Fréttablaðið - 22.08.2009, Page 86
54 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Danskir fjölmiðlar
greindu frá því í gær að enska b-
deildarfélagið Newcastle hefði
áhuga á að fá íslenska landsliðs-
manninn Sölva Geir Ottesen í
sínar raðir en varnarmaðurinn
leikur nú með SønderjyskE í
Danmörku.
Þetta er ekki í fyrsta
skiptið sem Sölvi Geir er
orðaður við breskt félag því
fyrr í sumar voru bæði Celt-
ic og Birmingham talin vera
á eftir honum.
Umboðsmaðurinn Guðlaug-
ur Tómasson staðfestir í sam-
tali við danska dagblaðið Berl-
ingske Tidende að Newcastle
hafi vissulega sýnt Sölva Geir
áhuga.
„Því er ekki að neita að New-
castle hefur sýnt leikmannin-
um áhuga en eins og staðan
er núna hefur ekkert kauptil-
boð verið lagt fram. Á þess-
um tímapunkti er erfitt
að segja hvort eitthvað
verði úr áhuga New-
castle eða ekki,“
segir Guðlaugur.
Samkvæmt heim-
ildum Berlingske
Tidende ætlar knatt-
spyrnustjórinn Chris
Hughton sér að fá Sölva
Geir til þess að fylla
skarð Sebastien Bassong
sem fór á dögunum til
Tottenham.
Þá er varnarmaður-
inn Steven Taylor hjá
Newcastle sterklega
orðaður við félagaskipti
til Everton. - óþ
Sölvi Geir Ottesen heldur áfram að heilla bresk lið:
Newcastle vill Sölva
SÖLVI GEIR Hefur fengið lof fyrir
frammistöðu sína með SønderjyskE.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI FH-ingar geta fagnað
fimmta Íslandsmeistaratitlinum á
sex árum í dag verði úrslitin í 18.
umferð Pepsi-deildar karla þeim í
hag. FH-ingar taka á móti Grind-
víkingum á sama tíma og næstu
lið í töflunni, Fylkir og KR, mæta
Fjölni og Keflavík. FH-ingar eru
með 11 stiga forskot á Fylkir og 13
stiga forskot á KR sem á leik til
góða.
FH-ingar hafa verið duglegir að
endurskrifa söguna undanfarin
sumur og þeir geta bætt enn einu
metinu við takist þeim að tryggja
sér Íslandsmeistaratitilinn í dag.
FH yrði þá fyrsta liðið til þess
að tryggja sér titilinn þegar liðið
á enn eftir fjóra leiki af mótinu.
Þrjú lið hafa unnið titilinn þegar
þau hafa átt þrjá leiki eftir. FH-
ingar gerðu það fyrir fjórum árum
og jöfnuðu þá met ÍA frá 1995 og
Fram frá 1988.
Framarar unnu 14 af fyrstu 15
leikjum sínum sumarið 1988 og voru
taplausir á tímabilinu þegar þeir
tryggðu sér titilinn með 3-2 sigri á
KA í 15. umferðinni. Fram-liðið var
þá með 11 stiga forystu þegar aðeins
þrjár umferðir voru eftir.
Skagamenn unnu tólf fyrstu
leiki sína sumarið 1995 og náðu
40 af 45 mögulegum stigum út úr
fyrstu fimmtán leikjum sínum. Það
voru þó Valsmenn sem tryggðu
þeim titilinn með því að vinna 2-
1 sigur á KR í 15. umferðinni en
hann fór fram daginn eftir leik
Skagamanna. Skagamenn höfðu
þar með tólf stiga forystu þegar
aðeins þrjár umferðir voru eftir.
FH-ingar unnu fimmtán fyrstu
leiki sína sumarið 2005 og tryggðu
sér titilinn með 2-0 sigri á Val í
uppgjöri efstu liðanna í 15. umferð-
inni. FH-ingar voru þannig með
fjórtán stiga forystu þegar aðeins
þrjár umferðir voru eftir.
FH-ingar geta enn fremur orðið
aðeins fjórða liðið til þess að
tryggja sér Íslandsmeistaratitil-
inn í ágústmánuði síðan deildin
innihélt fyrst tíu lið árið 1977. Þeir
munu þó ekki ná að bæta árang-
ur sinn frá því fyrir fjórum árum
þegar titilinn kom í höfn degi áður,
hinn 21. ágúst.
