Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1987, Side 130

Andvari - 01.01.1987, Side 130
128 SIGURJÓN BJÖRNSSON ANDVARI við voru á erlendum málum. Og sjálfur dvaldist hann erlendis. En þar er skemmst frá að segja að fyrirlestradrög hans bera engin merki erlendra áhrifa í máli og stíl frekar en.hann hefði aldrei utan landsteina stigið. Málkennd hans var svo næm og málsmekkur svo fágaður að þau stóðust alla raun. Mætti þetta vera íhugunarefni fyrir ýmsa sem skrifa um fræði sín nú á tíð af vanefnum miklum, þó að ólíku sé saman að jafna hve íslenskan er nú þjálli til slíkrar iðju. V. Þorsteinn Gylfason hefur það eftir Sigurði Nordal að hann teldi að lestrar þessir væru löngu úreltir. Bæði væru fræðin orðin forn og svo hefði hann notað allt sem nothæft væri í þeim til annarra hluta. Síðan bætir Eorsteinn við: „Allt var þetta alveg eftir Sigurði en tóm vitleysa hjá honum fyrir því“.9 Hér hlýt ég að vera Þorsteini ósammála. Sigurður hafði að sjálfsögðu rétt fyrir sér og hann átti auk þess allan réttinn. Og hví skyldum við efast um dómgreind þessa vitra og lífsreynda manns í þetta eina sinn? Hafði hann ekki sýnt að hann var yfirleitt prýðilega dómbær bæði á eigin ritverk og annarra og ekkert úr hófi hlédrægur? En Sigurður vissi sjálfur mæta vel hversu mikið vantaði á að þessi blöð hans væru hæf til prentunar bæði frágangs vegna og efnis. Hann var löngu vaxinn frá þessu skrifi, sem að vísu hafði endur fyrir löngu verið mikilvægur áfangi á þroskabraut hans. Vissulega er það rétt hjá Þorsteini að fyrirlestrarnir hafa mikið heimild- argildi um þroskasögu Sigurðar og ævi. Þeir eru nauðsynlegir hverjum þeim er vill kanna þau efni. Ekki vil ég gera lítið úr því enda finnst mér ég hafa haft af þeim mikið gagn og þeir hafi hjálpað mér nokkurn spöl áleiðis í skilningi á Sigurði Nordal. En það réttlætir engan veginn prentaða útgáfu til sölu handa almenningi á úreltu, á marga lund misheppnuðu og ófullgerðu og ófrágengnu riti, sem er alls ósamboðið vandvirkum og listfengum rithöfundi. Ritið var engu að síður hægt að varðveita. Og þörfum fræðimanna og grúskara var hægt að fullnægja með öðrum hætti. T.a.m. með því að láta sér nægja handrit frágengið á svipaðan hátt og þessi útgáfa er og séð til þess að það væri tryggilega geymt á nokkrum helstu vinnustöðum fræðimanna eða hægt að eignast það (e.k. innanhússútgáfa). Ég hygg að Sigurði Nordal sjálfum hefði þótt sá háttur þekkilegri. Ekki hef ég gert þetta að umtalsefni af því að ég haldi að hér hafi átt sér stað ,,slys“ með útgáfu þessa rits. Raunar hefur ekkert gerst annað en það að lesendur sem hefur þótt vænt um rit Sigurðar Nordals, hafa orðið fyrir nokkrum vonbrigðum. Séu þeir sæmilega skynsamir, — sem ég hygg að lesendur Sigurðar séu yfirleitt, — átta þeir sig fljótt á því hvers vegna þessi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.