. Samkvæmt
lýsingu brotaþolans voru mökin
búin að standa yfir í nokkrar
mínútur þegar maðurinn sneri
sér að henni og blasti þá við
henni „glott og ekki sama and-
litið“ eins og hún orðaði það í
skýrslu fyrir dómi.
Eins og gefur að skilja var
þetta gríðarlegt áfall fyrir
konuna, sem lét kalla lögreglu
á staðinn, leitaði til Neyðarmót-
töku vegna nauðgana og lagði í
kjölfarið fram kæru. Þann 21.
júlí sl. var maðurinn sakfelldur
og hlaut hann sex mánaða dóm
fyrir blygðunarsemisbrot (brot
gegn 209. gr. hegningarlag-
anna) þrátt fyrir að konan hefði
fyrst og fremst kært manninn
fyrir nauðgun, en blygðunar-
semisbrot til vara. Þunga-
miðjan í nauðgun er brot gegn
kynfrelsi og sjálfsákvörðunar-
rétti brotaþolans, en það gefur
augaleið að brotaþoli sem er
blekktur til kynmaka er svipt-
ur tækifærinu til að nýta sjálfs-
ákvörðunarrétt sinn sem skyldi.
Kynmök án upplýsts samþykk-
is beggja aðila hljóta að teljast
mun alvarlegra mál en blygð-
unarsemisbrot. Staðan hefur
þó ekki ávallt verið svona.
Fram til vorsins 2007 voru
ákvæði í íslenskum lögum sem
vernduðu fólk gegn kynferðis-
brotum sem framin voru undir
formerkjum sams konar svika
og í áðurnefndu máli. Þetta
ákvæði var að finna í 199. gr.
hegningarlaganna, en refsi-
næmi háttseminnar byggðist
á því að samþykki til kynmak-
anna er ekki fengið með eðlileg-
um hætti heldur með blekking-
um. Hámarksrefsing við þessu
broti var sex ára fangelsi. Tveir
dómar hafa fallið hérlendis þar
sem reyndi á þetta ákvæði. Í
báðum málunum, H 1943:167
og H 1996:3030, höfðu ákærðu
samræði við konur, sem þeir
komu að þar sem þær lágu sof-
andi í rúmi, önnur þeirra með
unnusta sinn sér við hlið, en
hin í eigin hjónarúmi. Höfðu
ákærðu samræði við konurn-
ar, sem héldu til að byrja með
að þær væru að hafa samræði
við maka sína. Málið frá því í
maí síðastliðnum er því ekki
einsdæmi og eflaust eru brot
af þessu tagi fram-
in reglulega án þess
að þau komi til kasta
yfirvalda. Hins vegar
kom í ljós að alvarleg-
ur missir er að blekk-
ingarákvæðinu úr
kynferðisbrotakafla
hegningarlaganna.
V o r i ð 2 0 0 7
v o r u b r e y t i n g -
ar á kynferðis -
brotakaflanum sam-
þykktar á Alþingi.
Í drögum að nýja
frumvarpinu segir
um áðurnefnt blekkingar-
ákvæði: „Svo sem sjá má er
ákvæði þetta mjög sérkenni-
legt og ekki mjög raunhæft að
á það reyni.“ Rökstuðningur-
inn fyrir að afnema blekkingar-
ákvæðið var að helst gæti reynt
á það ef brotaþolinn væri geð-
sjúkur, þroskaheftur eða sof-
andi. Þá myndi 2. málsgrein
194. greinar hegningarlaganna
fullnægja refsinæmisskilyrð-
um, en þar segir að það teljist
einnig nauðgun að notfæra sér
geðsjúkdóm eða aðra andlega
fötlun manns til þess að hafa
við hann samræði eða önnur
kynferðismök, eða þannig er
ástatt um hann að öðru leyti
að hann getur ekki spornað
við verknaðinum eða skilið
þýðingu hans. Hámarksrefs-
ing við slíku nauðgunarbroti
er sextán ára fangelsisvist, en
refsing við blygðunarsemis-
broti er sex mánaða fangelsis-
vist ef brotið er smávægilegt,
sem það virðist af einhverjum
ástæðum hafa talist í umræddu
máli. Dómararnir féllust ekki
á að brotið félli undir 2. máls-
grein 194. greinar, og var þetta
að vissu leyti prófmál á nýju
lögin. Í ljós kom að þau vernda
ekki brotaþola sem blekktir
eru með áðurnefndum hætti.
