Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.08.2009, Qupperneq 88

Fréttablaðið - 22.08.2009, Qupperneq 88
56 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR FÓTBOLTI Íslenska kvennalandslið- ið spilar sinn þrítugasta leik undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfs- sonar á mánudaginn þegar liðið leikur sinn fyrsta leik á EM í Finn- landi. Sigurður Ragnar lagði strax áherslu á íslensku vörnina þegar hann tók við og hún hélt marki sínu hreinu í þrettánda sinn undir hans stjórn í sigrinum á Serbíu á laugar- daginn. Margir leikmenn eiga þátt í þeim góða árangri en þrír þeirra hafa átt gríðarlega mikinn þátt í því að ná upp stöðugleika í varnar- leik íslenska kvennalandsliðsins. Þær Edda Garðarsdóttir, Guð- rún Sóley Gunnarsdóttir og Katrín Jónsdóttir mynda öftustu varnar- línu liðsins og hafa gert það í 28 af 29 leikjum undir stjórn Sigurðar Ragnars. Þær þrjár stöllur eru einu leik- menn liðsins sem hafa verið í byrj- unarliði íslenska liðsins í undan- förnum 27 landsleikjum eða allar götur frá því í 5-1 sigri á Portúgal 12. mars 2007 sem var jafnframt fyrsti sigurleikurinn undir stjórn Sigurðar Ragnars. „Þær eru allar mjög góðir leik- menn og með gríðarlega mikla reynslu sem er okkur mikilvægt. Þetta eru miklir liðsspilarar. Þær eru ekki í þessu fyrir einhverja persónulega athygli heldur fórna sér fyrir liðið,“ segir Sigurður Ragnar um þær Eddu, Guðrúnu og Katrínu. „Eitt það mikilvægasta sem þú gerir í byrjun sem þjálfari er að finna miðvarðaparið og við vorum heppnir að þær Gunna og Kata pössuðu mjög vel saman. Þá er maður ekkert mikið að breyta því sem gengur vel,“ segir Sigurð- ur Ragnar og hann er sammála því að miðvarðaparið sé samansett af ólíkum leikmönnum sem vega hvor aðra upp. „Kata er meira í því að vinna skallabolta og hún er líkamlega sterk. Hún er leiðtogi og stjórnar vörninni. Gunna er fljót og gríðar- lega sterk maður á móti manni. Hún er líka oft mætt fyrir aftan til að valda,“ segir Sigurður Ragnar. „Ef ég ætti að nefna einhverja sem hefur fengið of litla athygli miðað við hvað hún hefur gefið liðinu þá er það Guðrún Sóley. Hún er frá- bær leikmaður og fær sjaldan það hrós sem hún á skilið,“ segir Sig- urður. Fyrir framan þær Katrínu og Guðrúnu Sóleyju spilar síðan Edda Garðarsdóttir sem hefur aðeins misst af einum landsleik frá árinu 2004. „Ég hef haft líka það skipulag að spila með tvo varnartengiliði. Edda hefur þar verið í byrjunarlið- inu í öllum leikjunum nema einum. Hún hefur spilað mjög vel og verið að bæta sig sem leikmaður. Mér finnst hún hafa bætt sig töluvert mikið síðan hún fór út í atvinnu- mennsku. Hún er okkar auka- og hornspyrnusérfræðingur og það hefur gefið okkur fullt af mörk- um líka. Hún les leikinn vel, stað- setur sig mjög vel og er þetta akk- eri á miðjunni sem passar upp á að við fáum ekki á okkur skyndiupp- hlaup inn í hjarta varnarinnar,“ segir Sigurður Ragnar um fram- lag Eddu til liðsins. Hefur hún oft á tíðum verið sannkallaður brim- brjótur fyrir miðvarðaparið fyrir aftan hana. Margir aðrir leikmenn íslenska liðsins spila ekki síður mikilvægt hlutverk en þær Margrét Lára Við- arsdóttir, Hólmfríður Magnúsdótt- ir og Dóra María Lárusdóttir svo einhverjar séu nefndar eru dug- legri að minna á sig með mörkun- um sínum og frábærum töktum í sóknarleiknum. Framlag þeirra Eddu, Guðrúnar og Katrínar er því ekki eins áberandi en engu síður mikilvægt. „Ég vil alls ekki segja að þess- ar