Fréttablaðið - 22.08.2009, Side 51
LAUGARDAGUR 22. ágúst 2009 11
NÁMSKEIÐ TIL UNDIRBÚNINGS
PRÓFI TIL AÐ ÖÐLAST RÉTT-
INDI TIL AÐ VERA HÉRAÐS-
DÓMSLÖGMAÐUR
Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um
próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdóms-
lögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og
lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið
haustið 2009. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk
verklegrar prófraunar.
Kennslugreinar í fyrri hluta eru: Einkamálaréttar-
far, sakamálaréttarfar, fullnusturéttarfar, samning
lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjala-
gerð. Kennslugreinar í síðari hluta eru: Réttindi
og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lög-
manna og þóknun fyrir lögmannsstörf, málfl utn-
ingur og önnur störf lögmanna, svo sem samn-
ingsgerð og meðferð stjórnsýslumála. Í tengslum
við námskeiðið fer fram kynning á rekstri lög-
mannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands
og úrskurðarnefndar lögmanna. Auk kennslu í
fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst
í aðstoð við fl utning eins máls fyrir héraðsdómi.
Kennsla fer fram í kennslusal Lögmannafélags
Íslands að Álftamýri 9, 108 Reykjavík.
Stefnt er að því að kennsla í fyrri hluta fari fram
dagana 21. til 25. september og 28. september til
2. október 2009. (Tímar frá 09:15-12:00 og frá
13:15 eða 14:15-17:00 eða 18:00) Jafnframt er
stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins
verði haldin á tímabilinu 9. til 23. október 2009.
Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og
fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar.
Stefnt er að því að kennsla í síðari hluta fari fram
dagana 2. til 13. nóvember 2009.
Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrra hluta
prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lok-
ið er síðari hluta prófi .
Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er
kr. 250.000 og greiðist við skráningu. Gjald fyr-
ir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er
innifalið í námskeiðsgjaldi.
Skráning fer fram á skrifstofu Lögmannafélags
Íslands að Álftamýri 9, Reykja vík. Sími 568
5620. Fax 568 7057, en einnig er hægt að ganga
frá skráningu með tölvupósti á netfangið: hjor-
dis@lmfi .is. Við skráningu á námskeiðið þarf að
tilgreina nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúm-
er (heimasíma, vinnusíma og gsm-síma), auk net-
fangs. Við skráningu skal jafnframt leggja fram
afrit prófskírteinis eða vottorð háskóla til staðfest-
ingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi
í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi .
Frestur til að skrá sig á námskeið er til 17. sept-
ember 2009.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 20. ágúst 2009
Auglýsing um skipulag
Tillaga að aðalskipulagi Sléttuhlíðar í
Hafnarfirði.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, samþykkti á fundi sínum
þann 17. mars 2009, að auglýsa tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 fyrir Sléttuhlíð
í Hafnarfirði, skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 m.s.br.
Í breytingartillögunni felst að leiðréttur er texti varðandi
nýbyggingar á svæðinu. Tillagan gerir ráð fyrir að bæta
megi við takmörkuðum fjölda sumarhúsa innan svæðis-
ins, og er það í samræmi við ásetning Hafnarfjarðarbæjar
við gerð aðalskipulagsins og deiliskipulags fyrir sama
svæði, og var öllum sumarhúsaeigendum gerð ítarleg
grein fyrir því. Orðalag í kaflanum í Aðalskipulagi Hafnar-
fjarðar 2005 - 2025 er óljóst og hefur valdið misskilningi.
Texti gildandi aðalskipulags að “núverandi frístundabyggð
sé fest í sessi og ekki gert ráð fyrir frekari uppbyggingu”
á við að svæðið (frístundabyggðin) verði ekki stækkað frá
því sem það er í dag, og er það orðað skýrar í breytingar-
tillögunni.
Aðalskipulagið verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarð-
arbæjar, Strandgötu 6, frá 26. ágúst 2009 - 25. sept-
ember 2009. Hægt er að skoða aðalskipulagstillöguna á
vef Hafnarfjarðarbæjar. Nánari upplýsingar eru veittar á
skipulags- og byggingarsviði.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn
kostur á að gera athugasemdir við breytingarnar og skal
þeim skilað skriflega til skipulags- og byggingarsviðs
Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 9. október 2009. Þeir
sem ekki gera athugasemdir við breytingarnar teljast
samþykkir þeim.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Hafnarfjarðar 2005-2025, Ásvellir.
Bæjarráð í umboði Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, samþykkti
á fundi sínum þann 26. júlí 2007, að auglýsa tillögu að
breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 við
íþróttasvæði Hauka, Ásvelli 1, í samræmi við 18. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Breytingartillagan felur í sér að að inni á opnu svæði til
sérstakra nota merkt Í, sem er hluti bílastæðis við íþrótta-
svæði Hauka við Ásvelli 1 verði heimilt að reka bensín
sjálfsafgreiðslustöð með aðkomu frá Ásvöllum.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi Ásvalla,
íþrótta- og útivistarsvæði Hauka í Hafnarfirði.
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar, samþykkti á
fundi sínum þann 14. apríl 2009, að auglýsa til kynn-
ingar tillögu að breyttu deiliskipulagi Ásvalla, íþrótta- og
útivistarsvæði Hauka, skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Breytingin felst í að íþróttamiðstöðin verður stækkuð,
bætt verður við íþróttasal austan við núverandi sal, gerð
tengibygging að yfirbyggðri stúku að núverandi gervigras-
velli. Byggingarreitur verður 12.260 m² í stað 7000 m².
Fjölnota knattspyrnuhús sem fyrirhugað var að byggja yfir
gervigrasvöll verður flutt sunnan við völlinn og snúið þvert
á hann. Byggingarreitur að grunnfleti 13.300 m². Gerður
verður 1330 m² byggingarreitur fyrir íþróttatengda þjón-
ustu rétt við aðalaðkomu inn á svæðið. Gert verður ráð
fyrir að hægt verði að tengja núverandi íþróttamiðstöð við
knatthús og byggingu fyrir íþróttatengda starfsemi með
tengibyggingu ofan eða neðanjarðar, hámarks grunnflöt-
ur 350 m². Gert verður ráð fyrir reit fyrir þjónustu m.a.
fyrir sjálfsafgreiðslubensínstöð. Núverandi búningshús
fjarlægt eða breytt í samræmi við nýja notkun síðar. Bætt
verður inn byggingarreit fyrir pylsuvagn við innkeyrslu á
austurhluta svæðisins. Stúka sem áður var sýnd sunnan
við núverandi gervigrasvöll verður stölluð grasbrekka.
Byggingarreitur fyrir bráðabirgðastúku austan megin við
núverandi grasvöll.
Aðalskipulagið og deiliskipulagið verða til sýnis í þjón-
ustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6, frá 25. ágúst
– 22. september 2009. Nánari upplýsingar eru veittar á
skipulags- og byggingarsviði.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta við aðalskipu-
lagið eða deiliskipulagið er gefinn kostur á að gera við
þau athugasemdir, og skal þeim skilað skriflega til skipu-
lags- og byggingarsviðs Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en
6. október 2009. Þeir sem ekki gera athugasemdir teljast
samþykkir skipulaginu.
Skipulags- og byggingarsvið Hafnarfjarðar
Til leigu
Ármúli Skrifstofuhúsnæði
Um er að ræða 158,1 fm á annari hæð.
6 skrifstofur, fundarsalur, móttaka, eldhús
og sam.salerni. V-850 kr. fm.
Uppl. í síma: 893-5684.