Fréttablaðið - 22.08.2009, Qupperneq 34
MENNING 2
N
ú stendur yfir á Njálusetri sýning Péturs Halldórssonar mynd-
listarmanns. Pétur sýnir þar teikningar og lýsir þeim sem
fantasíum. Pétur stundaði nám í listaskólum á Íslandi, Eng-
landi og í Bandaríkjunum á árunum 1969 til 1987. Hann hefur
tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið einkasýningar víða
um heim. Hann er betur þekktur fyrir málverk sín þar sem hann túlkar
á stórum fleti ýmis atferli með grófum strokum á margvíslegt efni. Sýn-
ing Péturs í Njálusafni er fimmtánda einkasýning hans.
Hin síðari ár hefur Pétur meðfram myndlistinni rannsakað hina fornu
heimsmynd norrænnar menningar: baksvið Njálssögu sem Einar Pálsson
skrifaði um í bókum sínum „Rætur íslenskrar menningar“. Rannsóknir
Péturs má finna í bókinni Stærð veraldar sem er til sölu í safnbúð Njálu-
safns. Hann er því á heimaslóðum. Í náttúru heimsmynda eru faldar tákn-
myndir og tölvísi sem mikið renna inn í teikningar og málverk. Pétur neit-
ar samt að myndir hans séu goðsögulegs efnis, kallar þær fantasíur.
Sýning Péturs er í Gallerí Ormi, í Njálusafni á Hvolsvelli og stendur
út ágústmánuð.
Pétur sýnir í Ormi
Skip á sandi, ein teikninga Péturs á sýningu hans í Njálusafni á Hvolsvell.
Einleikurinn um Hellisbúann varð eftir nokkra erfiðleika ein
vinsælasta leiksýning Íslandssögunnar fyrir fáum árum. Hann
kom fótunum undir þá leikhúsfrömuði Árna Þór og Kristján Ra
og gerði Bjarna Hauk að almenningseign. Nú gefst tækifæri
á að hitta hellisbúann aftur með nýjan skrokk og nýjan texta
sem er aðlagaður okkar breyttu tímum. Sigurjón Kjartansson
bjó honum nýtt við-
mót og Jóhannes Hauk-
ur kemur í stað Bjarna.
Sýningar verða í Gamla
bíói − Íslensku óper-
unni − eins og fyrrum
en Rúnar Freyr Gíslason
leikstýrir. Frumsýning
er sett þann 3. septemb-
er en áhugasamir geta
farið á póstlista Bravó og
unnið miða á forsýning-
ar í ágúst.
Hellisbúi snýr aftur
Ekki Bjarni heldur Jóhannes
Haukur er nýr Hellisbúi.
Rut Ingólfsdóttir, tónlistarmaður
og hljómsveitarfrömuður, ákvað
í sumar að láta af störfum sem
ábyrgðarmaður Kammersveitar
Reykjavíkur sem hún hefur leitt
um áratugaskeið. Hún mun halda
áfram að koma fram sem ein helsta
stoðin í starfi sveitarinnar, líta til
með geisladiskaútgáfu hennar og
halda um söguleg gögn frá 35 ára
starfi.
Guðrún Hrund Harðardóttir
mun taka við stjórn Kammersveit-
arinnar og Una Sveinbjarnardóttir
verður konsertmeistari.
Kammersveitin var stofnuð til
að gefa hljóðfæraleikurum tæki-
færi til að kynna áhugaverð verk
fyrir tónleikagestum sem legið
hafa hjá garði í íslensku tónlistar-
lífi. Hefur sveitin ár hvert staðið
fyrir tónleikaröðum og verður svo
á komandi vetri. Þá hefur sveitin
staðið fyrir hljóðritunum til útgáfu
og eru fjórtán diskar fáanlegir
með verkum hennar.
Nýtt starfsár Kammersveitar-
innar verður brátt kynnt en vefur
sveitarinnar er www.kammer-
sveit.is
Rut víkur í Kammersveitinni
Rut Ingólfsdóttir á að baki glæsilegan feril sem stjórnandi Kammersveitar Reykjavík-
ur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Heitustu miðarnir í bænum eru ekki á afmælistónleika Ragnars
Bjarnasonar, ekki á minningartónleika Björgvins Halldórssonar
hinn 09. 09. 09 helgaða John Lennon. Nei, það er Beethoven gamli
sem er á dagskrá í beinni útsend-
ingu í Dolby Digital 5.1 þar sem
fjörutíu manna sveit mun leika fyrir
átta kvikmyndatökuvélar nokkur
hans helstu verk á sviði í Bonn dag-
ana 9.-12. september. Hér verður
útsendingin móttekin í Sambíóinu
í Kringlunni og er það áhugamönn-
um um fyrsta klassa tónlist og lif-
andi flutning einstakt tækifæri til
að heyra allar sinfóníur Beethovens
í röð.
Það er Paavo Jarvi sem stjórnar
Þýsku kammerfílharmóníunni frá
Brimum. Með móttöku merkisins
frá Beethoven-salnum í Bonn eru
Sambíóin að taka eitt skref enn
í dreifingu hágæðaflutnings um
gervihnött í beinni útsendingu en nú
er hafin sala á midi.is á óperu- og leiksýningar vetrarins í beinni.
En þeir sem vilja fá Beethoven beint í æð – fjóra daga í röð – ættu
að drífa sig og tryggja sér miða.
Bítið í Beethoven
Fantasíur á Njáluslóð-
um? Nýtt heimskerfi
eða hið gamla túlkað í
myndum?
MYNDLIST PÁLL BALDVIN
BALDVINSSON
Meistari sinfóníuformsins
– Ludwig van Beethoven.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/G
VA