Andvari - 01.01.1987, Page 163
ANDVARI
JÓNAS FRÁ HRIFLU OG UPPHAF FRAMSÓKNARFLOKKSINS
161
listann í kosningunum. Þó kemur hann ekki fram sem neinn forvígismaður í
hreyfingu Óháðra bænda, t.d. ekki í samningum þeirra við Bændaflokkinn,
og hans eigin óformlegu stjórnmálasamtök stóðu ekki saman um listann,
heldur skiptust þau eftir héruðum milli bændalistanna tveggja.
Eftir kjördæmakosningarnar og fall Gests á Hæli í Árnessýslu var hreyfing
Óháðra bænda höfuðlaus her og úr sögunni sem flokkur. Þingmenn hans
tveir, Sigurður í Ystafelli og Sveinn í Firði, hafa sem einstaklingar ákveðið að
standa að flokksstofnun með bændaflokksmönnum. Fað hefur væntanlega
verið þeim auðveld ákvörðun, og engin ástæða er til að ætla Jónasi frá Hriflu
úrslitaáhrif í því efni.
Jónas Jónsson getur sem sagt tæplega talist forgöngumaður að stofnun
Framsóknarflokksins. Áhrif hans höfðu einkum skipt máli við val frambjóð-
enda, Sigurðar í Ystafelli og Jörundar Brynjólfssonar, og hugsanlega hefur
hann haft áhrif á það að Þorsteinn M. Jónsson tók þátt í stofnun flokksins.
VII
Fyrsta alvarlega viðfangsefni Framsóknarflokksins var að taka afstöðu til
stjórnarmyndunar Jóns Magnússonar og velja ráðherra sinn í ríkisstjórn
hans. Ráðherravalið gekk ekki þrautalaust, því að enginn flokksmanna var
fús til starfsins, heldur kusu þeir annarra flokka menn, þar til Jón Magnússon
skyldaði þá til að tilnefna ráðherra úr eigin röðum, og lét þá Sigurður í
Ystafelli loks til leiðast. Hann greinir svo frá þessu í minningum sínum, að Jón
Magnússon hafi látið framsóknarmenn vita að hann gæti sætt sig við Ólaf
Briem eða Sigurð Jónsson; Ólafur hafi verið ófáanlegur, Sigurður sjálfur
tregur til, en látið til leiðast eftir hvatningu Péturs á Gautlöndum.9 Hér virðist
Jónas frá Hriflu enn ekki gegna neinu lykilhlutverki í flokknum. En hann
fékk það bráðlega.
VIII
Grunnurinn að stjórnmálaáhrifum Jónasar var lagður í starfi hans fyrir
ungmennafélögin. „Félögin vantaði ritstjóra og mig vantaði blað,“ sagði
hann síðar. „Gegndi ég því starfi um nokkur ár, þar til mikill hluti hinna eldri
félagsmanna . . . gekk út í baráttuna um líf og framtíð þjóðarinnar. Ég barst
'T'eð þeim straum, og þúsundir ungmenna, sem voru samstarfsmenn mínir við
úhugamál æskunnar, hafa síðar orðið félagar og stallbræður við erfiðari og
vandameiri verk.“10 Eins lítur Þórarinn Þórarinsson á ritstjórn Jónasar: ,,Það
voru lesendur Skinfaxa frá þessum árum, er mynduðu aðalkjamann í liði
11