Brottnám blekkingarákvæð-
isins hjó skarð í réttarstöðu
brotaþola sem verða fyrir jafn
mannskemmandi lífsreynslu og
áðurnefnd kona. Þótt yfirvöld-
um hafi þótt bæði sérkennilegt
og óraunhæft að fólk geti verið
blekkt til kynmaka blasir við að
slíkt á sér þó stað. Mikilvægt
er að það endurspeglist í laga-
bálkinum, svo hægt sé að dæma
fyrir slík brot með viðeigandi
hætti.
Höfundur er áhugakona um
aðgerðir gegn kynbundnu
ofbeldi.
Blygðunarsemi og
nauðganir
Skuldir heimilanna
UMRÆÐAN
Kjartan Broddi Bragason skrif-
ar um skuldir heimilanna
Fyrir einhverjum vikum varpaði ég fram nokkrum spurningum
til Seðlabanka Íslands um skulda-
stöðu innlendra heimila. Ein af
þessum spurningum var hver staða
þeirra væri í alþjóðlegu samhengi.
Einhverjar tafir hafa orðið á svör-
um hjá þessari ágætu stofnun. Ég
hef því ákveðið að birta þær upplýs-
ingar sem ég hef getað aflað mér í
gegnum ýmsa erlenda gagnagrunna
á einni kvöldstund eða tveim. Rétt
er að árétta að undirliggjandi gögn
eru frá árabilinu 2003–2009.
Umfjöllunin er alls ekki tæm-
andi og í mörgum tilfellum eru þær
grunntölur sem notaðar eru til að
búa til þær myndir sem hér koma
fram lesnar af gröfum og gefa því
aðeins mjög grófa mynd af undir-
liggjandi frumheimildum og (jafn-
vel) þeim skilgreiningum sem á bak
við þær geta legið. Þessar upplýsing-
ar gefa hins vegar vísbendingu um
raunskuldastöðu innlendra heimila
í alþjóðlegu samhengi.
Það sem hagfræðingar almennt
skoða þegar skuldastaða heimil-
anna er rannsökuð eru einkum þrír
þættir:
■ Skuldir sem hlutfall af ráðstöf-
unartekjum
■ Hve hátt hlutfall ráðstöfun-
artekna er notað til að greiða
afborganir og vexti á ári
■ Skuldir sem hlutfall af eign-
um (fasta- og lausafjármunum
ásamt fjármálalegum eignum)
Almennt má segja um þessa þætti
að þeim mun lægri sem skuldirnar
eru sem hlutfall af ráðstöfunartekj-
um, þeim mun betri er efnahag-
ur heimilanna og þeim mun betur
eru þau í stakk búin til að takast á
við fjárhagsleg áföll. Annar þáttur-
inn segir síðan eitthvað til um sam-
hengið á milli fjölda afborgana og
vaxtastigs – þar sem greiðslubyrði
heimilanna er samansett úr annars
vegar afborgunum og hins vegar
vaxtagreiðslum þarf – í akademískri
rannsókn – að skoða bæði lánstíma,
vaxtastig lánanna og aldurssam-
setningu þjóðarinnar ásamt hlutfalli
heimila sem eru fasteignaeigendur.
Ég mun ekki fjalla um þriðja þáttinn
í þessum pistli en tel að alþjóðlegur
samanburður á þeim þætti sé mjög
ólíklega íslenskum heimilum í hag.
Fyrri myndin segir okkur að inn-
lend heimili skuldi að meðaltali ríf-
lega tvö- til þrefalt meira en önnur
(vestræn) heimili sem hlutfall af
ráðstöfunartekjum eða sem svarar
um fjórföldum ráðstöfunartekjum.
Seinni myndin segir okkur að
greiðslubyrði innlendra heimila
sé um það bil tvöfalt meiri en hjá
öðrum (vestrænum) þjóðum eða
að um 30–35% af ráðstöfunartekj-
um fer í að þjónusta þær skuldir
sem hvíla á heimilum landsins að
meðaltali. Sé tekið tillit til að vext-
ir eru hærri hér en víðast hvar
annars staðar verður myndin enn
svartari (gefið að lánstími sé álík-
ur). Lítill hluti greiðslnanna fer þá
í að borga niður höfuðstól lánsins
en yfirgnæfandi hlutfall af heildar-
greiðslubyrðinni fer í vaxtagreiðsl-
ur. Eignamyndun er því mun seinna
á ferðinni.
Innlend heimili geta ekki stað-
ið undir slíkri skuldsetningu í ljósi
þess að kaupmáttur hefur dregist
hratt saman og ekkert bendir til að
hann muni vaxa svo neinu nemi á
allra næstu árum. Þetta getur ekki
verið viðvarandi ástand nema ef
við ætlum að dragast langt aftur
úr neyslumynstri annarra (vest-
rænna) þjóða. Ungt og efnilegt fólk
mun hins vegar ekki sætta sig við
slíkt nema hér rísi „Berlínarmúr“
umhverfis landið. Stjórnvöld – þó
vinstrisinnuð séu – hafa ólíklega
áhuga á slíku ástandi.