Einu liðin sem eiga enn mögu-
leika á titlinum fyrir utan FH,
Fylkir og KR, eru örugglega löngu
hætt að keppa um efsta sætið en
heyja aftur á móti harða baráttu
um annað sætið. KR-ingar heim-
sækja Keflvíkinga og Fylkir
tekur á móti Fjölni. Fylkir náði
öðru sætinu af Vesturbæingum
í síðasta leik en það er nóg eftir
af þeirri baráttu þótt baráttunni
um Íslandsmeistaratitilinn sé að
mestu lokið. ooj@frettabladid.is
Verður FH meistari í dag?
FH-liðið getur tryggt sér titilinn vinni það Grindavík á sama tíma og Fylkir og
KR tapa sínum leikjum. FH yrði þá fyrsta liðið til að tryggja sér titilinn þegar
enn eru fjórir leikir og tólf stig eftir í pottinum.
ÍSLANDSMEISTARAR MEÐ
FLESTA LEIKI EFTIR
Þrír leikir
Fram 1988 3. september 1988
ÍA 1995 4. september 1995*
FH 2005 21. ágúst 2005
Tveir leikir
KR 1959 27. ágúst 1959
Fram 1972 6. september 1972*
Keflavík 1973 9. september 1973*
ÍA 1984 1. september 1984
ÍA 1993 11. september 1993
KR 2003 1. september 2003
* Úrslit úr öðrum leikjum tryggðu titilinn
> Ármann Smári nálgast Hartlepool
Í fyrradag greindu norskir fjölmiðlar frá því að Brann væri
búið að samþykkja kauptilboð enska c-deildarfélagsins
Hartlepool í Ármann Smára Björnsson. Umboðsmað-
urinn Ólafur Garðarsson staðfesti í samtali við
Fréttablaðið í gær að Ármann Smári væri búinn
að samþykkja samningsboð frá Hartlepool og
ætti bara eftir að gangast undir læknisskoðun.
„Forráðamenn Hartlepool segjast vonast til
þess að ganga frá smáatriðum á næstunni
en það er ekkert staðfest. Það eru einhver
ljón í veginum en ég veit ekki alveg hvert
vandamálið er. Ármann Smári er búinn að
samþykkja samningsboð Hartlepool
og á í raun bara eftir að gangast undir
læknisskoðun,“ segir Ólafur.
Staðan í Pepsi-deild karla
1. FH 17 14 1 2 49-17 43
2. Fylkir 17 10 2 5 30-19 32
3. KR 16 9 3 4 36-24 30
4. Keflavík 17 6 7 4 25-29 25
5. Stjarnan 17 7 3 7 35-27 24
6. Valur 17 7 2 8 20-29 23
7. Fram 16 6 4 6 26-21 22
8. Breiðablik 17 6 4 7 27-30 22
9. Grindavík 15 5 3 7 24-29 18
10. ÍBV 15 5 2 8 18-26 17
------------------------------------------------------
11. Fjölnir 17 3 3 11 20-36 12
12. Þróttur 17 3 2 12 20-43 11
MARKAHÆSTU MENN
Atli Viðar Björnsson, FH 12
Arnar Már Björgvinsson, Stjörnunni 9
Alfreð Finnbogason, Breiðabliki 9
Matthías Vilhjálmsson, FH 9
NÆSTU LEIKIR:
FH-Grindavík lau. 22. ágúst kl. 16:00
Fylkir-Fjölnir lau. 22. ágúst kl. 16:00
Keflavík-KR lau. 22. ágúst kl. 16:00
Valur-Breiðablik lau. 22. ágúst kl. 16:00
Fram-Stjarnan lau. 22. ágúst kl. 16:00
ÍBV-Þróttur sun. 23. ágúst kl. 18:00
26 MÖRK SAMAN Atli Viðar Björnsson (12 mörk), Atli Guðnason (7) og Tryggvi Guð-
mundsson (7) fagna hér einu af 49 mörkum FH í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
10.September nk.
