Andvari - 01.01.1987, Síða 8
6
INGVAR GÍSLASON
ANDVARI
sem hann öðlaðist. Hins vegar átti hann sér þann metnað að neyta
hæfileika sinna og láta þá verða að gagni, og hann lá hvergi á liði sínu
þar sem hann tók til hendi, enda fundu menn að það munaði um
handtök hans. Af því var sprottið traust manna á honum og þess vegna
valdist hann til forystu. Ólafur Jóhannesson tróð sér aldrei fram, hann
var borinn fram.
Ætt og uppruni
Ólafur Davíðs (svo hét hann fullu nafni) Jóhannesson var fæddur 1.
mars 1913 að Stór-Holti í Austur-Rjótum í Skagafjarðarsýslu. Þótt
óskyldur væri, var hann látinn heita eftir Ólafi Davíðssyni náttúru-
fræðingi og þjóðsagnasafnara, og taldi faðir hans að hann hefði vitjað
nafns. Á æskuárum mun Ólafur hafa ritað nafn sitt: Ólafur D. Jóhann-
esson, en fannst það síðar fordildarlegt og hætti því. Var honum þó síst
vansæmd að því að vera heitinn eftir Ólafi Davíðssyni, svo merkur
rithöfundur og fræðimaður sem hann var. Foreldrar Ólafs voru hjónin
Jóhannes Friðbjarnarson og Kristrún Jónsdóttir. Var faðir hans
Eyfirðingur að ætt, fæddur að Ysta-Gerði í Saurbæjarhreppi, en alinn
upp í Öxnadal að miklu leyti, gagnfræðingur frá Möðruvöllum, fluttist
ungur vestur í Fljót og átti þar heima æ síðan. Hann varð háaldraður
maður, fæddur 22. júlí 1874 og andaðist 1966. Kristrún, móðir Ólafs,
var Fljótamaður að fæðingu, f. 6. jan. 1881, dóttir hjónanna Jóns
Sigurðssonar og Guðfinnu Gunnlaugsdóttur, sem lengst bjuggu á 111-
ugastöðum í Austur-Fljótum. Kristrún náði einnig háum aldri, andað-
ist árið 1964, 83ja ára gömul.
Þótt hér verði ekki raktar ættir Ólafs Jóhannessonar né ítarlega
greint frá langfeðgum hans og ættmennum, þá er þess að geta að að
honum stóðu norðlenskar bændaættir, ekki að litlu leyti eyfirskar og að
hluta þingeyskar, þótt Ólafur væri Fljótamaður að fæðingu og uppeldi.
Jóhannes Friðbjarnarson var af Hvassafellsætt í Eyjafirði, f jórði mað-
ur frá Jónasi í Hvassafelli, móðurföður Jónasar skálds Hallgrímssonar.
Voru þeir systrasynir Benedikt Benediktsson í Hvassafelli, langafi
Ólafs, og Jónas Hallgrímsson, Benedikt sonur Guðrúnar Jónasdóttur,
en Jónas sonur Rannveigar Jónasdóttur. Kristrún, móðir Ólafs, var á
hinn bóginn náskyld Jakobi Hálfdanarsyni og Benedikt á Auðnum, því
að Sigurður, föðurfaðir hennar, var Jóakimsson, bróðir Hálfdanar á