Eigi að afstýra fólksflótta, fjöl-
dagjaldþrotum og meðfylgandi
félagslegum vandamálum sem óhjá-
kvæmilega fylgja slíkum breyt-
ingum þarf að laga skuldastöðu
að greiðslugetu heimilanna. Í því
samhengi er aðeins um eina raun-
hæfa leið að ræða – lífeyrissjóðir
landsmanna verða að koma að því
samningaborði. Lausnin á þessu
vandamáli krefst þess að eignir
Íbúðalánasjóðs, húsnæðis- og bíla-
skuldir í eigu bankanna og eignar-
leigufyrirtækja sem og eignir líf-
eyrissjóðanna (sem stór eigandi að
Íbúðabréfum og lífeyrissjóðslánum)
verði niðurskrifaðar um hundruð
milljarða króna. Þá mæti hugsan-
lega skoða hugmynd Sjálfstæðis-
flokksins – um skattlagningu inn-
greiðslna lífeyris – sértækt og þá
til hjálpar illa stöddum heimilum
eða hugmynd Framsóknarflokksins
um flatan 20% niðurskurð. Aðkoma
lífeyrissjóðanna verður hins vegar
ekki umflúin.
Staða heimilanna verður ekki
leyst sem einhver afgangsstærð í
því efnahagsástandi sem nú ríkir.
Það er nú einu sinni svo að almenn
eftirspurn eftir vöru og þjónustu –
grunnforsenda í rekstri allra fyr-
irtækja og þar með atvinnustigi á
landinu – er að miklu leyti háð fjár-
hagslega heilbrigðum heimilum.
Höfundur er hagfræðingur.
Heimildir: OECD, IMF, Seðla-
banki Evrópu, Seðlabanki Banda-
ríkjanna, Monthly Bulletin ECB
– apríl 2009, Seðlabanki Íslands,
Seðlabankar Norðurlandanna
ásamt erlendum tímarits- og
blaðagreinum. Mat höfundar á
einstökum þáttum.
ÞÓRDÍS ELVA ÞORVALDS-
DÓTTIR BACHMANN
Brottnám blekkingarákvæð-
isins hjó skarð í réttarstöðu
brotaþola sem verða fyrir
jafn mannskemmandi lífs-
reynslu og áðurnefnd kona.
Ísland
USA
Evru-
svæði
0% 5%
10%
15%
20%
25%
30%
Greiðslubyrði á ári í % af
ráðstöfunartekjum
16%
32%
14%
Skuldir sem hlutfall af
ráðstöfunartekjum
Ísland
USA
Evru-
svæði
0%
50%
100%
150%
200%
250%
300%
170%
390%
130%
350%
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
auglýsir innritunardaga
Innritun í Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
verður í Breiðholtsskóla miðvikudag 26. og
fi mmtudag 27. ágúst, kl.17 - 19 báða dagana.
ATH! Notið ekki aðalinngang heldur inngang að
íþróttahúsi skólans.
Skólastjóri
www.or.is
Orkuveita Reykjavíkur auglýsir
styrk til kvenna sem stunda
eða hyggjast hefja nám í einni
af eftirfarandi greinum: Vélfræði/vélstjórnun, rafvirkjun, vél-
virkjun, múraraiðn eða pípulögnum. Styrkþegum býðst sumar-
starf hjá Orkuveitu Reykjavíkur meðan á námi stendur.
Umsóknum ber að skila með rafrænum hætti á vef Orkuveitu Reykjavíkur, www.or.is/styrkir fyrir 14. september.
Nauðsynlegt er að upplýsingar um náms- og starfsferil ásamt staðfestingu á skráningu í nám fylgi með. Nánari
upplýsingar um úthlutun styrksins eru á vef OR.
Orkuveita Reykjavíkur er jafnréttismiðað fyrirtæki sem hefur markvisst unnið að því að fjölga konum á þeim starfssviðum þar sem
þær hafa verið í minni hluta. Konur eru nú innan við þriðjungur starfsmanna og árangurinn af jafnréttisstarfi innan fyrirtækisins
hefur verið góður þar sem hlutfall kvenna hefur aukist á síðustu árum. Minnst hefur þó orðið ágengt við að fjölga konum í iðn- og
vélfræðistörfum innan fyrirtækisins.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
69
65
0
8.
2
0
0
8
Styrkur til iðnnáms
eða náms í vélfræði
(vélstjórnun)
• Jafnrétti er í hávegum haft í öllum störfum Orkuveitu Reykjavíkur.