Tímarit íslenzkra samvinnufélaga - 01.12.1922, Side 65
Tímarit íslenskra samvinnufélaga. 175
iöndum, getur það ekki verið vegna annars en þess, að
þetta veki grun um, að hinn hlutinn af fé bankanna
muni ekki vera nógu vel trygður, og ætti B. Kr. því
að athuga það mál fyrst. En tilgangurinn mun hér sem
annarsstaðar aðeins vera að reyna að vekja ótta og tor-
trygni almennings og að spilla lánstrausti Sambandsins.
Einkum sér hann ofsjónum yfir því, að Sambandið
skuli geta í'ekið starfsemi sína með bankalánum, og
segir, að lánin til þess gangi „úr hófi fram, ef litið er
á það frá heilbrigðu viðskiftasjónarmiði“.
Auðvitað reynir B. Kr. ekki að færa neinar líkur
fyrir þessari skoðun sinni, því að þá mundi hann þurfa
einhvem samanburð á því, hvernig bankarnir lána út
á traust annara atvinnurekenda í landinu, en út í
þann samanburð er B. Kr. líklega hollast að fara ekki
langt sjálfum.
En samvinnumenn mega af þessu ráða, hvernig B.
Kr. mundi hafa beitt valdi sínu, ef hann hefði sjálfur
verið bankastjóri.
Endurskoðunin.
pá ræðir B. Kr. um endurskoðunina og er áhyggju-
íullur út af vankunnáttu samvinnumanna í því, að
framkvæma „kritiska“ endurskoðun. Mun það vera nú-
verandi form. Sambandsins, Ólafur Briem, fyi'v. alþing-
isforseti og bóndi frá Álfgeirsvöllum, sem hann knéset-
ur á þennan hátt, því að hann var endurskoðandi Sam-
bandsins áður en hann var kosinn formaður, og hefir
endurskoðað reikninga þá, er B. Kr. er að benda sam-
vinnumönnum á að athuga á ný. Vill hann að þeir fái
þriðja mann viðurkendan af ríkisstjórninni (stats-
autoriseret) til að endurskoða reikningana með sér.
Á fundum félagsins hefir þetta verið borið í tal,
en verið horfið frá því ráði aftur, af því að opinberar
stofnanir landsins hafa yfirleitt ekki færari mönnum
á að skipa en Sambandið til þessa starfa.