Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1987, Page 132

Andvari - 01.01.1987, Page 132
130 SIGURJÓN BJÖRNSSON ANDVARI numið fræði sín. Víst var Sigurður áhugasamur um þessi fræði og sýndi ótvíræða fræðimannshæfileika. En hann hafði líka ríka hneigð í aðrar áttir. Skáldið í honum heimtaði sinn skerf og hann hafði mikla ást á nútímabók- menntum og langaði til að sinna þeim. Petta síðarnefnda var ekki beinlínis í stíl við hugðarefni þeirra Ólsens og Finns, sem báðir virðast hafa verið heldur óskáldlega vaxnir. En í fræðunum voru þeir fyrirmyndir hans. Báðir bundu þeir augljóslega miklar vonir við Sigurð, enda var námsferill hans óefað glæsilegur. Á Sigurði hvíldi þannig þung skylda að bregðast ekki trausti þeirra, en á hinn bóginn togaði skáldskapurinn og fagurfræðin fast í. — Ég hef áreiðanlega ekki skilið skrif Sigurðar rétt, hvorki í Einlyndi og marglyndi né síðari skrif hans, hafi hann ekki tekið „skyldu“ sína alvarlega og fundið til nokkurs innri óróleika eða jafnvel sektarkenndar vegna ,,marglyndis“ síns. I fyrirlestrum sínum lýsir Sigurður Nordal tveimur manngerðum, einlyndri og marglyndri, eins og svo oft hefur verið minnst á. Pað fer ekki á milli mála að hann telur leiðina til þroska, listræns skilnings og innsæis, liggja um marglyndið, eins og hann skilgreinir það. Hugsjón hans verður hinn skiln- ingsglöggi, tilfinningaríki og fjölmenntaði húmanisti. En einlyndi maðurinn er sá sem setur sér snemma markmið sitt, hvikar ekki frá því svo lengi sem ævin endist, lítur hvorki til hægri né vinstri og finnur alla lífsgæfu sína í því að rækta hinn litla blett sinn. Samhliða þessari tvískiptingu í manngerðir og lífsstefnur er skipting Sigurðar annars vegar í vísindi, hins vegar í listir og trú. Vísindi eru nauðsynleg, en þau grípa einungis til hluta raunveruleikans, handan þeirra, ofan þeirra og æðri en þau er innsæislegur „skilningur“, trúarlegur og listrænn skilningur. Það þarf enga sérstaka áreynslu né ágiskunarhæfni til að sannfærast um að lýsing Sigurðar á „einlynda“ manninum og á vísindahyggjunni heggur býsna nálægt kennurum hans, vinum og fyrirmyndum, Birni M. Ólsen og Finni Jónssyni, sem hann þurfti að vaxa frá. Skrif hans um þá staðfesta þetta svo að ekki verður um villst. Líklegast myndi það leiða okkur fulllangt inn í myrkviði sálarfræðinnar að fara að velta því mikið fyrir okkur hvers vegna Sigurði var nauðsyn að vaxa frá þessum lærifeðrum sínum og troða nýjar slóðir. En meinalaust ætti að vera að koma með tvær ágiskanir, því að hvorug þeirra er frá hinni úrkynjuðu nútímasálarfræði komin, sem Þorsteinn Gylfason fer svo hörðum orðum um.13 Að vísu hef ég þegar tæpt á fyrri ágiskuninni. Sigurður Nordal var ekki síður listamaður en vísindamaður að ,,eðlisfari“ (ef við kjósum að láta það duga). Hann var tilfinningaríkur gáfumaður, ljóðrænn og var jafntamt að „skilja“ með tilfinningum og með skynsemi. Hann var nokkuð annarrar gerðar en fræðarar hans. Hann gat fylgt þeim áleiðis, en hann gat ekki fórnað öllu á altari vísindanna. Gegn því gerði eðli hans, þarfir og þrár uppreisn. Var undarlegt þó að þetta, þessi mismunur fyrirmynda, skyldu og langana, leiddi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.