Ungbarnasund
Námskeiðið hefst 5. f brúa nk. í Árbæjarlaug.
Sunddeild Ármanns
Barnasund
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst laugardaginn 15. janúar nk.
í Árbæjarskóla
Innritun virka daga frá kl. 17:00 og um helgar frá kl. 13:00
í síma 557-6618 (Stella) og Eygló í síma 866-0122
i ið hefst 29. ágúst í Árbæjarlaug.
Innritun virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00
í síma 557-6618 Stella, stellag@torg.is
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst laugardaginn 17. október nk.
í Árb jarskóla
Verð kr. 265.000.-
Hrein fjárfesting ehf
Dalbraut 3 105 reykjavík • rainbow@rainbow.is
Sími verslun 567 7773 . kvöld og helgar 893 6337
www.rainbow.is
Rainbow
Bjóðum nokkrar Rainbow á 186,000
Eða gömul Rainbow upp í nýja tilboð 155,000
Eigum einnig notaðar yfi rfarnar rainbow
með ábyrgð verð 80.000 tilboð 58.000
meðan byrgðir endast.
Jón Arnór Stefánsson og félagar í íslenska körfuboltalandsliðinu
mæta Hollandi í Smáranum klukkan 16.00 í dag. Þetta er annar af
tveimur heimaleikjum liðsins í seinni hluta B-deildarinnar en
íslenska liðið byrjaði á 66-54 sigri í Danmörku á miðvikudag-
inn.
„Það var gott að vinna fyrsta leik og fara inn í Hollands-
leikinn nokkuð léttir og jákvæðir. Sjálfstraustið ætti
að vera nokkuð gott eftir þennan fyrsta sigur. Við
vorum góðir í vörninni og baráttan í þar skóp
sigurinn hjá okkur,“ segir Jón Arnór en hann
skoraði 21 af 66 stigum íslenska liðsins og
tók af skarið í sókninni. „Ég þarf samt að
spila betur, það er alveg pottþétt,“ segir
Jón Arnór.
Hollendingar unnu 23 stiga sigur á
Austurríki í síðasta leik og eru með mjög sterkt
lið sem er líklegt til að vinna sér sæti í A-deildinni.
„Þetta verður brött brekka fyrir okkur og við eigum
ekkert að vinna þennan leik á pappírunum. Þetta
er hrikalega erfitt lið að vinna því að þeir eru á öðru plani en við, ef
maður á að vera hreinskilinn,“ segir Jón. Aðalstjarna hollenska liðsins
er Francisco Elson sem varð NBA-meistari með San Antonio Spurs
2007 og var með 28 stig í 84-68 sigri Hollands í fyrri leiknum.
„Elson er virkilega góður. Hann er stór, snöggur og hreyfanlegur
fyrir stóran mann. Við söknum Hlyns Bæringssonar svolítið í þeirri
baráttu. Við berjumst bara og þurfum örugglega að tvídekka hann,“
segir Jón Arnór sem tekur þátt í leikjum íslenska liðsins, en í liðið
vantar öfluga menn. „Ég vil spila fyrir Íslands hönd og gef mig
allan í þetta verkefni. Ég er stemmdur og ég vildi að það væri
þannig hjá öllum og allir væru með. Því miður er það ekki svo
í ár einhverra hluta vegna. Ég veit ekki hver ástæðan er hjá
hinum leikmönnunum en við erum ekki að stilla upp okkar
sterkasta liði,“ segir Jón Arnór. Jón er sjálfur ekki búinn að finna
sér lið fyrir næsta tímabil. „Ég er bara atvinnulaus og veit ekk-
ert hvað ég er að fara að gera. Það er ekkert í gangi til að tala
um. Ég hef samt engar áhyggjur af þessu og bíð bara rólegur
eftir að eitthvað gott detti inn,“ segir Jón og á meðan ætlar
hann að njóta þess að spila fyrir Íslands hönd.
JÓN ARNÓR STEFÁNSSON: VILDI AÐ ALLIR VÆRU TILBÚNIR AÐ SPILA FYRIR LANDSLIÐIÐ SEM MÆTIR HOLLANDI Í DAG
Eigum ekkert að vinna þennan leik á pappírunum