Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1987, Page 150

Andvari - 01.01.1987, Page 150
148 VÉSTEINN ÓLASON ANDVARI þversagnakennt, ef miðað er við kröfur einfeldningslegrar skynsemishyggju: Halldór Laxness berst hart gegn þjóðernishugmyndafræðinni á þriðja ára- tugnum en er samt undir miklum áhrifum frá henni. Árni lýsir og greinir afstöðu hans allvel, að því er mér virðist, en þó gætir nokkuð tilhneigingar til að láta óskilgreind nöfn koma í staðinn fyrir skýringu sem kæmi lesanda betur. Um Alþýðubókina segir: „í meginatriðum virðist mér Halldór hallast í átt að öreigastefnu í þessari bók.“ (90) Hvað á hann við með „öreigastefnu“? Freistandi er að láta sér detta í hug að Árni sé hér að skírskota til stefnu sem á baugi var í Sovétríkjunum á þessum árum og nefndist „proletkult“, en þó er það ekki augljóst enda vandi að koma einu nafni á eitthvað sem Halldór hallist að í meginatriðum í þeirri bók; ívið þröngt er amk. að binda mannást hans þar við öreigastéttina eina saman. Satt að segja rekur eitt sig á annars horn þegar athugaðar eru einstakar yfirlýsingar í Alþýðubókinni, nema náttúrlega að maður fari að gera ráð fyrir allmikilli gamansemi og hálfkæringi af hálfu höfundar, en Árni hefur lítið velt því vandamáli fyrir sér. Sann- leikurinn er sá að meginið af dægurgreinum Halldórs Laxness, eins og margra fleiri sem frá er sagt í bók Árna, eru ritdeiluskrif. Ritdeilur eru sérstök bókmenntagrein og eiga sér sína retórík. Þeir sem fjalla um ritdeilur, og þá ekki síst bókmenntafræðingar, ættu að vera skyldugir að taka öllu meira tillit til þessa en Árni gerir. Stundum eru endursagnir Árna svo stuttaralegar að þær verða villandi. Þetta er td. skrýtin lýsing á megininntakinu í einni merkustu grein í Alþýðu- bókinni: „Meðal greina í bókinni er fyrirlestur um Jónas Hallgrímsson, fátækt hans og hagnýtisandann í kvæðum hans.“(90) Árni segir að vísu fleira um efni greinarinnar en orðalagið bendir til að hann telji það sem hann nefnir í fyrstu setningu spanna efni hennar að mestu leyti. Ætla mætti að niðurstað- an væri sú að Jónas hafi verið fátækur í hagnýtisanda. Mig minnir að greinin sé aðallega um snilld Jónasar. Einkennilegt er það hve Árni hefur litla samúð með mannlegum veikleika þegar sósíalistar eiga í hlut. í efnisgrein á mótum bls. 96 og 97 ræðir hann nokkuð um tilhneigingu íslenskra sósíalista til að hrífast af fegurð og virðist einna helst telja það til marks um útúrboruhátt og skort á réttri pólitískri hugsun, sem reyndar hafi komið sér vel á árum samfylkingar: „Má vera að slík tryggð leiðandi höfunda úr hópi vinstrimanna við kröfuna um fegurð hafi verið eitt af nauðsynlegum skilyrðum þess að andstæðar fylkingar þjóðernis- sinna og jafnaðarmanna nálguðust hvor aðra í lok áratugarins.“ Svo það hefur kannski verið framrétt hönd í sáttaskyni við borgaraleg öfl, þegar íslenskur sósíalisti lauk skáldsögu sinni með þessum orðum: “Og fegurðin mun ríkja ein.“ Á því herrans ári 1940! Yfirlit Árna yfir íslenska skáldsagnagerð millistríðsáranna er góðra gjalda vert. Þar eru dregin fram í dagsljósið mörg verk sem fallin eru í gleymsku.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.