Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.08.2009, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 22.08.2009, Qupperneq 58
MENNING 10 hlutverk Ö ll hús þarfnast viðhalds á einhverjum tíma- punkti og þarf þá að taka tillit til uppruna húsa. Magnús Skúla- son arkitekt nefndi nokkur dæmi um vel heppnuð uppgerð hús og eitt illa heppnað. „Aðalatriðið við varðveislu húsa er að þau hafi hlutverk. Þá gildir engu hvort þau hafi breytt um hlut- verk heldur skiptir einungis máli að þau hafi hlutverki að gegna,“ segir Magnús en hann valdi nokkur upp- gerð hús sem honum þykja til fyr- irmyndar og eitt sem víti til varn- aðar. „Mörg af þessum húsum eru í svokölluðum schweizer-stíl sem kom hingað til lands frá Noregi en hann barst til Noregs frá Austur- ríki og Sviss. Einkenni þessa stíls eru mikið timburskraut og útskurð- ur og mikil þakskegg,“ útskýrir hann áhugasamur. Þegar verið er að gera upp gamalt hús er að mati Magnúsar mikil vægt að leita sér upplýsinga um uppruna hússins. „Gagnlegt er að hafa gaml- ar myndir til hliðsjónar og þær má til dæmis finna á Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Árbæjar safni eða Þjóðminjasafni. Á Árbæjar safni er upplýsingastofa um viðgerðir gam- alla húsa sem fróðlegt er að heim- sækja en einnig er hægt að leita til Húsafriðunarnefndar og fá þar upplýsingar. Lýst er bæði hvernig skal vinna verkið og hvar finna má þá hluti sem þarf til þess. Loks þarf að fá iðnaðarmenn og jafnvel arki- tekta sem kunna til verka.“ Hægt er að sækja um styrki til að gera upp gömul hús en líkt og víða skortir helst fé í slíka sjóði. „Í raun vantar bara fé hjá Reykjavíkurborg sem sér um Húsverndunarsjóð og svo er ríkið með sinn Húsafriðunar- sjóð sem ég kom að um langt skeið. Styrkirnir eru í smáskömmtum,“ segir Magnús og bætir við: „Þó að aukakostnaður fylgi til dæmis vönduðum gluggum af uppruna- legri gerð er sá kostnaður hverf- andi þegar litið er til heildarkostn- aðar við að gera upp gömul hús sem og til lengri tíma. Halda þarf öllum húsum við.“ HÚSIN ÞURFA AÐ HAFA Magnús Skúlason arkitekt hefur mikla reynslu af endurgerð gam- alla húsa en hann er fyrrverandi forstöðumaður Húsafriðunar- nefndar og hefur því ákveðnar skoðanir á málum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Á Stýrimannastíg 10 gefur að líta eitt af glæsilegri schweizer- húsum borg- arinnar. „Húsið er sérstaklega gott dæmi um schweizer-stílinn og þar bjó frægur kaupmaður, Óttar Elling sen, sem stofnaði versl- unina Elling sen. Hann var fyrsti eigandinn og byggði húsið en núverandi eigandi hefur lagt stolt sitt í að gera húsið fallega upp,“ segir Magnús. Fyrsti eigandi Lindargötu 54 var Einar J. Pálsson trésmiður og var hann svokallaður forsmiður. „Hann var eins konar arkitekt, það er meira menntaður trésmiður, og kallast þeir for- smiðir. Hann sótti menntun sína til Danmerkur og teiknaði mjög fín hús eins og iðn- aðarmannahúsin við Lækjargötu og fleiri. Lindargata 54 var hans eigið hús og ber höfundarrmerki hans,“ segir Magnús. „Húsið hefur verið mjög fallega uppgert og setur svip á þennan bút af Lindargötu.” „Í Ingólfsstræti 10 er mjög glæsilegt hús frá árinu 1907 sem er blanda af schweizer-stíl og klassík. Þar hafa eigendur verið sammála um að gera húsið vel upp, í upphaf- legum litum. Þetta er mjög gott dæmi um fallega uppgert hús,“ segir Magnús ákveðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Magnús nefnir eitt dæmi um hús þar sem viðgerðin er að hans mati illa heppnuð. „Á Spítalastíg 4-6 er að finna hús frá árinu 1899 sem Lárus Pálsson smáskammtalæknir byggði. Þar eru gluggarnir fyrst og fremst til vansa og handrið á tröppum. Húsið er enn fallegt en líður fyrir gluggaumgjarðir og -gerð, bæði í kjallara og á efri hæðum, sem eru í allt öðrum stíl.“ Þingholtsstræti 29 var byggt árið 1899 og er svo- kallað katalóg- hús, og kom tilbú- ið í einingum til landsins. „Fyrsti eigandinn var Jón Magnússon, sem var þá landritari en varð síðar ráð- herra,“ útskýrir Magnús og nefnir að nýbúið sé að mála húsið í upp- haflegum litum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Húsið að Þingholtsstræti 7 er frá árinu 1880. „Nýr eigandi ætlaði að skipta um bárujárn og þá komu í ljós merki eftir mjög fallega gluggaumgjörð sem við köllum bjóra. Þá ákvað eigandinn að fara í uppruna hússins. Húsið var gert mjög fallega upp samkvæmt þeim ummerkjum sem fundust undir járninu. “ Yfi rskrift Menningarnætur er Húsin í bænum − þekktur staður í ljóði Tómasar Guðmundssonar. Sum hús eru til meiri prýði en önnur og Magnús Skúlason arkitekt leiddi okkur á vit nokkurra þeirra. HÚSALIST HREFNA SIGURJÓNSDÓTTIR FRÉTTA BLA Ð IÐ /VA LLI M YN D /M A G N Ú S FRÉTTA BLA Ð IÐ /VA LLI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.