þrjár séu mikilvægari en aðrir leikmenn í liðinu. Ég lít svo á að allar séu jafnmikilvægar en hlut- verk þeirra þriggja hefur oft verið svolítið vanmetið og þær hafa ekki verið mikið í sviðsljósinu,“ sagði Sigurður Ragnar um „kjarnann“ í kvennalandsliðinu. ooj@frettabladid.is Kjarni kvennalandsliðsins Aðeins þrír leikmenn íslenska kvennalandsliðsins hafa byrjað síðustu 27 leiki kvennalandsliðsins. Má því kalla þær Katrínu Jónsdóttur, Guðrúnu Sóleyju Gunnarsdóttur og Eddu Garðarsdóttur kjarnann í íslenska liðinu. AFTASTA LÍNAN Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Edda Garðarsdóttir og Katrín Jónsdóttir ætla ekki að gefa neitt eftir á EM í Finnlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Edda Garðars- dóttir - 30 ára, 72 landsleikir og 2 mörk - Hefur spilað 32 lands- leiki í röð - Hefur verið inn á í 93 prósent leiktímans undir stjórn Sigurðar Ragnars Guðrún Sóley Gunnarsdóttir - 28 ára, 62 landsleikir og 1 mark - Hefur spilað 30 landsleiki í röð - Hefur verið inn á í 98 prósent leiktímans undir stjórn Sigurðar Ragnars Katrín Jónsdóttir - 32 ára, 86 landsleikir og 13 mörk - Hefur spilað 31 lands- leik í röð - Hefur verið inn á í 97 prósent leiktímans undir stjórn Sigurðar Ragnars AFTASTA LÍNA ÍSLANDS Á EM Í FINNLANDI FÓTBOLTI Guðbjörg Gunnarsdótt- ir hefur þótt vera með óheppnari landsliðskonum Íslands síðustu ár eftir að hafa meiðst ítrekað. Nú ætlar hún hins vegar að storka örlögunum með því að klæðast „óhappatreyjunni“ með það að markmiði að fá lukkuna með sér í lið. Hún vildi ekki vera í venjubundnu númeri varamark- varðarins sem er tólf. „Ég hef í nokkur ár ætlað að vera númer 13 en ég hef ekki verið í aðstöðu til þess því ég hef alltaf verið númer 1. Núna lang- aði mig að vera númer þrettán því að ég trúi því að það verði ólukka annarra að lenda á móti mér. Ég hef alltaf verið mikið meidd en kannski breyti ég því með því að vera númer þrettán,“ segir Guð- björg en hún segir þrettán vera sína lukkutölu. Þóra Björg Helgadóttir var í íslenska markinu á móti Serbum og verður væntanlega aðalmark- vörður íslenska liðsins á mótinu. Guðbjörg þarf því að bíða þolin- móð á bekknum. „Þeir segja við mig að þeir velji liðið fyrir hvern leik og ég verð bara að trúa því. Ég reyni bara að standa mig vel á æfingum og sé síðan hve langt það fleytir mér,“ segir Guðbjörg en hún hefur þó ekki misst alla von því hún veit það vel að margt getur komið upp á inni á vellinum. „Maður veit aldrei hvað gerist og ég held að ég viti það best sjálf því ég er alltaf að lenda í meiðsl- um. Þeir sem eru varamarkverð- ir hjá mér þurfa alltaf að vera á tánum,“ segir leikmaður númer 13 hjá íslenska landsliðinu á EM í Finnlandi, Guðbjörg Gunnars- dóttir. - óój Markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir á EM: Vildi vera í treyju númer þrettán ÆTLAR AÐ STANDA SIG Á ÆFINGUM Guðbjörg Gunnarsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ LAXÁ Á REFASVEIT Það voru að losna holl: 31. ágúst-2. sept. / 2.-4. september 2 holl laus eftir 20. september. Uppl. veitir Stefán (898-3440) Frítt á völlinn í boði Actavis H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 0 9 -1 4 3 7 Allir á völlinn – áfram FH! Nú fara línur að skýrast í Pepsi-deildinni – ekki láta þig vanta í Kaplakrikann! Draumalið Pepsi verður með skiptimarkað. Leikmenn FH árita myndir eftir leik. FH–Grindavík Laugardaginn 22. ágúst kl. 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.